laugardagur, 30. júní 2007

Fra Köben


Það er svosem ekkert sérstakt að frétta úr Danaveldi. Veðurspáin alltaf sú sama, rigning og kalsaveður. Hef samt ekki enn lent í neinni rigningu og það hefur verið sólarskíma upp á hvern dag. Það blæs örlítið, en hvaða Íslendingur er ekki vanur því?
Í gær fórum við út á Drageyri með Heiðu og Gaua og síðan niður í Kristjaníu til að sjá hvað varð um hina hugsjónaríku hippa sjöunda áratugarins. Sá nokkra tannlitla úr sér gengna hasshausa sem báru þess merki að hafa tekið of mikið út á lífskreditkortið sitt.
Drageyri er skemmtilegt sjávarþorp. Í gamla bænum eru sérlega vel varðveitt gömul hús - sum hver með stráþökum.
Frá Kristjaníu gengum við niður á Strikið. Dóra kvartar um að ég þurfi sífellt að vera að stoppa og glápa. Ég er auðvitað að skoða mannlífið og umhverfið - snýst þetta ekki um það?
Ég er ekki enn búinn að fara á Hvids.., við sjáum til með það - hins vegar tilheyrir að fá sér bjór þegar maður er í K.
Þar sem ég er ekki með neina mynd frá okkur í tölvunni set ég eina af Oddnýju og Úu frá því að þær voru hér í maí.

þriðjudagur, 26. júní 2007

Af utanferð


Sumir tala um að þeir séu að fara út þegar þeir bregða sér út fyrir landsteinana. Hið rétta er auðvitað að menn fara utan. Við erum sem sé að fara utan til Köben á morgun. Hér fyrr á öldum voru menn að þvælast í hafi vikum saman og undir hælinn lagt hvar land var tekið ef menn á annað borð komust á leiðarenda - stundum brutu menn skip sitt í landtöku. Þá tíðkaðist einnig að ganga á fund konungs og reyna að koma sér í mjúkinn hjá honum í von um að hann léti einhver verðmæti af hendi rakna - kannski hitti ég Margréti Þórhildi á krá og hún splæsir bjór. Skarphéðinn og langafi fylgjast með flugu
Flogið verður um eittleytið og við verðum því komin til höfuðborgarinnar síðdegis.
Engin sérstök plön eru uppi um athafnasemi þessa daga sem við stoppum, nema kannski að fara á Hvids Vinstue eða Skindbuksen - ef Dóra samþykkir. Jú, við ætlum að skoða Kronborgarkastalann.

Bergrún er núna í Brussel - á að spila á fimmtudaginn (28.). Andri er búinn í fríinu sínu og farinn að vinna aftur. Þetta var stutt frí.

Hitti Rönku í Hólaberfinu í dag. Hún var að baka bollur og snúða í kílóavís - sem bætist við það sem Fríða bakaði um daginn - þetta endist eflaust fram undir jól.

Ef ég kemst í tölvu í Köben segi ég e.t.v. fréttir af okkur - annars bara bless þar til næst...

mánudagur, 25. júní 2007

Kominn í frí.......... eða þannig



Það má auðvitað segja að maður sé kominn í frí. Ég fór ekki í vinnu í morgun en á þó eftir að ganga frá ýmsu.

Nú er Ranka systir á landinu, eins og komið hefur fram. Í gær kíktum við Heiða og Skarphéðinn í Hólabergið og átum þar ljúffenga rjómatertu sem Ranka hafði bakað. Fór með Dóru þangað í morgun til að smakka á þeirri sömu tertu. Ég skrapp svo með pabba í bankaleiðangur en Dóra fór í ferðalag með mömmu sína, Díu, Oddnýju og Úu. Ferðinni var heitið á Þingvelli og víðar. Hér er mynd af Rönku o.fl

Sit hér einn heima - það er ekkert slæmt. Veðrið er gott og fuglarnir syngja og kettirnir eru væntanlega á veiðum - þetta er veiðitími þeirra. Máni er samt hættur að bera björg í bú, enda þekkir hann það af biturri reynslu að því er ekkert vel tekið. Furðulegt með mennina sem sjálfir drepa sér til matar.

sunnudagur, 24. júní 2007

Afmæli




Andri hélt upp á afmælið sitt í dag. Hann pantaði blíðskaparveður og fékk það afgreitt með smá golu í kaupbæti. Gerðist grillmeistari og afgreiddi brenndar kjötsneiðar sem fólk virtist láta sér líka. Kartöflusalatið var líka etið. Nægar birgðir af drykkjarvörum voru á boðstólum. Þegar ég yfirgaf pleisið um átta-leytið voru menn orðnir kátir.


Día, Steinunn, Oddný, Reynir og Heiða voru þarna auk mín og Dóru og Skarphéðins- og þar að auki allmargir vinir og kunningjar Andra - flestir gamlir skólafélagar úr HÍ og Versló - held ég.


Í morgun horfði ég á upptöku af hljómleikum Bjarkar (og Bergrúnar) í Glastonbury. Myndirnar fremur daufar en hljóðupptakan fín.

föstudagur, 22. júní 2007

Þetta líf, þetta líf..........


Þá er nú heimasætan farin enn og aftur út í heim. Í þetta sinn er ferðinni heitið til 10 landa, held ég. Byrjað á Englandi - í Glastonbury og síðan áfram...... Það spáir rigningu þar í kvöld. Líklega er hún að byrja að spila í þessum skrifuðu orðum.

Og Andri orðinn þrítugur. Varð það kl. 01:00 í nótt. Fæddist sumsé fyrir þetta löngu síðan. Man það eins og það hafi gerst í gær - eða fyrradag. Þetta var mikið erfiði og átök fyrir mig - Dóra þurfti bara að liggja.

Drengurinn ætlar að halda upp á atburðinn á morgun með útiveislu við Kirkjubæ.

Fórum ásamt Heiðu og Skarphéðni í heimsókn til ömmu og frænku í Keflavík á sunnudaginn. Komum við á landareigninni á Vatnsleysuströndinni með nokkrar plöntur. Skarphéðinn skoðaði berjasprettu.

Solla vinkona kom með kall og stelpu að kíkja á Heiðu í fyrrakvöld. Hér er mynd af þeim sem Sollu vantar reyndar á.

Sótti Rönku systur á völlinn í fyrradag. Greip hana um leið og hún stakk nefinu út um útganginn - það fór því ekki með hana eins og Fríðu.

Núna áðan var Skarphéðinn að gera árangursríkar tilraunir til að ganga - við mikinn fögnuð sinn og annarra viðstaddra

sunnudagur, 17. júní 2007

Þá held ég nú að....



Það kom að því á fimmtudaginn að okkur tókst að flytja geymsludótið okkar upp að Varmalandi. Andri kom með sem hjálparmaður. Við renndum í hlað rétt á undan flutningabílnum. Pétur Oddson var mættur á svæðið - hann býr reyndar í næsta húsi - og hjálpaði okkur við að bera dótið inn í geymslu í gamla húsmæðraskólanum. Svo birtist Ásgeir Rafnsson, húsvörður, útjaskaður eftir 35 kílómetra reiðtúr með skólabörn og lagði sitt af mörkum til að innsigla endurkomu okkar að Varmalandi.


Á þessari mynd má sjá tvær ömmulegar kellingar
reyna að kenna litlum dreng að ganga.

Sigga hans Péturs bauð í kaffi - alveg hætt að baka sagði hún, en átti þó nýbakað bananabrauð, volgt úr ofninum, fyrir utan annað sem rataði á borðið.

Fríða farin heim til Grimstad að passa kallana sína og Ranka væntanleg þann 20. Hrefna og Gummi í Noregi í boði álrisa.

Öll gamla fjölskyldan hittist í gær og fékk sér rónasteik. Það gerist oftar nú en áður, þ.e. að við borðum saman - ekki endilega rónasteik.

Bergrún fér utan á fimmtudaginn. Þá hefst önnur törnin í tónleikaflökkulífi hennar með Björk. Nú er það Evrópa sem á að leggja að fótum sér.

föstudagur, 15. júní 2007

Frá Moshlíð


Ég ók Fríðu á völlinn eldsnemma á fimmtudagsmorgun.
Fór að segja henni frá gömlum kærasta mömmu. Hún hafði aldrei heyrt um hann enda ekki von, fólk er ekkert að ræða slíka hluti. Það getur þó verið gaman að sjá sína nánustu í nýju samhengi.

Ég fór að velta fyrir mér hvort systkini mín sæju ættaróðalið Moshlíð fyrir sér á sama hátt og ég. Ef þið sjáið þetta megið þið gjarnan gera athugasemdir.
Þetta er ekki ættaróðalið heldur Borðeyrin.
Hvíta húsið næst á myndinni er Brynjólfshús.

Bærinn stóð á miðju túni á lágum hól. Norður frá bænum hallaði niður að bæjarlæk. Þangað var allt vatn sótt.
Þetta var járnklætt timburhús. Suðurveggurinn, að ég held, var hlaðinn úr torfi og grjóti en húsið var með tveimur risum. Dyrnar snéru í norður og var gangur inn, með stofu á hægri hönd. Úr enda gangsins var gengið beint inn í eldhúsið og strax til hægri handar var gengið inn í svefnherbergi. Þeim megin í eldhúsinu var miðstöðvareldavélin og við suðurvegg eldhússins var stigi upp á risloft með tveimur herbergjum. Búr var inn af eldhúsinu í norð-austur horninu. Það var aflangt; súrtunnur með austurvegg, skilvinda og strokkur á borði, glergeymir til að hleypa í skyr – þetta var gamall rafgeymir úr gleri, hleðslugeymir frá vindrafstöðinni á Brjánslæk. Úr búrinu var gengt upp á óinnréttað loft sem notað var fyrir geymslu. Þar man ég eftir mélsekkjum. Í huga mínum var það músaloftið. Kannski var það kallað því nafni. Með austurvegg eldhússins var borð sem yfirleitt var borðað við. Oft var þó borðað inni í stofu - sérstaklega á helgidögum. Þar var stofuborð, stækkanlegt og þar var einnig stofuskápur, laus. Í stofunni svaf pabbi á dívan við norðurvegginn. Mamma og við börnin sváfum í herberginu inn af eldhúsinu. Á eldhúsborðinu næst búrinu stóð vatnsfatan og hjá henni ausa til að ausa vatni upp úr fötunni. Engin vatnslögn var í húsið – allt vatn var sótt í ána, bæjarlækinn, 30 metra vegalengd. Ekkert rafmagn var í húsinu. Lýst var upp með olíulömpum.
Beint upp af bænum, 10 – 15 metra í austur, var skemman. Hlaðnir veggir en líklega járnþak. Þar voru geymd ýmis verkfæri sem tilheyrðu búskapnum, þar voru saltkjötstunnur, minnir mig, og þar var kamar.
rétt norðan við skemmuna, nær ánni var fjósið
Fjósið var lítið lágreist hús, veggir hlaðnir – rúmaði ekki nema tvær kýr og 2 – 3 kálfa. Ég man að síðasta árið eða tvö var vatnsdæla í fjósinu – mér þótti það merkilegt tæki. Reyndar var einnig vatnsdæla í eldhúsinu en ég minnist þess ekki að hún skilaði nokkurntíma því hlutverki sem henni var ætlað. Dælan í fjósinu virkaði betur.
Síðasta árið sem við bjuggum í Moshlíð minnist ég þess að pabbi útbjó hænsnabúr í fjósinu. Hænurnar létu samt aldrei sjá sig.
Fjárhúsin voru sömuleiðis með hlöðnum veggjum sem og hlaðan og hrútakofinn sem stóð sér ármegin við fjárhúsið.
Fjárhúsið stóð efst í túninu - tvö ris og hlaðan áföst fyrir ofan. Frá bænum upp að fjárhúsinu gætu hafa verið rúmir hundrað metrar.Ein bygging í viðbót var þarna í túninu. Það var lítill bær eða kofi sem gekk undir nafninu Dísukofi. Þar bjó gömul einsetukona, Herdís, fram yfir miðja öldina. Líklega hefur hún búið þar fram til 1952.

