Það hefur verið athyglisvert og að flestu leyti ánægjulegt að horfa á dauðateygjur nýfrjálshyggjunnar. Fyrir áhættufælna aumingja eins og okkur Dóru er það hins vegar nokkuð áfall að átta sig á því að einhverjir auðmenn hafa notað nöfnin okkar sem samþykkjendur á víxla sem nú virðast vera að falla - og allt löglegt....!
1 ummæli:
Já nú er runninn upp tími siðferðilegs uppeldis þjóðar og barna. Breytum námskrám í þá veru. Meiri heimspeki, "hráa" og í gegnum heimsins bókmenntir og hugsuði. Og kryddum með hagnýtum fróðleik um lífsafkomu okkar í breiðum skilningi - hvernig við lifum og hvernig við komum lífi okkar best fyrir, í mórölsku og praktísku tilliti.
Vonarkveðja - oddný bedstemoster
Skrifa ummæli