þriðjudagur, 27. janúar 2009

Að heilsast og kveðjast

Ég vil nota vettvanginn til að þakka ölum þeim sem ég hitti við jarðarför pabba gamla. Það var sérstaklega notalegt að hitta svona marga ættingja og gamla vini í erfidrykkjunni.
Þá eru nú flestir af erlendu ættingjunum flognir af landi brott. Einn gerði sér ferð alla leið frá Brasilíu. Heiða og hennar fylgifiskar fóru utan síðastliðinn fimmtudag. Í gær sá ég þó Skarphéðin, son hennar, í danska fréttatímanum. Hann var staddur þar sem tekið var viðtal við íslenskan námsmann um stjórnmálaástandið á Íslandi. Heimurinn er ekki stór.

Engin ummæli: