
Vissirðu að jórturdýr eru með fjögurra hólfa maga og að maður fer vissulega í geitarhús að leita ullar, dýrindis Kasmírullar? Í dag vorum við með kálf til sýnis í skólanum og nemendur velta fyrir sér ýmsu sem snýr að landbúnaði. Í gær skoðuðum við stærsta geitabú landsins, að Háafelli í Hvítársíðu, þar sem ríflegur fjórðungur íslenska geitastofnsins er til geitarhúsa.
Afkvæmi geita heita ekki geitungar!
Á morgun er svo ferðinni heitið að Reykhólum. Það verður reykspólað af stað að loknum morgunverði. Þar á að skemmta sér með jafnaldra nemendum úr öðrum skólum.
Nú er Vignir pípari vonandi byrjaður að bora í gegnum veggi og gólf í Hólmgarðinum. Hann ætlar að leggja með því grunn að nýju baðherbergi.
2 ummæli:
Vignir frændi allavega ekki búinn að fá lykil hjá mér. o.
Vignir frændi er allavega ekki búinn að fá lykil hjá mér. o.
Skrifa ummæli