þriðjudagur, 30. desember 2008

Af harðindum

Sjálfsagt munu flestir minnast þessa árs, sem nú er um það bil að renna sitt skeið, sem árs mikilla hörmunga. Ársins þegar hrunið mikla átti sér stað - þegar skútan fór á hliðina - þegar holskeflan reið yfir og þegar.....blablabla.... Menn tala um kreppur liðinna ára og alda og reyna að finna samlíkingar. Fara jafnvel að blanda Móðuharðindunum inn í dæmið. Mig minnir að í kjölfar Skaftáreldanna hafi Íslendingum fækkað um þriðjung - flestir dóu úr ófeiti.
Í dag horfum við upp á eitt öflugasta herveldi heimsins "verja hendur sínar" með því að slátra föngum sem verið hafa í einangrun, girtir inni á svæði sem er u.þ.b. þriðjungur Reykjanesskagans - varla stærri en það landsvæði sem tilheyrir Grindavík. Þar er nú ekki kastað neinum eggjum né hrópað GAS! Við stöngum hangiketið úr tönnunum, aukum einu gati við á beltinu, dæsum og förum svo að velta fyrir okkur hversu miklu við eigum að eyða í flugelda fyrir þessi áramót. Sá í blaði að Íslendingar ætluðu að skjóta upp sjöþúsund tonnum af flugeldum um áramótin. Menn eru orðnir svo ruglaðir í tölulegum stærðum þetta síðasta misserið. Ég sé fyrir mér 7000 tonna skipi skotið á loft.
Og fyrst ég er að tala um skip. Eggert Ólafsson, hinn betri, átti teinæring, og einhverjar fleiri fleytur, sem hann dró á land í Oddbjarnarskeri og hvolfdi þar til að gera skýli fyrir vergangslýð, 80 manns, sem hann bjargaði af fastalandinu í Móðuharðindunum. Í Oddbjarnarskeri fóðraði hann fólkið á sjávarfangi þar til það náði kröftum á ný. Mér hefur alltaf þótt Eggert ein helsta hetja Íslandssögunnar. Samt er engin stytta til af honum, né hefur honum verið reist minnismerki.

fimmtudagur, 25. desember 2008

Helgileikendur







Hefðbundið jólahald að Hólmgarði 6.

Þetta er reyndar í þriðja sinn sem sá staður verður fyrir valinu - held ég. Oddný, Úa og Steinunn voru hjá okkur á aðfangadagskvöld en Heiða og hennar fjölskylda var úti í Herlev. Skruppum í Hólabergið og hittum fólfið og í dag á jóladag erum við bæði búin að fara í Hólaberg og í Njarðvíkurnar - þar var etið hangikjöt að íslenskum sið.

miðvikudagur, 3. desember 2008

Stífla

Þar sem ég er haldinn ritstíflu, sem á sér líklega margslungnar rætur, hef ég verið sérlega lyklaborðslatur upp á síðkastið. Líklega hef ég verið of upptekinn af ástandinu í þjófafélaginu sem ég var svo heppinn að fæðast inn í.

Til að brydda upp á einhverju öðru set ég hér inn mynd frá vinakeðjuuppákomu síðastliðinn mánudag hér á Varmalandi. Keðjan náði langleiðina frá skólanum upp á Laugahnjúk. Þetta var skemmtilegt uppátæki, bæði fyrir krakkana og starfsmenn skólans.

Ég renndi mér á rassinum niður hlíðina að athöfn lokinni.

miðvikudagur, 26. nóvember 2008

Systur og bræður

Systur mínar tvær úr Noregi og bróðir sem býr í Svíaríki dvelja nú á landinu. Ísland er orðin algjör paradís þegar kemur að því versla fyrir alvöru peninga og þau gera því jólainnkaupin hér. Annars er erindi þeirra frekar það að hitta gamla fólkið.
Viðurkenni hér með að ég var á staðnum þegar lögreglustöðin í Reykjavík var "hersetin". Sá hverjir stóðu að því að brjóta upp dyr. Það voru ekki þessir dæmigerði mótmælendur heldur vel vöðvaðir karlar með lambhúshettur. Ég hef trú á að slíkir menn fái í auknum mæli loft undir vængi og adrenalín í æðar eftir því sem kreppan dýpkar. Býst við þeim betur vopnuðum og skipulögðum við næsta tækifæri sem stjórnvöld bjóða uppá.
Framganga þeirra mun ekkert hafa með réttlætiskennda að gera - nema sem yfirvarp.

sunnudagur, 23. nóvember 2008

Varðar viðeigandi spurningar

Get ekki látið hjá líða að deila með ykkur myndskeiði sem Bergrún sendi mér. Það sýnir okkur hvað fréttamenn eiga við að etja.
Þessi Geir ætlar með hjálp Ingibjargar að leiða okkur út úr kreppu. Hjálpi mér....!

http://gpetur.blogspot.com/2008_11_01_archive.html#5663761509597831876

sunnudagur, 16. nóvember 2008

Rafmagn

Ekki veit ég hvað það er sem veldur þessum rafmagnstruflunum alls staðar þar sem við Dóra komum nærri. Eldavélin í Hólmgarðinum slær út ef við ætlum að nota hana - annars ekki, bílarnir verða ítrekað rafmagnslausir hjá okkur og þá helst þegar verst stendur á. Sá græni var steindauður á föstudaginn. Samt skipti ég um geymi fyrir þremur vikum síðan. Guðmundur Finnsson hefur haft í nógu að snúast vegna vandræðagangsins á okkur - enda í björgunarsveitinni.
Sögðum hingað og ekki lengra og keyptum nýjan/gamlan bíl - dökkgrænan picasso

sunnudagur, 9. nóvember 2008

Fundur í Kaupþingi 8. október 2008

Þessi fundur var tekinn upp með leynd.
http://www.youtube.com/watch?v=jsB2kJAlnN0

Af mótmælendum

Ég lét mig hafa það, þrátt fyrir hættu á mannorðsmissi, að fara á Austurvöll í gær og taka þátt í mótmælum. Þarna var samankominn fjöldinn allur af skríl. Sumt af þessu fólki var enn í barnavögnum og kerrum eða sat á öxlum foreldra sinna. Þarna var einnig roskið fólk og ráðsett að sjá, þó að vafalaust blundi í því löngun til skrílsláta. Ræður voru flutta en ég heyrði nú ekki vel hvað sagt var - þar er mér nóg að vita tilefnið.
Einhverjir höfðu, jú, farið til mæðrastyrksnefndar og orðið sér úti um egg til að gefa þingmönnum. Þeir eru bara svo lélegir í að grípa.

mánudagur, 3. nóvember 2008

Kvitta

Það er nú ekki í frásögur færandi að segja frá því að við Dóra vorum í Reykjavík um helgina. Það er alltaf þetta span á okkur. Vorum á sömu slóðum helgina áður. Þá útskrifaðist Oddný úr HÍ - kominn tími til. Ég held ég þekki engan sem eytt hefur meiri orku í BA verkefni - hefur unnið að þessu undanfarinn áratug eða svo.
Vorum að fúga milli gólfflísa á baði. Gott ef við verðum ekki álíka lengi að klára þetta bað eins og Oddný BA verkefnið.
Við hittum Heiðu og syni á skæpinu. Þau láta ekkert illa af sér þrátt fyrir gengisfall Íslendinga í Danmark.
Ég eyði reyndar of miklum tíma í vangaveltur yfir efnahagsástandinu. Stefni samt að því að reyna að ná áttum.

fimmtudagur, 23. október 2008

Ég tek á mig sökina

Ég lýsi því hér með yfir að sökin er mín! Ég hefði átt að setja mig betur inn í málin og vara við því í tíma sem öllum heilvita mönnum, hvað þá mér, hefði átt að vera augljóst að var í vændum. Ég var að vísu að væla um að ég væri hættur að skilja þetta sem flestir þóttust skilja. Þetta var í mínum huga ruglingslegra en að vera í hassvímu í hippaorgíu um 1970 - hver var með hverjum, hver hafði verið með hverjum og hver ætlaði að vera með hverjum? Hvernig á svo að vera hægt að feðra börnin? Genapróf ná þessu ekki.
En þar sem ég tók ekki af skarið og varaði ekki við þeim óhöppum sem af þessu öllu gæti hlotist, lýsi ég mig sekan.

Ef einhver er þarna úti þá má hann/hún alveg skamma mig. Það er búið að opna á komment.

miðvikudagur, 22. október 2008

Kjaftstopp

Æi, maður er eitthvað svo kjaftstopp þessa dagana. Allir aðrir virðast haldnir óstöðvandi skrifræpu um efnahagsástandið; hverjum sé um að kenna og allt það sem því fylgir. Menn munu halda áfram að kjafta sig frá kjarna málsins: Hverjir sköpuðu aðstæðurnar og regluleysisverkið sem gerði Ísland berskjaldaðra en önnur lönd. Ég er nokkuð viss um að eftir ár verða sömu aðilar og komu okkur á þennan kalda klaka búnir að eignast það bitastæðasta úr þrotabúinu Íslandi - og Sjálfstæðisflokkurinn enn við völd.

laugardagur, 18. október 2008

Nú er hún Nonnabúð stekkur....

Um síðustu helgi fór seinni hluti Heiðu-fjölskyldu af landi brott til Köben. Vonandi verður Íslendingum óhætt í Danmörku þrátt fyrir óáran í efnahagsumhverfinu hér heima og að Íslendingar séu orðnir að aðhlátursefni fyrrum viðhlægjenda sinna.
Guðjón búinn að verja lokaverkefnið sitt í verkfræðinni og mér skilst að hann haldi áfram að vinna að því fyrir danskar krónur.
Þessi helgi er nokkuð sérstök fyrir þær sakir að við Dóra erum stödd á Varmalandi á laugardegi. Við fórum reyndar til Reykjavíkur í gær, föstudag, og útréttuðum helling en drifum okkur síðan aftur uppeftir.
Bergrún er búin að spila á tvennum tónleikum á "Erveifs".
Þannig er nú staðan...

laugardagur, 11. október 2008

Af víxlurum

Það hefur verið athyglisvert og að flestu leyti ánægjulegt að horfa á dauðateygjur nýfrjálshyggjunnar. Fyrir áhættufælna aumingja eins og okkur Dóru er það hins vegar nokkuð áfall að átta sig á því að einhverjir auðmenn hafa notað nöfnin okkar sem samþykkjendur á víxla sem nú virðast vera að falla - og allt löglegt....!

sunnudagur, 28. september 2008

Barnalán

Það er ekki á hverjum degi sem öll börn og barnabörn okkar Dóru eru hér á landinu - þannig er staðan þó nú um stundir. Í gær var var Heiða hjá okkur mestallan daginn með báða strákana og okkur lánaðist reyndar að hafa þá svolítið út fyrir okkur stund og stund. Ég fékk meira að segja að skipta um kúkableyju.
Í dag á að skíra. Það verður gert í Bústaðakirkju. Það er skíðapresturinn Pálmi sem sér um það. Heitir hann ekki örugglega Pálmi?...

miðvikudagur, 24. september 2008

Af siglingum

Það var grannt fylgst með ferjusiglingum milli landa síðustu dægrin. Heiða var á leiðinni með Norrænu frá Danmörku - og allt hennar fylgdarlið. Mikið rýnt í veðurspákort og áhyggjur uppi um sjóveiki og aðra kvilla sem fylgt geta því að sigla í kjölfar forfeðranna. Sem betur fer hafa vélar tekið við af frumstæðum þverseglabúnaði - sem gat valdið margra vikna hrakningum og jafnvel því að ferðalangar yrðu afturreka.
Allt fór þetta nú blessunarlega. Fjölskyldan stigin á feðra grund og dvelur, þegar þetta er skráð, í góðu yfirlæti hjá Sollu vinkonu á Sauðárkróki.

Um helgina stefnir svo í skírn.

miðvikudagur, 17. september 2008

Göngur og réttir

Réttað var í Þverárhlíðarrétt síðastliðinn mánudag. Þarna var samankominn fjöldi fjár, enda er þetta fjárflesta rétt landsins. Þegar vel heimtist getur fjöldinn farið upp undir 20.000. Svo var að þessu sinni.
Þarna var líka fjöldi fólks sem naut þess að ösla drulluna í almenningnum upp á mið læri - það rigndi vel annað slagið.
Ölvun og óspektir voru í algjöru lágmarki, en maður sá einstaka rollubrjálæðinga taka rokur. Þetta geta verið hinir mestu geðprýðismenn sem missa sig í æsing og læti þegar kindur eru annars vegar. Kindurnar voru hins vegar stilltar og prúðar - ég tala nú ekki um lömbin.

fimmtudagur, 11. september 2008

Sílaminni

Í þessari á - sem sumir myndu kalla læk - veiddi ég helling af sílum þegar ég var smá strumpur. Veiðarfærið var tvinni með bognum títiprjóni á. Í dag eru títiprjónar ónothæfir til slíks -það er ekki hægt að beygja þá.
Veiðin var steikt á pönnu og étin.

Þetta er auðvitað Moshlíðaráin. Ég fór þangað uppeftir um síðustu helgi og rifjaði upp nokkur staðfræðileg atriði með Hrefnu systur. Hún var auðvitað svo lítil greyið þegar við fluttum frá Moshlíð að hún man ósköp takmarkað. Ég hef reyndar rekið mig á það hjá Fríðu systur að hún man nánast ekkert frá Moshlíðarárunum og er hún þó tveimur árum eldri en ég.

Þetta stafar kannski af því að hún hefur ekki tekið lýsi síðustu áratugina.




miðvikudagur, 10. september 2008

Af klerkum og kirkjum

Um helgina fórum við Dóra með Hrefnu og Gumma á 100 ára afmælishátíð Brjánslækjarkirkju. Hittum þar fjöldann allan af ættingum og kunnuglegu fólki. Þar á meðal voru þeir séra Lárus Halldórsson og Tómas Guðmundsson. Sá fyrri skírði mig en hinn seinni fermdi. Lárus er 88 ára gamall. Hann vígðist 25 ára til Flateyjarprestakalls og þjónaði kirkjunum á Barðaströndinni, líklega frá 1945 - 1955. Þessi aldni klerkur er enn eldhress andlega og líkamlega. Hann predikaði í hátíðarmessunni og gerði það með glans - engin skrifuð ræða.
Þegar hann var að stíga sín fyrstu spor vestra sem prestur þótti hinum rosknari hann vera heldur strákslegur og ekki hafa á sér hinn tilhlýðilega virðuleikablæ sem sæmdi stöðunni. Aðrir höfðu á honum mikið dálæti - þar á meðal mamma gamla.

miðvikudagur, 3. september 2008

Af hornsílaveiðum

Það var blíðskaparveður í dag. Þegar þannig viðrar er alveg tilvalið að fara á hornsílaveiðar. Ég fór því með bekkinn minn niður að Norðurá með veiðigræjur og ílát - við hreinlega mokuðum upp fiski.
Fyrir veiði í ánni greiða feitir bankakallar tugþúsundir, gott ef ekki hundruð þúsunda, á dag - við borguðum ekki neitt, enda stálumst við. Gerðumst auk þess lögbrjótar á þann hátt að fara yfir einkalandareignir einhverra lögfræðinga - eða voru það tannlæknar?
Það er mikilvægt að kenna börnunum að bera hæfilega mikla virðingu fyrir auðmannaeinkarétti. Og ég er fullviss um að krakkarnir voru ekki síður ánægð með ferðina og veiðina en þessir hundraðþúsundkallar.

sunnudagur, 31. ágúst 2008

Af baksýnisspegli

Í augnablikinu erum við að steikja kjöt. Fyrir dyrum stendur að gera við baksýnisspegil. Gott að hafa baksýnisspegil í lagi, þá sér maður betur hvað er að baki. Í gær vorum við Dóra t.d. í Keflavík að ganga fra lausum endum eftir búferlaflutninga tengdamömmu. Þar var Oddný einnig, röggsöm að vanda. Skrapp í Kolaportið áðan og keypti part af ýsukvóta landsmanna - sem aðeins útvaldir hafa þó leyfi til að veiða.
Ég fylgdist ekki með heimkomu handboltaliðs. Fannst allt tilstandið hræðilega væmið og yfirgengilegt. Líklega er ég einn um þetta.

Set hér mynd af tengdamömmu í tilefni af flutningunum. Hér er hún á góðum degi fyrir utan Hvids Vinstue í Köben.

sunnudagur, 24. ágúst 2008

Af hreppaflutningum

Eftir snarpan bardaga við húsgögn og aðskiljanlega heimilishluti liggur Framnesvegur 15 í valnum, hroðinn öllum veldistáknum.
Bardaginn hófst upp úr kl. 18 á föstudag og stóð fram á laugardagskvöld. Stórskotaliðið, sem samanstóð af flutningabílstjóra og aðstoðarmanni, Oddnýju, Dóru og okkur feðgum. Stórflutningarnir kláruðust á tveimur tímum en þá runnum við feðgar af hólmi því að Andri þurfti að mæta til vinnu við að halda beinni útsendingu við á netinu. Í flýtinum stakk ég af með lyklana að nýja húsnæðinu og olli með því vandræðum. Mætti aftur á svæðið kl. 10 á laugardag og við Dóra komum svo heim um kl. 22 um kvöldið.
Heyrðum sprengigný frá flugeldasýningu en fórum ekki á vettvang.
Bæði Andri og Bergrún tóku þátt í tónlistaratriðum á Menningarnótt, en það fór að sjálfsögðu fram hjá okkur.
Fórum reyndar á flotta tónleika hjá Vonderbrassinu á mánudagskvöldið.

miðvikudagur, 20. ágúst 2008

Í sannleika sagt

Við höfum verið á ferðinni undanfarna daga - ýmist á leiðinni til Reykjavíkur eða til Varmalands, stundum með útúrdúrum að Borðeyri eða til Keflavíkur.
Bergrún er komin heim og Vonderbrassið hélt tónleika í Hafnarfirði á mánudagskvöldið - fullt hús og flottir tónleikar.
Svo eru það haustverkin (hausverkin). Að undirbúa sig undir kennslu vetrarins. Það er allt að koma. Um helgina flytjum við tengdamömmu í annað menningarumhverfi - úr Keflavík til Njarðvíkur.
Það fer einnig dágóð orka í að fylgjast með íþróttaviðburðum og ekki síður pólitíkinni. Reykjavíkurpólitíkinni má helst líkja við hnefaleikakeppni eða skotgrafahernað þar sem liðhlaupar setja mark sitt á gang mála.
Sannleikurinn tekur svo mið af aðstæðum.

sunnudagur, 10. ágúst 2008

Lengra, hærra, hraðar!

Aldrei hefur ganga samkynhneygðra verið stærri eða glæsilegri! Aldrei hefur fleira fólk lagt leið sína á Dalvík til að sötra fiskisúpu! Aldrei hafa menn grætt jafn mikið og tapað jafn miklu! Aldrei hefur hitinn verið meiri og sólarstundirnar fleiri!
Svona gæti maður haldið lengi áfram.
Aldrei hef ég séð aðalbláberjalyng ver farið en einmitt á þeim stað sem ég var búinn að hugsa mér að moka berjum upp í kílóavís. Líklega á lyngormur stærstu sökina. Við Dóra vorum mætt á svæðið vopnuð berjaílátum - en líklega var meira um lyngorm en ber.
Þannig fór það nú. Ég fann reyndar þónokkuð af aðalbláberjum upp á Grjóthálsi um daginn þegar við Terje mágur minn fórum að veiða í Fiskivatni. Veiðin var ekki mikil (einn á mann) en ég át því meira af berjum. Aldrei hefur meira verið étið af berjum í veiðiferð!

sunnudagur, 3. ágúst 2008

Helgi allra helga

Merkilegt fyrirbæri þessi verslunarmannahelgi. Árlega lætur fólk plata sig til að æða á hina ýmsustu staði, að sögn til að skemmta sér. Það minnir mig nú á stúlkuna sem var að læra íslensku (fyrir erlenda stúdenta) hjá Guðna Kolbeinssyni. Að sögn Guðna var það verkefni nemenda í einum tímanum að segja frá því hvað þeir hefðu gert um helgina. Stúlkunni sagðist svona frá: "Ég fór út að skemma mig". Guðni bætti því við að sér hefði þótt það mjög sennilegt, "því hún var mjög glyðruleg og virtist nokkuð lausgyrt".
Baggalútur virðist hafa fangað stemminguna (sumir skrifa stemningu) á þessum svokölluðu útihátíðum sem tröllríða samfelaginu, í umtöluðum texta.
Fyrstu fréttir af öllum útihátíðum verslunarmannahelgna eru ætíð þær sömu; aldrei hafa fleiri mætt, veðrið er bara ágætt - ef ekki frábært og allt hefur farið vel fram. Siðan fara að síast fram fréttir af fíkniefnamálum, foknum tjöldum, ofbeldisverkum af ýmsu tagi - ekki síst nauðgunum.
Ekki fælir þetta fólk frá því að endurtaka leikinn að ári og sumir hlakka óskaplega til.
Ég tók reyndar þátt í þessu þegar heimurinn var yngri.

miðvikudagur, 30. júlí 2008

Lentur - fyrir nokkru

Í Nýhöfninni í Köben var hér áður fyrr stundað sukk og svínarí. Þar heimsóttu gleðimenn gleðikonur og drukku sig fulla og vitlausa. Myndin hér til hliðar er ekki af slíkum kvensum, heldur er hér um að ræða tengdamóður mína og eiginkonu
Það var að ýmsu leyti bara hressandi að stíga aftur á íslenska grund eftir hitakóf í Köbenhavn. Farþegum var smalað út úr flugvélinni, niður á rennvott malbikið, beint út í rok og rigningu. Iceland Express virðist vera hætt að nota landgöngurana - kannski í sparnaðarskyni.

Svo leitar allt í sama veðurfarið og við þóttumst leggja að baki þegar við yfirgáfum K - heitt í dag, heitt í gær, heitt á morgun.

Ranka systir og karlpeningur fjölskyldunnar er í heimsókn á Íslandi og einnig Hjörtur bróðir. Í dag á pabbi gamli afmæli - er orðinn 82 ára.

laugardagur, 12. júlí 2008

Lítill kall

Þessi litli kall kom í heiminn í nótt, hress og heilbrigður. Það er ekkert smáræðis afrek og eðlilegt að maður þurfi að hvíla sig vel eftir slíka ferð.

Eftir að hafa skoðað fyrstu myndirnar af ferðalanginum er nokkuð ljóst að hann líkist pabba sínum þónokkuð.
Ég er þó ekki frá því að hann líkist mömmu sinni ekki síður.

Það sem máli skiptir er samt það að hann er heppinn með foreldra.

Fæðing

Í nótt varð þessi pjakkur bróðir - stóribróðir.
Heiða átti afmæli í gær - varð 29 ára. Þegar ég talaði við hana í gærmorgun var hún á leiðinni inn í Lyngby, eitthvað að snúast. Hún var farin að hafa áhyggjur af því að tengdamamma, sem hefur staðið fæðingarvaktina síðustu daga, þyrfti að fara heim til Íslands áður en strákur birtist.
Seinni partinn hófst svo aðdragandi þess sem nú er orðin staðreynd. Það fæddist sonur, 13 merkur og 51 sentimetri, kl. 3:33 að dönskum tíma.
Þar bættist við barnabarn nr. tvö í safnið okkar Dóru. Jafnframt er þetta annað barnabarnabarn Steinunnar tengdamömmu.
Þetta er reyndar áttunda barnabarnabarn pabba og mömmu - allt strákar!

fimmtudagur, 10. júlí 2008

Sól


Við Hreðavatn

Það nær auðvitað engri átt að hanga hérna í Reykjavík meðan sólin bakar Borgfirðinga sem aldrei fyrr. Það er samt óþarfi að kvarta yfir veðrinu hér á malbikinu, það hitnar vel yfir hádaginn.
Pabbi nýtir sér vel nýja tryllitækið, rafmagnsskutluna. Mér sýnist á öllu að hann hafi meira gagn af henni en bílnum. Hann eyðir löngum stundum útivið í góðviðrinu - eitthvað sem hann var hættur að geta áður en hún kom til sögunnar.
Nú er Dóra stungin af upp í Borgarfjörð. Hún skildi mig eftir, einn og yfirgefinn. Bergrún er reyndar enn hér heima en fer á morgun utan - seinna en áætlað var vegna veikinda Bjarkar.
Á þriðjudaginn förum við Dóra til Köben að hitta Heiðu og strákana.

miðvikudagur, 9. júlí 2008

Málið

Vignir pípari hefur verið iðinn við að bora og brjóta í Hólmgarðinum þessa síðustu daga (hljómar eins og von sé á ragnarökum). Málið er að koma upp almennilegu baðherbergi í stað litlu skonsunnar. Til þess að koma upp baðherbergi þarf að brjóta og bora og leggja nýjar lagnir. Þetta hefst á endanum.
Í gær stóðum við fyrir utan Dómsmálaráðuneytið, ásamt öðrum stórmennum, óhress með meðferðina á Ramses.
Fórum í sund og elduðum mat. Bergrún og Andri hjálpuðu okkur við átið.
Í dag var meiningin að fara að mála girðinguna. Björn á neðri hæðinni (hann geymir þar búslóðina sína) er búinn að boða komu sína með málningu.

sunnudagur, 6. júlí 2008

Alveg bit

Ég fór í veiðiferð í gær. Gekk upp með Gljúfurá þar sem hún beygir inn á heiðarnar - hún rennur þar í gegnum þrjú eða fjögur vötn. Þetta er óraleið. Ég myndi giska á að þriggja tíma gangur sé upp að næstefsta vatninu. Ég var meira og minna á röltinu frá kl. 12:00 til 21:00, því flugnagerið var svo ágengt að maður hafðist ekki við - sjaldan lent í öðru eins. Ég er með á að giska 150 flugnabit viðsvegar um skrokkinn, flest þó í andliti, hálsi og á bak við eyru.
Þarna er nógur fiskur, myndarlegur urriði, frá einu og hálfu upp í fjögur pund. Veiddi sex en missti eina fimm eftir snarpar viðureignir. Þetta var tóm sæla - að frátöldu mýinu.
Dóra kom með mér áleiðis og sótti mig svo um kvöldið. Hún hafði lítið um veiðina að segja annað en það hvort ég ætlaði að éta þennan fisk. Urriði er reyndar ekki minn uppáhalds fiskur.
Við erum sem sagt á Varmalandi ásamt þeim Steinunni og Oddnýju.
Andri var á Siglufirði um helgina - að syngja á þjóðlagahátíð. Heiða er búin að fá tengdamömmu í heimsókn til Köben - það styttist í strák númer tvö - og Bergrún æfir sig fyrir næstu tónleikasyrpu og hljóðfærapróf á mánudag.
Í dag er heiðskírt, logn og 20 stiga hiti þegar þetta er skráð - kl. 9:30.

fimmtudagur, 3. júlí 2008

Stöðulýsing

Nú líður óðum að því að Heiða eignist sitt annað barn, sem jafnframt verður barnabarn okkar númer tvö. Áætlaður komutími þess er 15. júlí. Skarphéðinn mátti ekki vera að því að slíku hangsi og kom 10 dögum fyrr en honum var spáð, svo að fólk er við öllu búið.
Við höldum okkur samt við að fara utan þann 15.
Við sitjum sem fastast hér í Hólmgarðinum en ætlum að skreppa í stutta ferð upp að Varmalandi á morgun og koma til baka á sunnudag.
Við höfum verið að bera okkur til við að mála. Dóra er búin að lakka gólfið í þvottahúsinu og í gær var tekið til við útimálningu - þess vegna rignir í dag!
Ég er mikið með nefið í dyragættinni hjá pabba og mömmu því Hrefna er í hálfsmánaðar fríi úr Hólaberginu.
Björk aflýsti einum tónleikum á Bretlandi svo að Bergrún fer ekki utan fyrr en á miðvikudaginn og þá til Finnlands. Við verðum svo laus við hana fram yfir miðjan ágúst, þá fer hún í Listaháskólann, í áframhaldandi hornleikaranám.

laugardagur, 28. júní 2008

Ó! náttúra

Gærdagurinn hófst hjá okkur Dóru með sundlaugarferð - sem er ekki í frásögur færandi - en síðan skiptum við okkur niður á foreldra okkar; hún fór í Keflavík að sækja mömmu sína en ég snérist eitthvað í kringum mína.
Fór að skoða rafskutlur og festi eina. Þetta eru ekki viðbrögð við 17. júní boðskap Geirs (sem lækkaði innflutningsgjöld af stórum, eyðslufrekum bílum - til að jafnræðis væri gætt - fyrir stuttu síðan, en vill nú að landinn aki spart), heldur þáttur í að gera pabba kleift að stunda útiveru. Ég sé ekki fyrir mér að mamma verði mikið á ferðinni á tækinu - en hver veit!
Í dag, eða öllu heldur í kvöld er það Laugardalurinn sem lokkar. Þar verður Bergrún að spila með Björk og Vonderbrassinu hennar. Við höfum ekki heyrt í þeim síðan í apríl í fyrra.
Annars er bara málið að njóta veðurblíðunnar - Ísland er búið að vera sannkallað sólarland. Skil ekkert í fólki að vera að æða á erlendar sólastrendur meðan sólin er hæst á lofti hér heima.

föstudagur, 27. júní 2008

Af rembingi o.fl.

