
Um helgina fórum við Dóra í Listasafn Reykjavíkur að skoða nýju skipulagstillögurnar fyrir Vatnsmýrina. Þarna var óskaplegt magn af litprentuðu veggfóðri, illa útskýrðu. Þó var hægt að skoða líkan af verðlaunatillögunni. Það var aðgengilegasti hlutinn fyrir leikmenn. En heildarmyndin af þessu öllu saman var samt ósköp lík stjórnmálaástandinu í Reykjavík -ruglingsleg. Sjálfsagt þarf að leggjast í viðamikla stúdíu á fyrirbærinu til að geta lagt eitthvert mat á það.
En annars leið helgin á hefðbundinn hátt. Dóra fór í Keflavík að heimsækja mömmu sína og ég var á flökti í bænum. Fór til pabba og mömmu - og hvað það nú er sem étur upp tímann.
Svo gleymdum við auðvitað helmingnum af því sem við ætluðum að hafa með okkur upp í Borgarfjörð - áttuðum okkur á því þegar við vorum að bera inn úr bílnum.
Hér er mynd af Skarphéðni.Bergrún átti afmæli þann 15. Kóreubúar sungu fyrir hana afmælissöng - nokkur þúsund að sögn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli