
Staddur í Hólmgarði - Dóra í Ólafsvík. Hún fór þangað með Sillu og fleiri MÍ-ingum úr árgangi sínum frá Ísafirði. Ekkert sérstakt í fréttum utan það. Jú, ekið á nýkeyptan bíl Oddnýjar sama dag og hún fékk hann "í hendur". Skaðvaldurinn stakk af og Oddný situr uppi með hluta skaðans. Um daginn var ekið aftan á bíl Andra - hann var sjálfsagt í rétti.
Þannig er nú það.
Mamma á að fara í aðgerð með sárið sitt í næstu viku. Það hefði betur mátt gerast fyrir nokkrum mánuðum síðan.
Þannig er það nú. Segi pass.
1 ummæli:
Verð að skála við ykkur. Afskaaaaplega ánægjulegt að fá þarna innlit í hvítvínslopapeysukósístund Varmalands-gemlinganna.
Ykkar aðal beygla.
Skrifa ummæli