miðvikudagur, 26. desember 2007

Af jólahaldi





Pakkar opnaðir - mikið fjör hjá ungviðinum
Hér halda flestir um nefið (ætli það sé maturinn?)


Jólahaldið í Hólmgarðinum hefur öðru fremur einkennst af lasleika. Dóra, Skarphéðinn, Heiða og Bergrún hafa öll verið lasin undanfarið. Dóra var orðin ansi veik á þorláksmessu. Af henni bráði þó nokkuð á aðfangadag og hún var bara nokkuð hress um kvöldið. Þá var Skarphéðinn orðinn lasinn. Heiða og Bergrún eru að jafna sig og orðnar nokkuð sprækar.



Hér eru þær mæðgurnar Úa og Oddný

10 manns voru í Hólmgarðinum á aðfangadagskvöld. Hér eru nokkrar myndir frá því.

Á jóladagsmorgun leit ég við hjá mömmu og pabba og hitti Gumma og Hrefnu.
Mamma var hress og komin á kaf í lestur.
Fór í jólamessu eftir hádegið með Úu, Oddnýju og Steinunni.
Dóra ansi slæm af kvefpestinni.
Hangikjötsát um kvöldið.

sunnudagur, 23. desember 2007

Æ. þetta kvef


Það er einhver uppdráttarsýki í mannskapnum, eða öllu heldur kvefpest. Bergrún er búin að liggja flöt nánast frá því hún kom heim og Heiða slöpp - og nú er Dóra bara sárlasin með hita. Ég stend þó uppi enn (sjö, níu, þrettán - bánk, bánk, bánk).

Mamma fær heimferðarleyfi yfir jólin - hvort sem það er vegna þess að hún er fær um það eða það hentar sjúkrahúsinu. Allavega er hún ánægð með það - og þá ekki síður pabbi.

Svo sjáum við bara til hvað morgundagurinn (aðfangadagur) ber í skauti sínu.
Myndin tengist ekki þessu veikindaveseni. Þvert á móti er hér einn matlystugur.

föstudagur, 21. desember 2007

Jólafrí


Þá erum við Dóra komin í jólafrí. Törninni lauk með jólasýningu nemenda en síðan var haldið til Reykjavíkur þar sem jólin verða haldin að þessu sinni. Í gær var skroppið til Keflavíkur til að hitta Steinunni. Heiða og Skarphéðinn komu með.

Við fórum í kirkjugarðinn til að huga að leiðum og setja upp ljós.

Í tilefni jólanna er hér mynd af henni Grýlu jólasveinamömmu.

þriðjudagur, 18. desember 2007

Af rennsli

Hluti 5. bekkjar rennir niður snakki.
Undanfarnir dagar hafa einkennst af miklu rennsli. Þetta byrjaði allt með miklu lægðarennsli inn yfir landið sem aftur orsakaði mikið vatnsrennsli úr lofti. Fylgjandi því var óvenjulega hratt loftrennsli sem olli á stundum roki, jafnvel ofsaveðri. Af þeim sökum áttu bílar það til að renna út af vegum, sérstaklega þar sem vindar ná sér vel á strik og sviftivindar gerast snarpir. Af ótta við téða vinda lá flug niðri og setti það strik í rennirí hjá fólki sem var að koma frá útlöndum. Þannig var það t.d. með hana Álfheiði dóttur okkar. Bergrún rann hins vegar óhindruð í gegnum þetta allt saman or renndi í hlað heima hjá sér um níuleytið í gærmorgun.

Talandi um rennsli, þá var rennt í gegnum hátíðardagskrá nemenda Varmalandsskóla í morgun. Þetta rann bara nokkuð vel - alla vega lauk því á tilsettum tíma. Þá var tekið til við að renna niður hátíðarmat og síðan var rennt í gegnum jólapóstinn eins og venja er til á litlujólum í skólum.