Í fyrradag skruppum við aftur á Borðeyri. Í þetta sinn tókum við mömmu og pabba með. Mig grunar að ferðum þeirra þangað norður fari að fækka. Þau eru orðin svoddan skör - standa varla lengur í fæturna. Þeim þótti samt sem áður varið í að endurnýja kynnin og sjá sjóinn og fuglinn.

Ég rakst á sögu úr Hrútafirði á bloggsíðunni hans Guðmundar Gunnarssonar. Hún tengist Borðeyri og er svona:

Karlrembingurinn var allsráðandi hér á árum áður. Ofarlega er sagan úr Hrútafirði þar sem húsbóndinn á heimilinu lá rúmfastur í einhverri pest og sendi konuna með bréfsnifsi yfir ísilagðan fjörðinn til kaupfélagsstjórann á Borðeyri. Ólæs konan rétti kaupfélagsstjóranum miðann með úttektarbeiðni bóndans; „Ég kemst nú ekki sjálfur til þín til þess að slá úr nokkrum staupum með þér núna, svo ég sendi konuna og ég bið þig náðarsamlegast að láta hana hafa einn pott af brennivínu og smávegis af tóbaki. En þar sem ísinn á firðinum er svo ótraustur sendi ég ekki peninga með konunni og vænti þess að þú skrifir þetta hjá mér.“

Í gær kom Bergrún heim frá París - en fer fljótlega aftur á flakk - líklega á mánudaginn.

mánudagur, 23. júní 2008

Aftur gengið

Hólmavatn

Við gengum frá Stóru-Skógum að Stapaseli í gær. Fram og til baka tók þetta okkur u.þ.b. þrjár klukkustundir með viðeigandi nestisstoppi í Stapaseli. Stapasel er eyðibýli norðan Norðurár, nokkru neðar en Hreðavatn. Á þessu svæði er landið vaxið birkikjarri, sundurslitið af mýrarsundum, vötnum, tjörnum og lágum klettásum. Stapaselið dregur væntanlega nafn sitt af klettastapa, en bærinn stóð á hól undir honum. Ég kom þarna inneftir fyrir tuttugu árum síðan og þá var erindið að setja niður trjáplöntur í bæjarlandið. Ekki er ég nú svo viss um að það hafi verið góð hugmynd. Þær eru fremur umkomulausar og harðlífislegar að sjá, og ekki er ég viss um að það standist nútíma friðunarkröfur að planta trjám við gamlar húsatæftur. En leiðin inneftir er einstaklega falleg.


Fórum á Borðeyri til að líta eftir húsi og slá blettinn.

laugardagur, 21. júní 2008

Af göngu

Silla vinkona plataði okkur Dóru í sólstöðugöngu úr Brynjudal í Botnsdal í gær. Við létum til leiðast með það í huga að nóg væri af lækna- og hjúkrunarliði með í för ef illa færi, því þarna var starfsfólk Landspítalans á ferð, líklega um tvöhundruð manns. Ég hélt að þarna væri um fimm tíma göngu að ræða, en leiðin var farin á rúmum þremur tímum. Veðrið gat ekki verið betra, sólskin og blíða og ekki skýhnoðri á himni. Fórum af stað að heiman um fimmleytið og vorum komin til baka um kl. tólf.

Engar harðsperrur enn sem komið er.

Mjög gaman. Takk Silla mín!

föstudagur, 20. júní 2008

Náttúrulega

Glanni

Refaskytta héraðsins, Magnús á Hamraendum, stendur í svo ströngu þessa dagana að það horfir til útrýmingar melrakkastofnsins á svæðinu. Hann er búinn að vinna tvö greni hér í nágrenninu á síðustu dögum og skjóta eitt hlaupadýr sem hann rakst á á förnum vegi. Gott að hann skýtur ekki birni - þá væri ég varla á lífi. Og síðustu fréttir segja frá meintum ísbirni á Hveravallasvæðinu. Það væri frábært ef satt reyndist, þá væri þríleikurinn fullkomnaður.


Af börnunum er það helst að frétta að Bergrún tekur nú þátt í norrænu hornaþingi í Reykjavík. 17. júní fólst m.a. í því að sækja tvo blinda blásara á völlinn og lóðsa þá á áfangastað. Ég sé hana fyrir mér standa í móttökunni með spjald "Hornfest" og bíða eftir því að þeir aulist til að lesa á miðann!

Heiða er orðin æði framsett og Skarphéðinn tók upp á því að fá hlaupabóluna, einmitt þegar verkfalli fóstra lauk. Og Andri hefur fækkað í kattastofni sínum - á samt 2 kettlinga sem auglýsa hér með eftir heimili.

Ráðlegg ykkur að rifja upp part úr Löðri til að koma hláturhrukkunum á sinn stað á andlitinu: http://youtube.com/watch?v=DwDbd4jQpkA&feature=related

þriðjudagur, 17. júní 2008

17. júní 2008


Er þessa stundina staddur í Reykjavík og er svosem ekkert að gera neitt merkilegt utan það að horfa á fótbolta. Nennti ekki í bæinn og Dóra í Keflavík að heimsækja mömmu sína. Var í Hólaberginu í dag að kjafta og éta pönnukökur.

Áðan var ég að hlusta á Vonderbrassið rifja upp ævintýri úr hljómleikaferðalögum. Þennan þátt má hlusta á ef maður smellir á: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4408791. Bergrún kemur þar einhvers staðar við sögu. Hún er þessi lengst til vinstri.

Núna ætla ég samt að horfa eilítið meira á fótbolta. Það eru mínir menn, Hollendingarnir með varaliðið sitt gegn Rúmenum.

föstudagur, 13. júní 2008

Af sólbruna

Það var alveg frábært veður í dag, föstudag. 16 - 17 stiga hiti og staðurinn, Varmaland, stóð fyllilega undir nafni og vel það. Við Dóra gengum á Stafholtsfell (eða fjall). Það var nú fremur létt ganga, jafnvel fyrir silakeppi. Okkur dvaldist þar nokkuð, enda veðurblíða. Þaðan sér til a.m.k. átta kirkna - jafnvel níu - og fimm jökla. Við fórum síðan beint í sundlaugina þegar við komum heim. Erum núna nokkuð rauð í andliti.

Myndin hér er aftur á móti laugardagsmynd, tekin í Paradís við Norðurá, rétt fyrir neðan Glanna.

Af eggjum

Í gær smakkaði ég gæsaregg í fyrsta sinn á ævinni. Eggin sem um ræðir voru ættuð frá Auðkúlu úr varpi Hildigunnar frænku. Hún verpti ekki þessum eggjum, svo það misskiljist ekki, enda er konan engin gæs, heldur er hún æðarræktandi af guðs náð, eins og hún á ættir og uppruna til. Þau hjónin, Hreinn og hún, eru samhent í þessari iðju; hún vaktar varpið að degi til en hann situr yfir því um nætur með haglabyssuna, tilbúinn að freta á melrakka og önnur þau rándýr sem sækja í góðgætið.
En aftur að gæsaeggjunum. Furðulegt að hafa aldrei smakkað þau áður. Þetta er herramannsmatur. Hér áður át maður mikið af kríueggjum - enda mikið kríuvarp fyrir neðan Moshlíð - auk æðar- og svartbakseggja úr Engey og Hergilseyjarlöndum.
Annað mál er, að það er staðreynd, að hvergi er fallegra á Íslandi en í Vestureyjum og Vatnsfirði á vordögum. (Þetta er bara stuðlað).

fimmtudagur, 12. júní 2008

Sumarið er tími ferðalaga. Það hentar mjög vel innanlands því þá er oftast snjóléttara en að vetrarlagi og yfirleitt hægt að ganga að því nokkuð vísu að fjallvegir séu opnir. Fólk sækist víst eftir ferðalögum og hótelgistingum jafnt á sumri sem vetri. Ég sá um daginn að gamall samherji minn úr bæjarpólitík fékk bókaða á sig glósu á bæjarráðsfundi, sem hún situr fyrir minnihlutann, fyrir að mæta ekki á þing Sambands sveitarfélaga "af því að ekki voru nein ferðalög í boði". Þennan dag var hún reyndar stödd á eins konar hóteli. Hún var að eignast barn á fæðingardeildinni í Keflavík.
Í dag ferðuðumst við upp að Varmalandi. Þar er blíðskapar veður og Máni fagnaði komu okkar vel og lengi.

Svo er það fótboltinn. Dóra er ekki fótboltafrík! Fyrir slík ekkifrík þarf sterk bein til að þola Evrópukeppni.

miðvikudagur, 11. júní 2008

Frá Suðurnesjum

Við Dóra brugðum okkur í Vogana í gær. Vísiteruðum skólann og föðmuðum allmarga gamla starfsfélaga. Síðan lá leiðin inn á Strönd til að bera á trjáplöntur á þessum bletti sem við eigum þar. Það var gott veður. Heimsóttum Höllu sem bauð í mat. Halla hafði frétt af okkur á svæðinu, farið í leitarleiðangur, líklega á sama tíma og við bönkuðum árangurslaust uppá hjá henni - hún fann okkur með hjálp síma. Guðný, gamla matráðskonan mín, var kölluð á svæðið til að berja þessi viðundur augum. Heimsóttum kirkjugarðinn í Njarðvík og hreinsuðum leiði og lukum deginum með að taka á móti Steinunni, Oddnýju og Úu sem voru að koma frá Kanarí.

mánudagur, 9. júní 2008

Á rásinni

Þá er maður kominn í frí! Hvað er þá til ráða? Verður maður ekki að gera eitthvað merkilegt í fríi? Að vísu bjargar Evrópukeppnin í fótbolta einhverju og auk þess bíða fjöldamörg viðhaldsverkefni þess að í þau sé ráðist, veiðistengur rykfalla, veiðihjól ryðga og maður verður barasta aumur í baki af of miklum setum - og legum í sófa.
Ég hef samt haft nóg að gera við að ganga frá einhverju skýrsludóti - tók það að mér. Flestir úr kennarayfirliðinu fóru til Englands í svokallaða námsferð. En þið vitið nú eins vel og ég út á hvað slíkar ferðir ganga - við Dóra kusum að taka ekki þátt í þeirri vitleysu.
Starfsárinu lauk með glæsilegri veislu sem skólastýran okkar bauð til en síðan brunuðum við Dóra til Reykjavíkur þar sem Dóra fór í eitthvað kellingapartý - þar voru skólasystur úr Njarðvík samankomnar til að bera saman háralit og vambsídd. Ég held að þetta hafi bara verið upplyfting fyrir Dóru.
Hittum Bergrúnu auðvitað, og Andra sem sagði farir sínar ekki sléttar. Var bara illa farinn eftir líkamsárás á sínu eigin heimili. Árásaraðilinn, villt fress, náði að slasa einkasoninn - hann var allur rifinn og klóraður (ég hef bara ekki séð það verra). Hann fór sem, betur fer, á slysavarðstofuna og békk sprautu og penzilín. Annars er líðan okkar allra eftir atvikum.

föstudagur, 30. maí 2008

Af útiverkjum


Myndin sýnir dæmigerðan starfsmannafund í Varmalandsskóla.

