miðvikudagur, 2. apríl 2008

Af gaufskorti

Eftir stuttan skrepp til Reykjavíkur er Dóra komin til baka. Hún hafði miklar áhyggjur af þessum hálfa degi sem hún var frá vinnu. Ég held að það séu fyrstu forföllin hennar í vetur. Hún átti reyndar metið í mínum gamla skóla varðandi skort á forföllum. Stundum liðu einhver ár á milli.
Annars er skólinn fáliðaður af stjórnendum þessa dagana. Aðstoðarskólastjórinn lét skipta um hnjálið og verður frá fram til skólaloka og skólastýran farin á þing. Samt gengur allt sinn vanagang. Þetta sannar reyndar það sem mig hefur lengi grunað; ef einhverjir starfsmenn eru við skóla, sem enginn tekur eftir þó að hverfi, þá eru það skólastjórarnir. Þeirra starf er, í seinni tíð, meira og minna fólgið í einhverju gaufi, sem skrifræðið og fundafárið hefur innleitt. Látið mig þekkja þetta!

1 ummæli:

Oddný moster sagði...

Viltu eyða þessari athugasemd frá Brasilíu út! Ekki opna neitt!

En Dóra hálfskrópaði líka um daginn; henni fannst það allavega. Þá var námskeið hér á föstudegi, framhald námskeiðs sem skólinn sendi hana á í sumar - hún átti í mesta basli með þetta blessunin.