
Í gær fórum við út á Drageyri með Heiðu og Gaua og síðan niður í Kristjaníu til að sjá hvað varð um hina hugsjónaríku hippa sjöunda áratugarins. Sá nokkra tannlitla úr sér gengna hasshausa sem báru þess merki að hafa tekið of mikið út á lífskreditkortið sitt.
Drageyri er skemmtilegt sjávarþorp. Í gamla bænum eru sérlega vel varðveitt gömul hús - sum hver með stráþökum.
Frá Kristjaníu gengum við niður á Strikið. Dóra kvartar um að ég þurfi sífellt að vera að stoppa og glápa. Ég er auðvitað að skoða mannlífið og umhverfið - snýst þetta ekki um það?
Ég er ekki enn búinn að fara á Hvids.., við sjáum til með það - hins vegar tilheyrir að fá sér bjór þegar maður er í K.
Þar sem ég er ekki með neina mynd frá okkur í tölvunni set ég eina af Oddnýju og Úu frá því að þær voru hér í maí.
2 ummæli:
Það er ekki nógu kúl að stoppa of lengi. Eins með að taka myndir í Kristjníu, alls ekki kúl.
d.
Þið hefðuð átt að bjóða úu-mæðgum með - við komum með sólina hvert sem við förum, hvort heldur til Danaveldis eða Frans. Nú gyllir kvöldsólin trjátoppa og Víðimelsstrompa eftir kvöldgróðraskúr og mæðgur sólbakaðar eftir Keflavíkurdvöl frá því á föstudag. Úan vaknaði við heimkomu - svefnvenjur úr skorðum. Góða nótt.
Skrifa ummæli