Skólahald var fellt niður í dag - öðru sinni í þessari viku. Olli því ofankoma og skafrenningur - og mikill snjór fyrir. Skólabílstjórar treystu sér ekki til að komast leiðar sinnar. Það virðist því nokkuð ljóst að við Dóra höldum okkur heima í dag og hættum ekki á nein ferðalög - við erum svoddan kellingar.
Við reynum kannski að komast í Bauluna til að afla vista fyrir helgina.
En svo ég snúi mér að pólitískum þreifingum.
Ef roskinn kall með gráa fiðringinn reynir án árangurs við unga, gifta konu, er hún þá að halda fram hjá? Dálítið islamskt, ekki satt?
2 ummæli:
Nákvæmlega það sem ég er búin að vera að segja. Látum Ólaf í friði og þjörmum að V. Það er ekki í lagi að þeir tveir skuli ekki vera látnir botna endaleysuna um hver talaði við hvern hvenær og talaði eða ekki við VG.
Og nú leyfa "þeir" sér að láta umræðuna snúast um að lýðræðið sé á bjargbrún af því nokkrir unglingar voru með kjaft í gær. Ætlum við/fjölmiðar að láta þá komast upp með að beina umræðunni frá því sem hún snýst í raun um?
Skrifa ummæli