sunnudagur, 28. september 2008

Barnalán

Það er ekki á hverjum degi sem öll börn og barnabörn okkar Dóru eru hér á landinu - þannig er staðan þó nú um stundir. Í gær var var Heiða hjá okkur mestallan daginn með báða strákana og okkur lánaðist reyndar að hafa þá svolítið út fyrir okkur stund og stund. Ég fékk meira að segja að skipta um kúkableyju.
Í dag á að skíra. Það verður gert í Bústaðakirkju. Það er skíðapresturinn Pálmi sem sér um það. Heitir hann ekki örugglega Pálmi?...

miðvikudagur, 24. september 2008

Af siglingum

Það var grannt fylgst með ferjusiglingum milli landa síðustu dægrin. Heiða var á leiðinni með Norrænu frá Danmörku - og allt hennar fylgdarlið. Mikið rýnt í veðurspákort og áhyggjur uppi um sjóveiki og aðra kvilla sem fylgt geta því að sigla í kjölfar forfeðranna. Sem betur fer hafa vélar tekið við af frumstæðum þverseglabúnaði - sem gat valdið margra vikna hrakningum og jafnvel því að ferðalangar yrðu afturreka.
Allt fór þetta nú blessunarlega. Fjölskyldan stigin á feðra grund og dvelur, þegar þetta er skráð, í góðu yfirlæti hjá Sollu vinkonu á Sauðárkróki.

Um helgina stefnir svo í skírn.

miðvikudagur, 17. september 2008

Göngur og réttir

Réttað var í Þverárhlíðarrétt síðastliðinn mánudag. Þarna var samankominn fjöldi fjár, enda er þetta fjárflesta rétt landsins. Þegar vel heimtist getur fjöldinn farið upp undir 20.000. Svo var að þessu sinni.
Þarna var líka fjöldi fólks sem naut þess að ösla drulluna í almenningnum upp á mið læri - það rigndi vel annað slagið.
Ölvun og óspektir voru í algjöru lágmarki, en maður sá einstaka rollubrjálæðinga taka rokur. Þetta geta verið hinir mestu geðprýðismenn sem missa sig í æsing og læti þegar kindur eru annars vegar. Kindurnar voru hins vegar stilltar og prúðar - ég tala nú ekki um lömbin.

fimmtudagur, 11. september 2008

Sílaminni

Í þessari á - sem sumir myndu kalla læk - veiddi ég helling af sílum þegar ég var smá strumpur. Veiðarfærið var tvinni með bognum títiprjóni á. Í dag eru títiprjónar ónothæfir til slíks -það er ekki hægt að beygja þá.
Veiðin var steikt á pönnu og étin.

Þetta er auðvitað Moshlíðaráin. Ég fór þangað uppeftir um síðustu helgi og rifjaði upp nokkur staðfræðileg atriði með Hrefnu systur. Hún var auðvitað svo lítil greyið þegar við fluttum frá Moshlíð að hún man ósköp takmarkað. Ég hef reyndar rekið mig á það hjá Fríðu systur að hún man nánast ekkert frá Moshlíðarárunum og er hún þó tveimur árum eldri en ég.

Þetta stafar kannski af því að hún hefur ekki tekið lýsi síðustu áratugina.




miðvikudagur, 10. september 2008

Af klerkum og kirkjum

Um helgina fórum við Dóra með Hrefnu og Gumma á 100 ára afmælishátíð Brjánslækjarkirkju. Hittum þar fjöldann allan af ættingum og kunnuglegu fólki. Þar á meðal voru þeir séra Lárus Halldórsson og Tómas Guðmundsson. Sá fyrri skírði mig en hinn seinni fermdi. Lárus er 88 ára gamall. Hann vígðist 25 ára til Flateyjarprestakalls og þjónaði kirkjunum á Barðaströndinni, líklega frá 1945 - 1955. Þessi aldni klerkur er enn eldhress andlega og líkamlega. Hann predikaði í hátíðarmessunni og gerði það með glans - engin skrifuð ræða.
Þegar hann var að stíga sín fyrstu spor vestra sem prestur þótti hinum rosknari hann vera heldur strákslegur og ekki hafa á sér hinn tilhlýðilega virðuleikablæ sem sæmdi stöðunni. Aðrir höfðu á honum mikið dálæti - þar á meðal mamma gamla.

miðvikudagur, 3. september 2008

Af hornsílaveiðum

Það var blíðskaparveður í dag. Þegar þannig viðrar er alveg tilvalið að fara á hornsílaveiðar. Ég fór því með bekkinn minn niður að Norðurá með veiðigræjur og ílát - við hreinlega mokuðum upp fiski.
Fyrir veiði í ánni greiða feitir bankakallar tugþúsundir, gott ef ekki hundruð þúsunda, á dag - við borguðum ekki neitt, enda stálumst við. Gerðumst auk þess lögbrjótar á þann hátt að fara yfir einkalandareignir einhverra lögfræðinga - eða voru það tannlæknar?
Það er mikilvægt að kenna börnunum að bera hæfilega mikla virðingu fyrir auðmannaeinkarétti. Og ég er fullviss um að krakkarnir voru ekki síður ánægð með ferðina og veiðina en þessir hundraðþúsundkallar.