
Hins vegar er sá græni (bíllinn) búinn að vera með vesen síðustu vikuna. Það endaði með því að í gær lét ég skera undan honum og skipta út rörum.
Í gærkvöld var Bergrún að spila í Manchester og framundan er álíka lúðralástur næstu vikurnar. Hin börnin er bara þæg og góð og haggast lítið úr sínu fasta fari. Mér skildist þó á henni Heiðu áðan að líklega færi hún á flóamarkað í dag. Vonandi sleppur hún við flóabit.
Á þessum árstíma vorum við Hafsteinn vanir að stunda rauðmagaveiði norður á Hofsósi, sælla minninga. Síðan þeirri útgerð lauk hefur mér ekki fundist vora almennilega.
Bátarnir á myndinni eru danskir og hafa örugglega aldrei kynnst þeirri fiskitegund.
1 ummæli:
Og varla ferðu að stunda róðra úr Borgarfirðinum! Pant léttadrengur á skektunni sem við naustum á Vatnsleysu þegar þið eruð flutt "suður".
Skrifa ummæli