Þegar þetta er ritað sit ég einn heima. Dóra stungin af til höfuðborgarinnar og ég veit ekkert hvenær hún kemur til baka.
Undanfarna daga hefur útiverkum verið sinnt af miklum krafti hér á Varmalandinu - enda veðrið til þess.
Á þriðjudaginn varð nemendum 5. og 6. bekkjar gengið upp á Hraunsnefsöxl. Það er u.þ.b. 400 metra hár fjallkambur í Norðurárdal. Þann dag datt veðurguðunum reyndar í hug að beina allri þeirri vætu og þeim vindum sem Borgarfirðinum var ætlað á það svæði. Við létum það samt ekkert á okkur bíta. Á miðvikudaginn var höfuðborgarsvæðið heimsótt og m.a. farið í sjóferð út á Faxaflóa, landnámssýningu, hamborgarastað og í bíó. Við sáum Indiana Jones. Merkilegt hvernig þessum grafarræningja tekst að forðast blýkúlur, sprengingar (jafnvel kjarnorkusprengingar), náttúruhamfarir og dulin ógnaröfl. Að auki höfum við gróðursett trjáplöntur, staðið af okkur jarðskjálfta og boðið sólinni birginn.
Núna er ég að fara yfir próf og vinnubækur. Ætli helgin fari ekki í það.

mánudagur, 26. maí 2008

Veiði

Í dag var veiðidagurinn mikli haldinn hátíðlegur með veiðiferð 4. - 6. bekkjar í Hreðavatn. Til að tryggja góðan afla lögðum við net í vatnið. Þetta tókst bara vel, krakkarnir lönduðu nokkrum silungum og í allt, með því sem var í netinu, veiddust 26 stykki. Svo var aflinn grillaður þegar heim kom - ásamt brauði.

Hérna er mynd af vænsta fiskinum, 3,5 punda bleykju.

föstudagur, 23. maí 2008

Fatast sund

Síðustu daga hefur Steinunn, tengdamamma, verið í heimsókn hjá okkur á Varmalandi. Í gærkvöld ókum við í Hrútafjörðinn til að ná í stígvél og veiðistengur. Á mánudaginn á nefnilega að fara í Hreðavatn í veiðiferð með nemendur. Til að tryggja veiði ætlum við að leggja net. Við Dóra skruppum á þriðjudaginn til Birgis og Gróu í Tröð til að kanna aðstæður í Hreðavatni.
Á Borðeyri er yfirleitt alltaf sama hitastigið. Mælirinn fyrir utan eldhúsgluggann sýnir alltaf 15 stig. Mælirinn inni stóð í 12 stigum. Mælirinn úti er gjarnan 4-5 stigum yfir raunhita.

Annars hefur þessi vika verið lögð að nokkru undir próf. Dóra tók á móti 5-6 ára krökkum í skólanum í gær og dag. Hún fór með þau í sund ásamt hjálparliði í morgun. Þurfti samt að stökkva út í (í öllum fötum) þegar einn krakkinn fór of djúpt. Þess vegna er farsíminn hennar með kvef sem stendur og líklega deyr hann úr lungnabólgu.
Í fyrramálið kemur Bergrún heim frá NY en Andri er enn í Póllandi.

mánudagur, 12. maí 2008

Bókun

Þessa helgi hef ég fyrst og fremst notað til að vera kvefaður. Dóra fór til Keflavíkur í gær, hvítasunnududag. Ég ætlaði svosem líka - tengdamamma bauð í mat - en þegar ég fæ kvef þá fylgir því slíkt nefrennsli að vel væri hægt að framleiða nokkur megavött ef virkjað væri. Ég sat, eða öllu heldur lá heima og snítti mér. Nú er annar í hvítasunnu og við erum búin að hitta Heiðu og & á skæpinu og Dóra er búin fá tölvusend blóm frá Bergrúnu, í tilefni að mæðradeginum (sem var í gær). Kvefinu virðist eitthvað að slota. Það er hlýtt úti 11 stiga hiti, í Köben var kominn 19 stiga hiti um 11 leytið en í NY er svipaður hiti og hérna, 11 stig en gæti farið upp í 13 yfir daginn.
Í gær bókuðum við flugfar, að sjálfsögðu til Kaupmannahafnar. Við reynum með því að vera nálæg þegar barnabarn nr. 2 kemur í heiminn - og kannski með það í huga að geta eitthvað aðstoðað.

Nú eru bara þrjár vikur eftir í kennslu. Þar af fara tvær vikur að einhverju leyti í prófavesen og leikaraskap með krakkana - síðan fáeinir dagar í frágang og eftir það er maður kominn í frí. Líklega verður að telja þetta fyrsta raunverulega, samfellda sumarfrí hjá mér um langt skeið því ég er blessunarlega laus við að vera skólastjóri - þeir eiga alla mína samúð.

föstudagur, 9. maí 2008

Uþþþvuþþ

Ég hefði átt að láta vera að tala mikið um vorkomu og gróandi tún í síðustu færslu. Heldurðu ekki að þetta ljóta, hvíta ullabjakk hafi farið að svífa til jarðar núna í morgun. Fyrst hélt ég auðvitað að þetta væri drit úr litlu fallegu smáfuglunum sem væru að hreiðra um sig í þakskegginu, en þegar betur var að gáð var þetta snjókoma. Auglýsi eftir glötuðu vori sem sást síðast seinni part fimmtudagsins 8. maí.

fimmtudagur, 8. maí 2008

Og það held ég nú

Nú líður óðum að lokum þessa skólaárs og þessa dagana er umhverfið óðum að skipta um lit, úr sinugulu yfir í græna slikju. Máni köttur er orðinn miklu duglegri að fara út. Hann þarf að kanna veiðilendurnar.
Við höldum uppteknum hætti og heimsækjum Reykjavík um helgar. En píparinn sem hafði góð orð um að taka til hendinni í íbúðinni flæmist enn undan sökum mikilla anna.
Bergrún gerði óvenju stuttan stans á Íslandi þetta sinnið. Hún náði heilum tveimur klukkustundum og nokkrum mínútum betur síðastliðinn mánudag, þegar hún hafði viðkomu á Keflavíkurvelli á leiðinni vestur um haf til New York. Þar verður hún út þennan mánuð.
Úr Köben eru bara góðar fréttir ef frá eru taldar umgangspestir sem hafa herjað á karlpeninginn á heimilinu í Herlev.
Á morgun er "starfsdagur" í skólanum (kominn tími til) og við því laus við nemendur. Svo er stefnan sett á að sjá hana Brák á laugardaginn í landnámssetrinu í Borgarnesi.

Þetta lamdnámssetur er hins vegar gert af nemendum í 5. bekk.

fimmtudagur, 1. maí 2008

Afturganga

Það var heilög athöfn hér áður fyrr að fara í kröfugöngu, eða það held ég. mér leið samt alltaf dálítið kjánalega þega menn fóru að syngja "Fram þjáðir menn í þúsund löndum." Mér fannst ég ekki vera svo þjáður, né þetta, að því er virtist, vel haldna fólk sem ég samferðaðist. Ég gekk m.a. nokkrar Keflavíkurgöngur (kannski voru þær bara tvær eða þrjár) og var nokkuð ánægður með að hafa lagt þetta á mig. Ég spurði einu sinni samstarfsmann minn, vinstri grænan eilífðarkomma, hvort hann hefði ekki gengið margar slíkar. "Jú", sagði hann, "og gekk þær flestar afturábak". Hann var nefnilega mikill gítarspilari og og gekk yfirleitt fremstur, eða framarlega og snéri á móti hópnum til að geta spilað og stjórnað söng. Hann var því eins konar afturganga(ri).

miðvikudagur, 30. apríl 2008

Göngulag

Þessa dagana heiðra þær Oddný og Úa okkur Varmlendingana með nærveru sinni. Því miður er Úa dálítið lasin. Annars er veðráttan frekar hryssingsleg, norðan nepja, gott ef ekki snjófjúk með köflum. Á morgun er 1. maí, verkalýðsdagurinn. Ekki á ég von á því að farið verði í miklar kröfugöngur hér í uppsveitum Borgarfjarðar. Reyndar á ég ekki von á því að fólk flykkist almennt í slíkar göngur, fólk leggur ekki lengur á sig gönguferðir af því taginu, nema auðvitað einhverjir masókistar. Fólk er duglegra að ganga á hraðastillanlegum göngufæriböndum innan dyra á þessum síðustu tímum. Einhverjum gæti þó dottið í hug að hafa með sér kröfuspjöld. Hvað er það sem gengur og gengur en færist þó ekki úr stað? Hér áður fyrr var svarið við gátunni klukka, nú er það; fólk sem stundar "ræktina".
Á fyrstu áratugum aldarinnar var barist fyrir því að sett yrðu vökulög, nú berjast bílstjórar fyrir því að vökulög verði afnumin. Kannski verður það aðal krafan á morgun!

þriðjudagur, 22. apríl 2008

Smá píp

Vissirðu að jórturdýr eru með fjögurra hólfa maga og að maður fer vissulega í geitarhús að leita ullar, dýrindis Kasmírullar? Í dag vorum við með kálf til sýnis í skólanum og nemendur velta fyrir sér ýmsu sem snýr að landbúnaði. Í gær skoðuðum við stærsta geitabú landsins, að Háafelli í Hvítársíðu, þar sem ríflegur fjórðungur íslenska geitastofnsins er til geitarhúsa.
Afkvæmi geita heita ekki geitungar!

Á morgun er svo ferðinni heitið að Reykhólum. Það verður reykspólað af stað að loknum morgunverði. Þar á að skemmta sér með jafnaldra nemendum úr öðrum skólum.

Nú er Vignir pípari vonandi byrjaður að bora í gegnum veggi og gólf í Hólmgarðinum. Hann ætlar að leggja með því grunn að nýju baðherbergi.

miðvikudagur, 16. apríl 2008

Af sinueldi

Það er vor í lofti. Ég fann það í gær þegar ég rak út nefið, að loftið var mengað vorboðanum ljúfa, reyk af sinueldi. Bændur eru farir að huga að vorverkum og eitt þeirra er að brenna sinu. Við þessa lykt blandast síðan mykjulyktin, sem auðvitað er líka ómissandi í þessa vorlyktarsynfóníu. Sinureykur vekur upp góðar minningar frá því þegar við strákarnir (stelpur komu þar auðvitað hvergi nærri) vorum að paufast með eldspýtustokk, úti í þurrum sinuflókum vestur á Patreksfirði, fyrir hart nær hálfri öld. Sinureykur vekur einnig upp minningar um Borgarfjörðinn eins og hann gerðist slæsilegastur fyrir tuttugu árum síðan - bláleitir reykjarbólstrarnir stigu þá hátt til himins á lygnum, sólríkum vordögum.
Lifi sinueldar og mykjulykt!

laugardagur, 12. apríl 2008

Púst

Í gær var að ljúka hálfsmánaðar valdaferli mínum í rúmlega hálfum Varmalandsskóla. Það er búið að vera ástand á stjórunum, annar á Alþingi en hinn að jafna sig eftir hnjáskiptaaðgerð. Reyndar varð ég lítið var við þyngsli af þessum sökum, hvorki líkamleg eða andleg, enda er starfsliðið afar sjálfbjarga og laust við vesen.
Hins vegar er sá græni (bíllinn) búinn að vera með vesen síðustu vikuna. Það endaði með því að í gær lét ég skera undan honum og skipta út rörum.

Í gærkvöld var Bergrún að spila í Manchester og framundan er álíka lúðralástur næstu vikurnar. Hin börnin er bara þæg og góð og haggast lítið úr sínu fasta fari. Mér skildist þó á henni Heiðu áðan að líklega færi hún á flóamarkað í dag. Vonandi sleppur hún við flóabit.

Á þessum árstíma vorum við Hafsteinn vanir að stunda rauðmagaveiði norður á Hofsósi, sælla minninga. Síðan þeirri útgerð lauk hefur mér ekki fundist vora almennilega.

Bátarnir á myndinni eru danskir og hafa örugglega aldrei kynnst þeirri fiskitegund.

miðvikudagur, 9. apríl 2008

Úr uppsveitum

Og ég sem hélt að það væri komið vor! Sólin komin hátt upp á himinhvelfinguna en samt sami kuldagjósturinn, frost og snjór. Annars er óþarfi að vera að kvarta yfir veðráttu.
Bergrún er að yfirgefa klakann enn og aftur. Kannski sjáum við hana ekki fyrr en í júní.
Tíðindi eru annars engin, þannig að það er óþarfi að vera að eyða plássi í eitthvað marklaust kjaftæði. Verst er að eini maðurinn hér um slóðir, sem hægt hefur verið að æsa upp með pólitískum olnbogaskotum, er í endurhæfingu í Hveragerði, hefur ekki sést síðan nokkru fyrir páska.

föstudagur, 4. apríl 2008

Höfuðsnillingur

Þetta er hann Andersen gamli. Þessi með H.Cið á undan. Við hittum hann á förnum vegi í miðbæ Óðinsvéa, sem danskir vilja kalla hinu einkennilega nafni Odense. Takið eftir aukahöfðinu sem kallinn hefur fyrir framan sig. Þegar hann var kominn með höfuðverk af næturlöngum vökum við krefjandi skriftir, þá skipti hann um höfuð og gat haldið áfram með ferskan koll og frumlegar hugmyndir. Svona nokkuð vildi ég hafa!
Reyndar öfundaði ég hann ekkert af því að þurfa að norpa þarna í nepjunni, berfættan og krókloppinn og hafa ekkert blað til að pára á, hvað þá tölvu. Þá er nú til lítils að hafa tvö hugsandi höfuð - rithamlaður og gott ef ekki kalinn inn að hjartarótum.

miðvikudagur, 2. apríl 2008

Af gaufskorti

Eftir stuttan skrepp til Reykjavíkur er Dóra komin til baka. Hún hafði miklar áhyggjur af þessum hálfa degi sem hún var frá vinnu. Ég held að það séu fyrstu forföllin hennar í vetur. Hún átti reyndar metið í mínum gamla skóla varðandi skort á forföllum. Stundum liðu einhver ár á milli.
Annars er skólinn fáliðaður af stjórnendum þessa dagana. Aðstoðarskólastjórinn lét skipta um hnjálið og verður frá fram til skólaloka og skólastýran farin á þing. Samt gengur allt sinn vanagang. Þetta sannar reyndar það sem mig hefur lengi grunað; ef einhverjir starfsmenn eru við skóla, sem enginn tekur eftir þó að hverfi, þá eru það skólastjórarnir. Þeirra starf er, í seinni tíð, meira og minna fólgið í einhverju gaufi, sem skrifræðið og fundafárið hefur innleitt. Látið mig þekkja þetta!

laugardagur, 29. mars 2008

Merkilegt - eða hvað?

Mér finnst einfaldlega tilheyra að setja eitthvað hér inn fyrst ég er á annað borð sestur við tölvu. Við erum stödd í Reykjavík þessa stundina, Dóra og ég. Komum hingað seinni partinn í gær. Búin að stússast í sundi og búðum, bæði fyrir okkur og mömmu og pabba. Líklega förum við á myndbandamarkaðinn á eftir og skoðum.
Veðrið er þokkalegt, kuldi, blástur og sól. Guðmundur Hermannsson verður væntanlega vindblásinn - hann gengur á Snæfellsjökul í dag. Það er partur af fjallgönguprógrammi sem endar með göngu á Hvannadalshnúk. Merkilegt hvað fólk getur haft mikla ánægju af að pína sig! Skil þetta ekki!
Förum upp í Borgarfjörð þegar kvöldar.

þriðjudagur, 25. mars 2008

Ekki fórum við yfir Strikið

Þá erum við komin heim eftir að hafa brugðið okkur í stutta ferð til Danmerkur. Brotthvarf okkar mátti heldur ekki lengra vera því að allt virtist ætla að sporðreisast í efnahagslífi landans þegar við slepptum fæti af skerinu. Með endurkomu okkar aftur á jakann virðast málin þokast aftur í jafnvægi. Undarlegt að greiningardeildir banka og hagspekingar skulu ekki hafa áttað sig á þessu samhengi.
Annars áttum við góða daga í Herlev. Veðráttan var rammíslensk en páskalambið nýsjálenskt. Í fyrsta sinn í Kaupmannahafnarferð steig ég ekki fæti á Strikið. Aðal viðfangsefnið var að reyna að spilla uppeldi dóttursonarins.
Og svo er alvara lífsins tekin við - kennslan byrjaði með birtingu í morgun.

fimmtudagur, 20. mars 2008

Frá Herlev

Eins og kunnugt mun vera, þá dveljumst við Dóra sem stendur í Herlev hjá henni Heiðu, dóttur okkar. Herlev tilheyrir Stór-Kaupmannahafnarsvæðinu.
Það er allt gott að frétta úr Danaveldi. Við komum þangað í fyrradag, beint inn í ekta danskan vetur með snjó og alles.
Við erum búin að kynna okkur Odense, en þangað fórum við í gær og röltum um göngugötur.
Í dag gerði Dóra úttekt á hinu konunglega grafhýsi í Roskilde - að innan, ég dokumenteraði það að utan. Áður höfðum við kynnt okkur skipasmíðalist víkinga - eins og menn kjósa að kalla þessa norrænu sjófarendur, sem sumir hverjir voru vafasamir karakterar, eflaust miklu verri en handrukkarar nútímans (Hvað er Annþór í samanburði við Egil?!).
Annað í fréttum er það að líklega kemur Bergrún heim til Íslands á morgun og aumkvar sig yfir Mána, sem fær bara lágmarks þjónustu þessa dagana.

laugardagur, 15. mars 2008

Þá er það páskafríið

Þá er páskaleyfi skollið yfir - frí úr skólanum fram til 24. mars. Að þessu sinni hef ég engar starfsskyldur í páskafríinu. Það er ekki slæmt.
Við erum að undirbúa okkur fyrir utanferð - sem er á þriðjudag - og ganga frá hér á Varmalandi. Oddný ætlar að gæta bús á meðan við bregðum okkur út fyrir landsteinana.
Það er auðvitað tilhlökkunarefni að sjá fólkið okkar í Kaupmannahöfn, ekki síst þar sem nýr, væntanlegur fjölskyldumeðlimur verður nú sífellt meira áberandi, þó að hann komi ekki í heiminn fyrr en í sumar.
Annars óska ég þeim sem sem reka augun í þetta pikk, gleðilegra páska og stórkostlegra páskaeggja - án verulegra aukaverkana.

mánudagur, 10. mars 2008

Sjónarhorn

Helgin var annars fremur tíðindalítil. Við fórum reyndar og skoðuðum íbúðina hennar Gullu frænku, sem hún keypti sér nýverið á Sléttuveginum. Hittum þar fyrir Ingu, Kela og Jón Hilmarsson. Þeir síðastnefndu stóðu þar á haus við að endurnýja baðherbergi (undarleg vinnustelling!). Guðmundur Hermannsson var þarna einnig að flytja að efni; sturtuklefa og flísar. Þetta verður flott.
Litum við í Perlunni - á salatbarinn og til að skoða bókamarkaðinn úr lofti. Sá að Einar Már var þarna að vísa fólki til vegar að bókunum sínum. Frá þessu sjónarhorni (úr lofti) sá ég ekki betur en að hann væri farinn að fá skallablett í hvirfilinn. Þannig fer víst fyrir hárprúðustu mönnum.

sunnudagur, 9. mars 2008

Allt er fertugum fært

Ekki þannig að ég sé að verða fertugur. Fyrirsögnin er hugsuð sem hughreysting til mágkonu minnar sem gengur yfir þennan þröskuld í dag. Fyrir mánuði síðan varð Hjörtur bróðir fyrir þessu sama. Hann ber sig bara nokkuð vel - er á kafi í tölvunarfræðinámi úti í Svíþjóð.

Í tilefni af afmælinu verður stórfjölskyldan (sem er fremur smá hérlendis nú um stundir) samankomin í kaffi hjá Steinunni tengdarmömmu í dag.

Þetta eru þær Oddný mágkona og Úa (Þorbjörg) dóttir hennar.

Og talandi um kaffi. Við skruppum í kaffi til Sillu og Fúsa í gærkvöld. Þar áttaði mig á því að mér er hollara að fara með gát þegar ég skrái á þessa síðu - hún poppar upp víðar en á Víðimelnum. Annars er engin hætta á að jafn orðvörum manni og mér verði fótaskortur á þessu svelli. Ef svo kynni að fara, yrði það bara vegna tæknilegra mistaka.


Að svo mæltu fer ég og fæ mér kaffi.

miðvikudagur, 5. mars 2008

Tíminn

Undarlegt er hvað tíminn líður hratt - vikan hálfnuð og óðara komin helgi. Svo tekur því varla að vera að púkka upp á þessa næstu helgi því áður en við er litið verður hún liðin og sú næsta tekin við. Í þessu ljósi má segja að það sé alveg út í hött að fara að skrölta þetta til Danmerkur um páskana.
Þá er Dóra stungin af til Reykjavíkur, á námskeið. Ég verð því í grasekkilsstandi næstu tvo daga. Ætli ég noti ekki tækifærið og sjóði saltkjötið sem annars fer bráðum að falla á tíma.
Bergrún er komin til New York eitthvað að vesenast. Tónleikasyrpan í Eyjaálfu og Asíu er að baki og Björk búin að móðga bæði Serba og Kínverja. Ég er ánægður með Björk! Næsta tónleikatörn byrjar ekki fyrr en í apríl.
Annars má segja að afkvæmin haldi sig nokkuð á tónlistarsviðinu. Andri er á leiðinni til Póllands í vor, í söngferðalag með Háskólakórnum.
Ég þekki mann sem hefur unnið sér það til frægðar að syngja með Eystunum.

laugardagur, 1. mars 2008

Úr snjómuggunni

Við vorum óvenju mikið á ferðinni í liðinni viku. Við fórum í Borgarnes á miðvikudaginn - til ýmissa útréttinga - og á fimmtudaginn var skroppið, ásamt öðrum starfsmönnum skólans, að Reykholti til að drekka kaffi og eta tertu. Það var þétt snjómugga og nánast ekkert skyggni á leiðinni að Reykholti en sólskin og gott veður á bakaleiðinni.
Núna erum við komin til Reykjavíkur í vísitasíu. Búinn að útrétta fyrir pabba og mömmu. Silla vinkona rændi Dóru í kaffi og er ekki búin að skila henni þegar þetta er skráð.
Nú styttist í Kaupmannahafnarferð sem verður farin um páskana. Þetta verða merkilegir páskar. Svokallaðir Góupáskar. Það gerist víst ekki aftur næstu eina og hálfa öld!

sunnudagur, 24. febrúar 2008

Leti


Við erum sem sé stödd í Reykjavík - sem þýðir væntanlega að það sé helgi. Höfðum það af að fara á bíó. Sáum Brúðgumann - afbragðs mynd, ég hló mikið, vonandi þó á réttum stöðum, því að hún er vissulega með alvarlegu ívafi. Ekki skemmdi fyrir að við skoðuðum okkur vel um í Flatey á liðnu sumri, þannig að sögusviðið er kunnuglegt.

Í dag hef ég stundað letilíf. Það er ekkert nýtt. Þeir sem þekkja til mín vita að ég er með eindæmum latur og værukær og lítið gefinn fyrir vesen - nema að aðrir sjái um það.

fimmtudagur, 21. febrúar 2008

Af íþróttum

Hér á Varmalandi má heita að við höfum einkasundlaug. Þarna er sjaldnast nokkur sála á floti. Við erum þó bara nýlega farin að notfæra okkur hana að einhverju marki. Á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum skundum við Dóra sem sagt þessa fimmtíu metra og förum í heitan pott og syndum. Svo gefst tækifæri til að glápa upp í stjörnuhimininn þegar þannig viðrar.
Á þriðjudögum eru körfuboltaæfingar í íþróttasalnum á sama tíma og sundlaugin er opin. Þarna koma saman ýmis stórmenni Borgarfjarðar til að rifja upp forna takta. Að einhverju leyti eru þetta sömu skrokkarnir og ég spilaði körfubolta með (og við) fyrir einum tuttugu árum síðan. Vaxtarlag þeirra, hárvöxtur og hárlitur hefur þó látið á sjá - sumir orðnir nokkuð vambsíðir, hárlitlir og gráir. Því brá mér nokkuð í brún þegar ég gekk inn í hópinn í búningsklefanum um daginn. Fer aldurinn virkilega svona með menn? Ég stóð mig að því að horfa rannsakandi á sjálfan mig í speglinum þegar færi gafst.
Ég hef sjálfur engar áætlanir uppi um að fara að stunda körfubolta á nýjan leik. Það er langt síðan ég uppgötvaði að það er fleira á seyði í náttúrunni en hlýnun jarðar; aðdráttarafl hennar eykst nú með hverju árinu sem líður. Þetta get ég sannað með einfaldri tilraun - sú hæð sem ég get stokkið lækkar stöðugt.

mánudagur, 18. febrúar 2008

Vel skipulögð

Um helgina fórum við Dóra í Listasafn Reykjavíkur að skoða nýju skipulagstillögurnar fyrir Vatnsmýrina. Þarna var óskaplegt magn af litprentuðu veggfóðri, illa útskýrðu. Þó var hægt að skoða líkan af verðlaunatillögunni. Það var aðgengilegasti hlutinn fyrir leikmenn. En heildarmyndin af þessu öllu saman var samt ósköp lík stjórnmálaástandinu í Reykjavík -ruglingsleg. Sjálfsagt þarf að leggjast í viðamikla stúdíu á fyrirbærinu til að geta lagt eitthvert mat á það.

En annars leið helgin á hefðbundinn hátt. Dóra fór í Keflavík að heimsækja mömmu sína og ég var á flökti í bænum. Fór til pabba og mömmu - og hvað það nú er sem étur upp tímann.

Svo gleymdum við auðvitað helmingnum af því sem við ætluðum að hafa með okkur upp í Borgarfjörð - áttuðum okkur á því þegar við vorum að bera inn úr bílnum.
Hér er mynd af Skarphéðni.

Bergrún átti afmæli þann 15. Kóreubúar sungu fyrir hana afmælissöng - nokkur þúsund að sögn.

föstudagur, 15. febrúar 2008

Af asahláku

Við Dóra erum alltaf snemma á fótum og erum mætt vel tímanlega í skólann. Ég er yfirleitt mættur klukkutíma fyrir fyrstu kennslustund - það er ekki langt að fara. Drjúgur tími fer í að kjafta við húsvörðinn, hann Ásgeir, og reyna að koma blóðinu í honum á hreyfingu með því að ræða um pólitík - hann var einu sinni sjálfstæðismaður. Það er þó áberandi nú í seinni tíð hve erfitt er að koma honum til. Veldur því sjálfsagt vandræðagangurinn í herbúðum sjalla.
Í morgun varð hins vegar lítið úr slíkum kjaftagangi því kjallarainngangurinn var allur á floti í vatni. Þegar innstreymið var mælt var það um 3 - 4 mínútulítrar þegar mest var. Það varð því að fara í björgunaraðgerðir.
Þegar þetta er skráð er mættur pípari á svæðið og það stefnir í að húsvörðurinn geti farið að þurrka svitann af enninu.
Við Dóra stefnum suður á bóginn

mánudagur, 11. febrúar 2008

Bakþankar

Það er engin lognmolla þessa dagana, hvort heldur er horft til veðurfars eða pólitíkur. Við Dóra gáfum samt sem áður veðurfarinu langt nef og fórum allra okkar ferða um helgina og komumst upp með það. Dettur ekki í hug að biðjast afsökunar á því. Nenntum samt ekki að fara í Borgarnes í dag eins og við ætluðum - bölvað krap og slabb og éljagangur. Hittum Heiðu og Skarphéðin á skæpinu á sunnudaginn. Andri var í Skálholti að þjálfa raddböndin.
Oddný bauð í lærissneiðar á laugardagskvöldið. Hún hefur mikla hæfileika í eldhúsinu og ætti vafalaust að halda sig sem mest "á bak við eldavélina", eins og sagt var um virðulega ráðherrafrú hér um árið (ég held að þessum orðum hafi verið logið upp á Guðna).
Hins vegar held ég að Vilhjálmur Þ. ætti frekar að hasla sér völl bak við myndavélar en fyrir framan þær - án þess þó að ég ætli að gera hann að frekara viðfangsefni hér.

fimmtudagur, 7. febrúar 2008

Úr lognmollunni


Veðrið heldur áfram að leika við okkur. Þegar þetta er skrifað gengur á með dimmum éljum og spáð er versnandi veðri. Við erum samt með nemendur í skólanum en ætlunin er að senda þá heim áður en allt verður ófært. Manni leggst alltaf eitthvað til.

