
Það var að ýmsu leyti bara hressandi að stíga aftur á íslenska grund eftir hitakóf í Köbenhavn. Farþegum var smalað út úr flugvélinni, niður á rennvott malbikið, beint út í rok og rigningu. Iceland Express virðist vera hætt að nota landgöngurana - kannski í sparnaðarskyni.
Svo leitar allt í sama veðurfarið og við þóttumst leggja að baki þegar við yfirgáfum K - heitt í dag, heitt í gær, heitt á morgun.
Ranka systir og karlpeningur fjölskyldunnar er í heimsókn á Íslandi og einnig Hjörtur bróðir. Í dag á pabbi gamli afmæli - er orðinn 82 ára.
1 ummæli:
Heill og sæll Snæbjörn. Til hamingju með þann gamla og nýa frænda. Ég er líka orðin afi.
Frænkur mínar Ragnhildur og Bjarnfríður þurfa endilega að koma sínum börnum í Íslendingabók.
Mbk.Ægir
Skrifa ummæli