mánudagur, 28. janúar 2008

Superdansk

Skólahald var með eðlilegum hætti í dag; veðrið gengið niður og börnin komust í skólann. Svona í tölfræði/sögulegu samhengi má gera ráð fyrir því að ekki þurfi að fella niður kennslu vegna veðurs næstu 5 árin því kvótinn er búinn.
Annars trúi ég því að eigendur snjóruðningstækja séu ánægðir þessa dagana - nóg að gera og hægt að skrifa feita reikninga.
Ég lét plata mig til að fara að kenna dönsku í 10. bekk næstu 2 mánuðina (veikindaforföll) og þarf því að fara að berja ryðið af "det danske sprog".
Annars er ekkert sérstakt að frétta. Við Dóra eyddum helginni í sveitarsælunni og þótti það ágæt tilbreyting.

1 ummæli:

Unknown sagði...

Hæ! Vildi bara láta vita að það eru komnar nýjar myndir á barnalandið......... LOKSINS!
Knús og kossar frá Köben.