Læt ég hér með lokið allri umfjöllun um rennsli, þó að ég hefði getatað haft þennan spuna umtalsvert lengri

sunnudagur, 16. desember 2007


Heiða kom heim að morgni laugardags með barnabarnið okkar. Þetta var ansi þvælin ferð fyrir hana því að fluginu var frestað frá hádegi á föstudegi fram til kl. 02:00 aðfararnótt laugardags, vegna veðurs.

Við Dóra komum ekki til Reykjavíkur fyrr en um ellefuleytið á föstudagskvöldið - vorum að bíða af okkur versta veðrið eins og flugfélagið. Tengdaforeldrar Heiðu sóttu þau mæðginin.

Ekki hef ég nú komið miklu í verk um helgina - er óþarflega laus við jólastress.

Aftur á móti hef ég heimsótt pabba og mömmu. Mamma gæti losnað af sjúkrahúsinu fyrir jól.

Á morgun kemur svo Bergrún heim - núna frá USA. Síðast var spilað í Las Vegas. Næst er það Eyjaálfan.


miðvikudagur, 12. desember 2007

Morgunleikfimi

Gísli Einarsson, fréttamaður, kom í skólann í morgun með sín tæki og tól og tók upp morgunleikfimi 4. bekkinga, sem þeir iðka eftir útvarpsþættinum, "morgunleikfiminni", í Ríkisútvarpinu. Þessi dagskrárliður er gamall í hettunni þar á bæ.

sunnudagur, 9. desember 2007

Útför Bosh (ekki Bush - því miður)



Þar kom loksins að því. Í gær hentum við gamla Bosh ísskápnum sem væntanlega er búinn að standa vörð í eldhúsinu undanfarin 50 ár. Þessi ísskápur hefði átt skilið að fá virðulega útför með guðsorði og yfirsöng en í stað þess var laumast með hann inn í Sorpu og hann skilinn þar eftir eins ungabarn á klausturtröppum - ja, eða í ruslatunnu.

Reyndar var skápurinn hættur að kæla. Það snörlaði bara eitthvað í honum.

Á föstudagskvöldið fórum við Dóra á íburðarmikið jólahlaðborð með starfsmönnum Varmalands. Mikið át og síðan átti að syngja. Hvernig á maður að syngja, sitjandi við borð og hálfsprunginn úr ofáti?

Um helgina höfum við Dóra verið að stússast í Hólmgarði 6. Það fer að bresta á með jólaveseni.

Heiða er væntanleg heim á föstudaginn með soninn Skarphéðin. Hér er jólamynd í tilefni af því.

þriðjudagur, 4. desember 2007

Þessi tími!

Þá er Fríða farin af landi brott og komin til síns heima. Geir hefur væntanlega tekið henni tveim höndum eins og hún á skilið - hann má reyndar ekki af henni sjá. Ranka verður hér enn um sinn, eða fram á laugardagsmorgun.
Bergrún er á leið til Mexíkó á morgun - þar verður spilað 8. - og fer þaðan til Englaborgar og Las Vegas. Ég held að það séu þrennir eða fernir tónleikar í þessum túr. Hún kemur væntanlega heim 17. eða 18. des.
Mamma fer inn á sjúkrahús á morgun - og í aðgerð. Vonandi kemst hún þó heim fyrir jól.

sunnudagur, 2. desember 2007

Mót

Ég hef verið að sniglast kringum systur mínar og foreldra um helgina.
Í gærkvöld tróðum við okkur sameiginlega út af steiktu kjöti, moltuberjadesert og ís. Moltuberin eru afar hátt skrifuð í berjamenningu Norðmanna. Það vex mikið af þeim norðanlands og stundum upp til heiða, t.d. í Setesdal þar sem Fríða á sumarhús.
Á myndinni sem fylgir er Fríða að sleikja síðustu leifarnar úr skálinni.
Í kvöld förum við Dóra í hangikjötsveislu hjá Kór Kálfatjarnarkirkju. Við sungum í þessum kór í áratug eða svo. Kíkjum við hjá Steinunni á eftir, áður en við förum í Vogana.