miðvikudagur, 23. janúar 2008

Dálítið (póli)tíkarlegt

Í gær setti veðrið strik í reikninginn - það þurfti að fella niður skólahald (skólaakstur) vegna hálku og hvassviðris. Þetta varð því afar rólegur dagur hérna á Varmalandinu.
Það var líka kærkomið að hafa tækifæri til að reyna að melta síðustu vendingar í stjórnmálafarsanum í Reykjavík, sem minnir sífellt meira á lélega sápuóperu. Það var ekki bara stóll Svandísar sem losnaði upp í þessum vindsveip, heldur öll sætaröðin kringum borgarstjórnarborðið.
En er það ekki sjúklegt af Sjálfstæðisflokknum að leggjast á þennan hátt á mann sem er að reyna ná sér eftir glímu við erfið veikindi?

1 ummæli:

Oddný moster sagði...

"Cherchez le Villi". Þetta snýst allt um einn mann og vit-leysuna í honum. Það er mín sannfæring og mér sýnist allt benda til þess að ég hafi rétt fyrir mér í því. Og af því þetta er ekki moggablogg og bara innvígðir sem lesa þá ætla ég að gerast svo djörf að segja það sem býr mér í brjósti: Vilhjálmur er slísbeg - örvæntingarfullur hræsnari og því til alls líklegur. Og verkin tala. Af hverju er ekki staðið fyrir alvöru mótmælafundi um helgina niðri í bæ. Svo liðið geti hvorki talið sjálfu sér né öðrum trú um að það séu eintómir 101-illa-uppaldir-unglingar sem hafa eitthvað að segja um málið.