Í dag gekkst mamma undir sína aðra aðgerð í þessari spítalatörn. Áðan talaði ég við Einar lækni sem sagði aðgerðina hafa tekist vel. Samt sem áður átti hann von á að hún yrði að lágmarki 2 vikur í viðbót á sjúkrahúsinu - jafnvel 3.
Veðrið er gott í dag - sólskin - og snjórinn sem féll í dag er horfinn.
miðvikudagur, 31. október 2007
laugardagur, 27. október 2007
Hvað vil ég upp á dekk?

Jú, ég fór með þann græna á dekkjaverkstæði í morgun. Tók daginn snemma af ótta við langar dekkjaskiptabiðraðir, sérstaklega í ljósi hálkufrétta á fjallvegum. Var mættur rétt upp úr 8:00 og þurfti ekkert að bíða - en varð að versla mér tvö ný dekk. Það var nú það....
Heimsótti pabba - og við Dóra mömmu eftir hádegið. Þau voru bæði nokkuð hress. Mamma komin með soggræjur við sárið. Þær ku eiga að hjálpa til með batann. Sat á biðstofu læknavaktarinnar mestallan seinnipartinn. Mig vantaði lyfseðil.
Dóra fór og hitti mömmu sína í KeflavíkÞannig fara nú dagarnir....
föstudagur, 26. október 2007
það er blautt
Það er búið að rigna þessi ósköp að undanförnu - varla hundi út sigandi á stundum. Og það rignir jafnt í Ríó sem í Reykjavík. Þannig að það er ekki bara hér á landi á.
Vikan búin (hér um bil) og komin helgi. Þá förum við Dóra til R og hittum húsdraugana þar - og sækjum Bláma í Smyrlahraunið. Bergrún skildi hann þar eftir, þriðjudagsmorguninn sem hún flaug utan áleiðis til Brasilíu. Þar verður spilað í kvöld í rigningu.
Mamma er enn á sjúkrahúsinu. Þetta dregst og dregst. Ég er hræddur um að hún sé farin að missa trúna á bata.
Vona það besta.....

föstudagur, 19. október 2007
Lífsmark

Ég vildi bara láta vita að við Dóra erum á lífi og líður bara nokkuð vel. Ég held þó að það sé meira að gera hjá Dóru en mér - hún er líka svo samviskusöm að mér finnst það stundum vera um of. Ég er aftur á móti haldinn þægilegu kæruleysi sem auðvitað kemur mér oft í koll. Ég hef reyndar ekki lengi átt jafn náðuga daga eins og nú um stundir. Vonandi endist það sem lengst - eg er með latari mönnum.
Nú líður að því að Bergrún fari til Suður-Ameríku - 23 október. Við sjáum hana því ekki fyrr en skömmu fyrir jól. Ég held að síðustu tónleikarnir séu 15. desember.
Nú líður að því að Bergrún fari til Suður-Ameríku - 23 október. Við sjáum hana því ekki fyrr en skömmu fyrir jól. Ég held að síðustu tónleikarnir séu 15. desember.
Brynjólfshús í október. Þakið er ekki farið af.
Mamma er enn á sjúkrahúsinu og verður þar líkast til enn um sinn. Andri og Bergrún heimsóttu hana á miðvikudaginn.
Í dag ætla ég að reyna að fara á Borðeyri og ganga frá húsinu fyrir veturinn.
Á morgun förum við Dóra til Reykjavíkur og þá hittum við auðvitað Bergrúnu áður en hún fer utan sem og ýmsa aðra sem þar um slóðir eru.
laugardagur, 13. október 2007
Amm - æli

Mér hefur aldrei verið neitt sérstaklega um afmæli gefið og síst af öllu mín eigin. Ég lendi samt í því árlega að einhverjir átti sig á því að þessi árlegi dagur sé upp runninn og "láti það berast". Mér finnst ég þá standa hálf berrassaður á sviði - hvað er svona merkilegt við afmæli?
Lenti í þessu í gær. Krakkar fóru að syngja afmælissöng.
Sit nú við tölvu í Hólmgarði og pikka. Dóra varð eftir í Borgarfirði - með botn og allt - fékk "stelpuhóp" þangað uppeftir í gær og dvaldi í sumarbústað í nótt eftir fagnað í gærkvöld. Hún kemur e.t.v. seinna í dag.

Þetta er ekki ég - en þungt hugsi
Ég er að fara að drífa mig á tónleika eftir tvær mínútur - Bergrún er að spila í Norrænahúsinu kl. 14:00.
Heimsæki mömmu á sjúkrahúsið á eftir.
laugardagur, 6. október 2007
Í einum kór

Aftur erum við Dóra stödd í höfuðstaðnum. Búinn að skoða pabba - og mömmu sem er á sjúkrahúsinu að jafna sig eftir aðgerðina. Við Dóra vorum að koma frá Keflavík þar sem við hittum Steinunni, en þar áður vorum við á æfingu með kór Kálfatjarnarkirkju. Það var gaman að hitta liðið aftur. Fengum kaffi og pönnukökur í hléi. Ætli við syngjum ekki með þeim í messu á morgun.
Þetta er hann Skarphéðinn sem fór í dýragarinn í dag
Heyrðum í Heiðu. Hún var að fara í dýragarðinn í Köben.
Á morgun fer Steinunn með okkur upp að Varmalandi og verður hjá okkur einhverja daga.
Svona er nú það...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)