Í gær var öskudagur með tilheyrandi búningum - mjög mikið um nornir sem flugu um ganga á kóstsköftum.

Eftir hádegi var farið með yngra liðið að Bifröst þar sem dagskrá var skipulögð, auk þess sem hægt var að ganga í hús og sníkja nammi.

Bergrún dvelst þessa dagana á Balí áður en næsta törn byrjar í tónleikahaldi; Indónesía, Kórea, Japan og Kína.

Hin "börnin" hafa hægar um sig.
Hérna er mynd af Bergrúnu þar sem hún býr sig undir teygjustökk.

sunnudagur, 3. febrúar 2008

Blót

Ég sleppti því að fara á þorrablót um helgina. Það var þorrablót í Þinghamri (á Varmalandi) og þrátt fyrir fjölmargar áskoranir og að fólk kæmi að máli við mig varðandi þetta málefni, varð niðurstaðan sú að bjóða mig ekki fram að þessu sinni. Því sit ég hér snemma sunnudagsmorguns og pota í lyklaborð í stað þess að veltast í fleti með hausverk og jafnvel matareitrun. Hins vegar hálf sé ég eftir hákarlinum og súrmetinu sem ég át ekki - þetta fæst reyndar allt úti í næstu búð.

Hafðu þig út í Hamarinn,
helvítis litli auminginn.
Hámaðu í þig hákarlinn
og haltu svo fast um magann þinn.

laugardagur, 2. febrúar 2008

Af frosti og ferðalögum

Þorrinn stendur aldeilis undir nafninu sínu. Það er að segja ef maður tengir hann við frosthörkur og snjó. Bíllinn okkar - sá blái - sem við vorum með í Borgarfirðinum kann víst betur við að hitastigið fari ekki niður undir 20 gráðurnar. Hann neitaði að fara í gang í gær, þegar ætlunin var að bregða sér á höfuðborgarsvæðið. Við snérum á hann og tókum rútuna í bæinn - þar var sá græni tilkippilegur.
Mamma stóð í stórbakstri á bollum fyrir bolludaginn þegar ég leit við hjá henni áðan. Hún virðist komin á þokkalegt ról.

miðvikudagur, 30. janúar 2008

Þorri


Í dag skín sólin, en undanfarið hefur snjóað óvenju mikið. Það þarf því ekki mikið að hreyfa vind svo að allt verði ófært hér í uppsveitum Borgarfjarðar. Við sjáum til hvernig viðrar á morgun, en auðvitað er þetta bara íslenskt Þorraveður. Um Þorrann á maður bara að halda sig inni við og éta súra hrútspunga og hákarl.

Í gær fórum við með 10 - 13 ára krakka í Egilshöllina og leyfðum þeim að staulast um á skautum - þeim þótti það mjög gaman. Ég hætti mér ekki út á svellið - það var svo sleipt. Sæmundur ók okkur til Reykjavíkur og með það í huga að hann er bæði hálfblindur og getur dottið úr sambandi hvenær sem er, þá stóð hann sig bara framar væntingum - hann kom öllum á áfangastað ósködduðum.

mánudagur, 28. janúar 2008

Superdansk

Skólahald var með eðlilegum hætti í dag; veðrið gengið niður og börnin komust í skólann. Svona í tölfræði/sögulegu samhengi má gera ráð fyrir því að ekki þurfi að fella niður kennslu vegna veðurs næstu 5 árin því kvótinn er búinn.
Annars trúi ég því að eigendur snjóruðningstækja séu ánægðir þessa dagana - nóg að gera og hægt að skrifa feita reikninga.
Ég lét plata mig til að fara að kenna dönsku í 10. bekk næstu 2 mánuðina (veikindaforföll) og þarf því að fara að berja ryðið af "det danske sprog".
Annars er ekkert sérstakt að frétta. Við Dóra eyddum helginni í sveitarsælunni og þótti það ágæt tilbreyting.

föstudagur, 25. janúar 2008

Hvert þó í þreifandi!

Skólahald var fellt niður í dag - öðru sinni í þessari viku. Olli því ofankoma og skafrenningur - og mikill snjór fyrir. Skólabílstjórar treystu sér ekki til að komast leiðar sinnar. Það virðist því nokkuð ljóst að við Dóra höldum okkur heima í dag og hættum ekki á nein ferðalög - við erum svoddan kellingar.
Við reynum kannski að komast í Bauluna til að afla vista fyrir helgina.

En svo ég snúi mér að pólitískum þreifingum.
Ef roskinn kall með gráa fiðringinn reynir án árangurs við unga, gifta konu, er hún þá að halda fram hjá? Dálítið islamskt, ekki satt?

miðvikudagur, 23. janúar 2008

Dálítið (póli)tíkarlegt

Í gær setti veðrið strik í reikninginn - það þurfti að fella niður skólahald (skólaakstur) vegna hálku og hvassviðris. Þetta varð því afar rólegur dagur hérna á Varmalandinu.
Það var líka kærkomið að hafa tækifæri til að reyna að melta síðustu vendingar í stjórnmálafarsanum í Reykjavík, sem minnir sífellt meira á lélega sápuóperu. Það var ekki bara stóll Svandísar sem losnaði upp í þessum vindsveip, heldur öll sætaröðin kringum borgarstjórnarborðið.
En er það ekki sjúklegt af Sjálfstæðisflokknum að leggjast á þennan hátt á mann sem er að reyna ná sér eftir glímu við erfið veikindi?

mánudagur, 21. janúar 2008

Þar stóð hnífurinn í ....

Kötturinn Máni lætur fara vel um sig
Auðvitað var skroppið til R um helgina. Máni köttur gætti á meðan bús á Varmalandi. Ég horfði ekki nema með öðru auganu á handboltann á laugardaginn og sleppti leiknum við Frakka - eins gott. Hins vegar sá ég Silfur Egils þar sem hæst bar sjálfseyðingarhvöt Framsóknar. Það er flott þegar menn opna svona inn í hrútakofann - Guðni gerði það nú með bókarútgáfu. Hvað höfðingjarnir hafast að..........
Keypti eldhúshníf um helgina. Ekki til að stinga í bakið á neinum, heldur handa pabba og mömmu.
Í liðinni viku sá ég myndasyrpu af dóttur minni í teygjustökki hinu megin á hnettinum. Eins gott að ég vissi ekki af þessu fyrirfram - eða þá hún móðir hennar, sem kann best við sig á sléttlendi.
Það held ég nú.

mánudagur, 14. janúar 2008

Jaml...

Þegar þetta er skrifað er yngri dóttirin nýfarin í loftið frá Keflavíkurflugvelli og er stefnan tekin á Nýja-Sjáland með tilheyrandi millilendingum. Þetta tekur svona 30 stundir. Tónleikar á Nýja-Sjálandi, Ástralíu, Kóreu, Japan og í Kína.
Sá á Moggasíðunni að Björk hefði ráðist á nýsjálenskan ljósmyndara sem ekki vildi láta segjast - það byrjar fallega!
Við erum föst á þessum kalda klaka - það er byrjað að snjóa.

Jaml...

fimmtudagur, 10. janúar 2008

Og sagan endurtekur sig


Þá er Heiða farin til Danmerkur með sína fylgifiska og bráðum leggur Bergrún upp í langferð. Við hin sitjum eftir og nögum neglur eða gerum eitthvað annað álíka gáfulegt. Þessi kennsla er auðvitað gjörsamlega glötuð - hvaða vit er í því að vera að reyna að troða þekkingu í krakka - það koma sífellt nýir nemendur jafn fávísir í stað þeirra sem hendinni er sleppt af. Hvað sagði ekki kaupmaðurinn?: - Það er vonlaust að vera að panta nýjar vörur, þær klárast alltaf strax. Eða bóndinn sem skildi ekkert í því hvað lömbin gátu alltaf verið vitlaus á haustin þegar þau komu af fjalli, þó að þau endurtækju þetta ár eftir ár.

Þetta var nú það sem mér lá ekki á hjarta.......... En myndin er af Dóru og Skarphéðni.

sunnudagur, 6. janúar 2008

Og lífið gengur sinn gang

Þá fer þessu jólaástandi að ljúka. Það er bæði gott og ekki gott. Það þýðir t.d. að dæturnar hverfa af landi brott. Önnur til Danmerkur og hin til Eyjaálfu og Austurlanda fjær. En þetta hefur það einnig í för með sér að lífið fellur í ákveðnar skorður - maður þarf að fylla út í vinnurammann. Það eru viðfangsefnin sem halda manni á löppunum, annars gæti maður allt eins snúið upp tánum.
Hver segir að jólahald sé ekki viðfangsefni?
Skarphéðinn var í pössun hjá okkur Dóru í fyrrakvöld og fyrrinótt. Hann verður sífellt ræðnari.
Ég hitti pabba og mömmu í gær - og líklega aftur í dag. Þau bera sig vel. Ég held að nú fari að sjá fyrir endann á þessu sárabasli mömmu - allt bendir til þess.
Í kvöld förum við upp í Borgarfjörð og tökum Mána (kött) með okkur. Hann hefur verið í jólafríi í Reykjavík.

fimmtudagur, 3. janúar 2008

Héðan

Þá er að setja sig í réttar stellingar á ný. Það hafa bæst við nokkrar nýjar magafellingar yfir jólin sem maður verður einnig að takast á við. Við komum upp að Varmalandi seinni partinn í gær og hrukkum stuttu seinna upp við sprengigný - flottastar eru flugeldasýningarnar til sveita þar sem ljósamengunin er ekki eins ágeng. Brenna - flugeldasýning - spilavist í Þinghamri (100 manns mættir). Hér virðist kynslóðabilið útmáð því að fólk á aldrinum eins til níutíu ára var að skemmta sér saman.
Svona á þetta auðvitað að vera!