
Það var haldin útfararveisla fyrir okkur Dóru í skólanum á föstudaginn með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Mikið af tertum.
Þá eru amríkanarnir komnir til fyrirheitna landsins. Día býr hjá systur sinni í Keflavík en Rick og Robin ásamt syni eru hjá Oddnýju og Úu sem eru komnar heim frá Frans. Þau litu öll við hjá okkur í gær.
Hér er mynd af Rick, Robin, Nickolas Ingólfi, Úu og Skarphéðni
Við Dóra og Bergrún skruppum í stúdentsveislu Emblu. Hún var sumsé að útskrifast frá MR.
Ég leit við hjá pabba og mömmu í gærmorgun og aftur nú áðan. Þau eru bara þokkalega hress og mamma átti von á hjúkrunarfræðingnum sem kemur til að skipta um umbúðir á sárinu. Þau voru að eta hafragrautinn sinn og raða í sig lyfjum - það tilheyrir. Pabbi var að verka svið - það verða svið í matinn hjá þeim í dag.
Ekki fór það nú svo að við flyttum geymsludótið okkar upp að Varmalandi á föstudaginn. Bíllinn reyndist of lítill þegar til kom. Það bíður því fram í næstu viku
1 ummæli:
Hey
Það tilheyrir að fá "komment" á bloggin sín. Mikið er nú gaman að þessu og myndskreytingunum sérstaklega. Nú get ég alveg hætt að spyrja frétta þegar ég drattast til að muna að þið búið í næsta húsi og lít við!
Skrifa ummæli