föstudagur, 19. október 2007

Lífsmark


Ég vildi bara láta vita að við Dóra erum á lífi og líður bara nokkuð vel. Ég held þó að það sé meira að gera hjá Dóru en mér - hún er líka svo samviskusöm að mér finnst það stundum vera um of. Ég er aftur á móti haldinn þægilegu kæruleysi sem auðvitað kemur mér oft í koll. Ég hef reyndar ekki lengi átt jafn náðuga daga eins og nú um stundir. Vonandi endist það sem lengst - eg er með latari mönnum.
Nú líður að því að Bergrún fari til Suður-Ameríku - 23 október. Við sjáum hana því ekki fyrr en skömmu fyrir jól. Ég held að síðustu tónleikarnir séu 15. desember.
Brynjólfshús í október. Þakið er ekki farið af.

Mamma er enn á sjúkrahúsinu og verður þar líkast til enn um sinn. Andri og Bergrún heimsóttu hana á miðvikudaginn.
Í dag ætla ég að reyna að fara á Borðeyri og ganga frá húsinu fyrir veturinn.
Á morgun förum við Dóra til Reykjavíkur og þá hittum við auðvitað Bergrúnu áður en hún fer utan sem og ýmsa aðra sem þar um slóðir eru.

Engin ummæli: