sunnudagur, 16. nóvember 2008

Rafmagn

Ekki veit ég hvað það er sem veldur þessum rafmagnstruflunum alls staðar þar sem við Dóra komum nærri. Eldavélin í Hólmgarðinum slær út ef við ætlum að nota hana - annars ekki, bílarnir verða ítrekað rafmagnslausir hjá okkur og þá helst þegar verst stendur á. Sá græni var steindauður á föstudaginn. Samt skipti ég um geymi fyrir þremur vikum síðan. Guðmundur Finnsson hefur haft í nógu að snúast vegna vandræðagangsins á okkur - enda í björgunarsveitinni.
Sögðum hingað og ekki lengra og keyptum nýjan/gamlan bíl - dökkgrænan picasso

1 ummæli:

Snæbjörn og Dóra sagði...

Tek fram að ég er gleyminn á liti. Bíllinn reyndist dökkgrár.