
Veðrið heldur áfram að leika við okkur. Þegar þetta er skrifað gengur á með dimmum éljum og spáð er versnandi veðri. Við erum samt með nemendur í skólanum en ætlunin er að senda þá heim áður en allt verður ófært. Manni leggst alltaf eitthvað til.
Í gær var öskudagur með tilheyrandi búningum - mjög mikið um nornir sem flugu um ganga á kóstsköftum.
Eftir hádegi var farið með yngra liðið að Bifröst þar sem dagskrá var skipulögð, auk þess sem hægt var að ganga í hús og sníkja nammi.
Bergrún dvelst þessa dagana á Balí áður en næsta törn byrjar í tónleikahaldi; Indónesía, Kórea, Japan og Kína.
Hin "börnin" hafa hægar um sig.
Hérna er mynd af Bergrúnu þar sem hún býr sig undir teygjustökk.
1 ummæli:
Sæll Snæbjörn
Gaman að fá svona fréttir af ykkur í sveitasælunni. Skilaðu kveðju frá mér til Láru í 6.bekk sem kom til ykkar um áramót úr Húsaskóla !
Kveðja
Sessa
Skrifa ummæli