sunnudagur, 24. febrúar 2008

Leti


Við erum sem sé stödd í Reykjavík - sem þýðir væntanlega að það sé helgi. Höfðum það af að fara á bíó. Sáum Brúðgumann - afbragðs mynd, ég hló mikið, vonandi þó á réttum stöðum, því að hún er vissulega með alvarlegu ívafi. Ekki skemmdi fyrir að við skoðuðum okkur vel um í Flatey á liðnu sumri, þannig að sögusviðið er kunnuglegt.

Í dag hef ég stundað letilíf. Það er ekkert nýtt. Þeir sem þekkja til mín vita að ég er með eindæmum latur og værukær og lítið gefinn fyrir vesen - nema að aðrir sjái um það.

fimmtudagur, 21. febrúar 2008

Af íþróttum

Hér á Varmalandi má heita að við höfum einkasundlaug. Þarna er sjaldnast nokkur sála á floti. Við erum þó bara nýlega farin að notfæra okkur hana að einhverju marki. Á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum skundum við Dóra sem sagt þessa fimmtíu metra og förum í heitan pott og syndum. Svo gefst tækifæri til að glápa upp í stjörnuhimininn þegar þannig viðrar.
Á þriðjudögum eru körfuboltaæfingar í íþróttasalnum á sama tíma og sundlaugin er opin. Þarna koma saman ýmis stórmenni Borgarfjarðar til að rifja upp forna takta. Að einhverju leyti eru þetta sömu skrokkarnir og ég spilaði körfubolta með (og við) fyrir einum tuttugu árum síðan. Vaxtarlag þeirra, hárvöxtur og hárlitur hefur þó látið á sjá - sumir orðnir nokkuð vambsíðir, hárlitlir og gráir. Því brá mér nokkuð í brún þegar ég gekk inn í hópinn í búningsklefanum um daginn. Fer aldurinn virkilega svona með menn? Ég stóð mig að því að horfa rannsakandi á sjálfan mig í speglinum þegar færi gafst.
Ég hef sjálfur engar áætlanir uppi um að fara að stunda körfubolta á nýjan leik. Það er langt síðan ég uppgötvaði að það er fleira á seyði í náttúrunni en hlýnun jarðar; aðdráttarafl hennar eykst nú með hverju árinu sem líður. Þetta get ég sannað með einfaldri tilraun - sú hæð sem ég get stokkið lækkar stöðugt.

mánudagur, 18. febrúar 2008

Vel skipulögð

Um helgina fórum við Dóra í Listasafn Reykjavíkur að skoða nýju skipulagstillögurnar fyrir Vatnsmýrina. Þarna var óskaplegt magn af litprentuðu veggfóðri, illa útskýrðu. Þó var hægt að skoða líkan af verðlaunatillögunni. Það var aðgengilegasti hlutinn fyrir leikmenn. En heildarmyndin af þessu öllu saman var samt ósköp lík stjórnmálaástandinu í Reykjavík -ruglingsleg. Sjálfsagt þarf að leggjast í viðamikla stúdíu á fyrirbærinu til að geta lagt eitthvert mat á það.

En annars leið helgin á hefðbundinn hátt. Dóra fór í Keflavík að heimsækja mömmu sína og ég var á flökti í bænum. Fór til pabba og mömmu - og hvað það nú er sem étur upp tímann.

Svo gleymdum við auðvitað helmingnum af því sem við ætluðum að hafa með okkur upp í Borgarfjörð - áttuðum okkur á því þegar við vorum að bera inn úr bílnum.
Hér er mynd af Skarphéðni.

Bergrún átti afmæli þann 15. Kóreubúar sungu fyrir hana afmælissöng - nokkur þúsund að sögn.

föstudagur, 15. febrúar 2008

Af asahláku

Við Dóra erum alltaf snemma á fótum og erum mætt vel tímanlega í skólann. Ég er yfirleitt mættur klukkutíma fyrir fyrstu kennslustund - það er ekki langt að fara. Drjúgur tími fer í að kjafta við húsvörðinn, hann Ásgeir, og reyna að koma blóðinu í honum á hreyfingu með því að ræða um pólitík - hann var einu sinni sjálfstæðismaður. Það er þó áberandi nú í seinni tíð hve erfitt er að koma honum til. Veldur því sjálfsagt vandræðagangurinn í herbúðum sjalla.
Í morgun varð hins vegar lítið úr slíkum kjaftagangi því kjallarainngangurinn var allur á floti í vatni. Þegar innstreymið var mælt var það um 3 - 4 mínútulítrar þegar mest var. Það varð því að fara í björgunaraðgerðir.
Þegar þetta er skráð er mættur pípari á svæðið og það stefnir í að húsvörðurinn geti farið að þurrka svitann af enninu.
Við Dóra stefnum suður á bóginn

mánudagur, 11. febrúar 2008

Bakþankar

Það er engin lognmolla þessa dagana, hvort heldur er horft til veðurfars eða pólitíkur. Við Dóra gáfum samt sem áður veðurfarinu langt nef og fórum allra okkar ferða um helgina og komumst upp með það. Dettur ekki í hug að biðjast afsökunar á því. Nenntum samt ekki að fara í Borgarnes í dag eins og við ætluðum - bölvað krap og slabb og éljagangur. Hittum Heiðu og Skarphéðin á skæpinu á sunnudaginn. Andri var í Skálholti að þjálfa raddböndin.
Oddný bauð í lærissneiðar á laugardagskvöldið. Hún hefur mikla hæfileika í eldhúsinu og ætti vafalaust að halda sig sem mest "á bak við eldavélina", eins og sagt var um virðulega ráðherrafrú hér um árið (ég held að þessum orðum hafi verið logið upp á Guðna).
Hins vegar held ég að Vilhjálmur Þ. ætti frekar að hasla sér völl bak við myndavélar en fyrir framan þær - án þess þó að ég ætli að gera hann að frekara viðfangsefni hér.

fimmtudagur, 7. febrúar 2008

Úr lognmollunni


Veðrið heldur áfram að leika við okkur. Þegar þetta er skrifað gengur á með dimmum éljum og spáð er versnandi veðri. Við erum samt með nemendur í skólanum en ætlunin er að senda þá heim áður en allt verður ófært. Manni leggst alltaf eitthvað til.

Í gær var öskudagur með tilheyrandi búningum - mjög mikið um nornir sem flugu um ganga á kóstsköftum.

Eftir hádegi var farið með yngra liðið að Bifröst þar sem dagskrá var skipulögð, auk þess sem hægt var að ganga í hús og sníkja nammi.

Bergrún dvelst þessa dagana á Balí áður en næsta törn byrjar í tónleikahaldi; Indónesía, Kórea, Japan og Kína.

Hin "börnin" hafa hægar um sig.
Hérna er mynd af Bergrúnu þar sem hún býr sig undir teygjustökk.

sunnudagur, 3. febrúar 2008

Blót

Ég sleppti því að fara á þorrablót um helgina. Það var þorrablót í Þinghamri (á Varmalandi) og þrátt fyrir fjölmargar áskoranir og að fólk kæmi að máli við mig varðandi þetta málefni, varð niðurstaðan sú að bjóða mig ekki fram að þessu sinni. Því sit ég hér snemma sunnudagsmorguns og pota í lyklaborð í stað þess að veltast í fleti með hausverk og jafnvel matareitrun. Hins vegar hálf sé ég eftir hákarlinum og súrmetinu sem ég át ekki - þetta fæst reyndar allt úti í næstu búð.

Hafðu þig út í Hamarinn,
helvítis litli auminginn.
Hámaðu í þig hákarlinn
og haltu svo fast um magann þinn.

laugardagur, 2. febrúar 2008

Af frosti og ferðalögum

Þorrinn stendur aldeilis undir nafninu sínu. Það er að segja ef maður tengir hann við frosthörkur og snjó. Bíllinn okkar - sá blái - sem við vorum með í Borgarfirðinum kann víst betur við að hitastigið fari ekki niður undir 20 gráðurnar. Hann neitaði að fara í gang í gær, þegar ætlunin var að bregða sér á höfuðborgarsvæðið. Við snérum á hann og tókum rútuna í bæinn - þar var sá græni tilkippilegur.
Mamma stóð í stórbakstri á bollum fyrir bolludaginn þegar ég leit við hjá henni áðan. Hún virðist komin á þokkalegt ról.