Undanfarnir dagar hafa einkennst af miklu rennsli. Þetta byrjaði allt með miklu lægðarennsli inn yfir landið sem aftur orsakaði mikið vatnsrennsli úr lofti. Fylgjandi því var óvenjulega hratt loftrennsli sem olli á stundum roki, jafnvel ofsaveðri. Af þeim sökum áttu bílar það til að renna út af vegum, sérstaklega þar sem vindar ná sér vel á strik og sviftivindar gerast snarpir. Af ótta við téða vinda lá flug niðri og setti það strik í rennirí hjá fólki sem var að koma frá útlöndum. Þannig var það t.d. með hana Álfheiði dóttur okkar. Bergrún rann hins vegar óhindruð í gegnum þetta allt saman or renndi í hlað heima hjá sér um níuleytið í gærmorgun.
Talandi um rennsli, þá var rennt í gegnum hátíðardagskrá nemenda Varmalandsskóla í morgun. Þetta rann bara nokkuð vel - alla vega lauk því á tilsettum tíma. Þá var tekið til við að renna niður hátíðarmat og síðan var rennt í gegnum jólapóstinn eins og venja er til á litlujólum í skólum.
Læt ég hér með lokið allri umfjöllun um rennsli, þó að ég hefði getatað haft þennan spuna umtalsvert lengri
Engin ummæli:
Skrifa ummæli