sunnudagur, 10. júní 2007

Í fréttum er þetta helst...


Skólaslit á fimmtudaginn síðasta. Troðfullur salur af fólki. Allt hefðbundið með ræðuhöldum, verðlaunaafhendingu, blómum og krönsum. Þetta voru síðustu skólaslitin mín í þessum skóla og að því tilefni skrifaði ég ekki ræðuna mína heldur lét reyna á það hvort ég gæti ekki tafsað út úr mér því sem þyrfti. Veit ekki hvort nokkur tók eftir þessu.
Óvenju margir eru að hætta störfum eða fara í frí - eða verið sagt upp vegna skipulagsbreytinga í mötuneyti. Alls 13 manns, eða um þriðjungur starfsmanna. 8 kennara + ég eða 9 af 22 kennurun/stjórnendum.
Ég væri á bömmer ef ég ætti að bera ábyrgð á því sem tekur við í haust. Ég reyni auðvitað að ráða fólk til starfa en auglýsingar hafa engu skilað hingað til - algjör ördeyða á miðunum. Erfitt að ganga frá stundatöflu undir slíkum kringumstæðum.

Veisla hjá Siggu Röggu á föstudagskvöldið. Mikil gleði, mikið gaman. Fattaði að þetta var eins konar kveðjuveisla fyrir mig. Fékk frábæra minningarbók frá öllum starfsmönnum - ein síða á hvern starfsmann.
Var frekar timbraður í gær - skil ekkert í því.

Við sóttum Fríðu á flugvöllinn seinni part föstudagsins. Okkur tókst að farast á mis. Hún beið úti eftir mér og ég eftir henni við útganginn úr tollinum. Fundumst að liðnum hálftíma.

Heiða og Skarphéðinn komu með í Hólabergið í gær til að heilsa upp á Fríðu, pabba og mömmu/afa og ömmu/langafa og langömmu. Áður höfðu þau heilsað upp á tengdamömmu/ömmu.

Þetta var svona það helsta

sunnudagur, 3. júní 2007

Helgin


Það var haldin útfararveisla fyrir okkur Dóru í skólanum á föstudaginn með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Mikið af tertum.

Þá eru amríkanarnir komnir til fyrirheitna landsins. Día býr hjá systur sinni í Keflavík en Rick og Robin ásamt syni eru hjá Oddnýju og Úu sem eru komnar heim frá Frans. Þau litu öll við hjá okkur í gær.
Hér er mynd af Rick, Robin, Nickolas Ingólfi, Úu og Skarphéðni

Við Dóra og Bergrún skruppum í stúdentsveislu Emblu. Hún var sumsé að útskrifast frá MR.
Ég leit við hjá pabba og mömmu í gærmorgun og aftur nú áðan. Þau eru bara þokkalega hress og mamma átti von á hjúkrunarfræðingnum sem kemur til að skipta um umbúðir á sárinu. Þau voru að eta hafragrautinn sinn og raða í sig lyfjum - það tilheyrir. Pabbi var að verka svið - það verða svið í matinn hjá þeim í dag.

Ekki fór það nú svo að við flyttum geymsludótið okkar upp að Varmalandi á föstudaginn. Bíllinn reyndist of lítill þegar til kom. Það bíður því fram í næstu viku