Það er fallegt að gefa góð fyrirheit. Það er siður sem iðulega skýtur upp kollinum um áramót. Þarna trónir efst á blaði það sem kalla má lífsstílsfyrirheit. Fólk heitir því að borða minna, grennast, léttast, rækta á sér vöðvana með einhverju öðru en mat og sætindum - fara að stunda ræktina. Svo eru aðrir sem setja sér takmark sem snýr að afrekum; ganga á fjöll og stunda útivist af ýmsu tagi. Minna virðist fara fyrir bættri umgengni við þá sem næstir standa heitandanum. Ég sé sjaldan heit um að foreldrar lofi að eyða meiri tíma með börnunum sínum, þó að slíkt geti vissulega verið þarna á listanum. En samt virðist sem heitstrengingar um að taka sig á snúi mest að einstaklingnum sjálfum. Erfiðar fjallgöngur, útivistarkapphlaup og langir hjólatúrar í mollulegum heilsuræktarstórhýsum eru ekki líklegir til að lengja þann tíma sem gefst til að sinna smáfólkinu. En blessunarlega eru þó margir sem kunna að samtvinna hreyfingu, útivist og skemmtilega upplifun með fjölskyldunni.
fimmtudagur, 19. janúar 2017
miðvikudagur, 18. janúar 2017
Af því bara
Nú eru jólin afstaðin og lífið gengur sinn gang. Sólin byrjuð að fikra sig hærra á himininn, þó að dagamunurinn sé ekki mikill. Samt sem áður ber þetta með sér þá vissu að það vori á ný, grös spretti úr mold og kartöflur spíri. Innan fárra daga verða börnin mín öll stödd á Landinu blá, gráa, hvíta - líka þessi yngsta sem elur manninn í útlandinu. Það verður ánægjulegt, en þó skammgóður vermir því sú stutta verður óðara flogin á vit óvissrar framtíðar.
En þegar fer að vora fær skóflan, sögin og hamarinn aftur hlutverk og tilgang, því Skammidalurinn bíður, bundinn sem stendur í kulda og snjó, en samt fyrirheitna landið þar sem hlutirnir eiga að gerast - hægt.
En þegar fer að vora fær skóflan, sögin og hamarinn aftur hlutverk og tilgang, því Skammidalurinn bíður, bundinn sem stendur í kulda og snjó, en samt fyrirheitna landið þar sem hlutirnir eiga að gerast - hægt.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)