
Enn og aftur erum við stödd í Hólmgarðinum. Það er ósköp notalegt. Okkur tókst að koma þeim bláa í viðgerð - liðaðgerð á framhjóli (þetta heitir víst spindill). Svo kom Bergrún heim í gærmorgun úr 5 vikna tónleikaferðalagi - ósköp þreytt greyið. Við sóttum hana á völlinn - flugvélin lenti um háf sjö. Þess vegna notuðum við tækifærið og gistum hjá Steinunni í Keflavík. Bergrún svaf svo í mestallan gærdag en vaknaði undir kvöld og við héldum upp á heimkomuna með steiktu læri. Andri kom og borðaði með okkur.
Ég hef verið nokkuð hjá gömlu hjónunum í Hólmgarðinum. Það líður að því að mamma verði lögð inn í aðgerð vegna sársins - það vill ekki gróa á eðlilegan hátt. Gulla frænka er búin að vera bjargvættur þeirra í þessu læknabaksi sem og í öðru - hún hlýtur að eiga stóra innistæðu á ónefndum stað fyrir allt það sem hún hefur verið að bauka fyrir aðra. Mamma er bara einn af mörgum skjólstæðingum.
Í dag hef ég verið að mála stofugluggann og Dóra er núna að baka fyrir kvöldsamkomu kennara á Varmalandi.
Áðan náðum við sambandi við Heiðu í gegnum skæpið. Við gátum talað við hana og séð hana og Skarphéðin. Það verður gaman í framtíðinni að geta notað þessa aðferð.
Seinni partinn í dag förum við uppeftir, en á morgun er engin kennnsla - við verðum með vinnudag í Borgarnesi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli