laugardagur, 6. október 2007

Í einum kór



Aftur erum við Dóra stödd í höfuðstaðnum. Búinn að skoða pabba - og mömmu sem er á sjúkrahúsinu að jafna sig eftir aðgerðina. Við Dóra vorum að koma frá Keflavík þar sem við hittum Steinunni, en þar áður vorum við á æfingu með kór Kálfatjarnarkirkju. Það var gaman að hitta liðið aftur. Fengum kaffi og pönnukökur í hléi. Ætli við syngjum ekki með þeim í messu á morgun.

Þetta er hann Skarphéðinn sem fór í dýragarinn í dag

Veðrið miklu betra en von var á; sól og stinningskaldi úr norðri og útlit fyrir svipað veður á morgun.
Heyrðum í Heiðu. Hún var að fara í dýragarðinn í Köben.
Á morgun fer Steinunn með okkur upp að Varmalandi og verður hjá okkur einhverja daga.
Svona er nú það...

Engin ummæli: