Sjálfsagt munu flestir minnast þessa árs, sem nú er um það bil að renna sitt skeið, sem árs mikilla hörmunga. Ársins þegar hrunið mikla átti sér stað - þegar skútan fór á hliðina - þegar holskeflan reið yfir og þegar.....blablabla.... Menn tala um kreppur liðinna ára og alda og reyna að finna samlíkingar. Fara jafnvel að blanda Móðuharðindunum inn í dæmið. Mig minnir að í kjölfar Skaftáreldanna hafi Íslendingum fækkað um þriðjung - flestir dóu úr ófeiti.
Í dag horfum við upp á eitt öflugasta herveldi heimsins "verja hendur sínar" með því að slátra föngum sem verið hafa í einangrun, girtir inni á svæði sem er u.þ.b. þriðjungur Reykjanesskagans - varla stærri en það landsvæði sem tilheyrir Grindavík. Þar er nú ekki kastað neinum eggjum né hrópað GAS! Við stöngum hangiketið úr tönnunum, aukum einu gati við á beltinu, dæsum og förum svo að velta fyrir okkur hversu miklu við eigum að eyða í flugelda fyrir þessi áramót. Sá í blaði að Íslendingar ætluðu að skjóta upp sjöþúsund tonnum af flugeldum um áramótin. Menn eru orðnir svo ruglaðir í tölulegum stærðum þetta síðasta misserið. Ég sé fyrir mér 7000 tonna skipi skotið á loft.
Og fyrst ég er að tala um skip. Eggert Ólafsson, hinn betri, átti teinæring, og einhverjar fleiri fleytur, sem hann dró á land í Oddbjarnarskeri og hvolfdi þar til að gera skýli fyrir vergangslýð, 80 manns, sem hann bjargaði af fastalandinu í Móðuharðindunum. Í Oddbjarnarskeri fóðraði hann fólkið á sjávarfangi þar til það náði kröftum á ný. Mér hefur alltaf þótt Eggert ein helsta hetja Íslandssögunnar. Samt er engin stytta til af honum, né hefur honum verið reist minnismerki.
1 ummæli:
Þarna erum við á sama máli frændi ekki skil ég gleymsku fólksins sem býr Ísrael eða velur ógnastjórnina.
En skarfurinn úr Oddbjarnarskeri rotaður með kylfum er lostæti í minningunni úr sveitinni
Skrifa ummæli