miðvikudagur, 30. janúar 2008

Þorri


Í dag skín sólin, en undanfarið hefur snjóað óvenju mikið. Það þarf því ekki mikið að hreyfa vind svo að allt verði ófært hér í uppsveitum Borgarfjarðar. Við sjáum til hvernig viðrar á morgun, en auðvitað er þetta bara íslenskt Þorraveður. Um Þorrann á maður bara að halda sig inni við og éta súra hrútspunga og hákarl.

Í gær fórum við með 10 - 13 ára krakka í Egilshöllina og leyfðum þeim að staulast um á skautum - þeim þótti það mjög gaman. Ég hætti mér ekki út á svellið - það var svo sleipt. Sæmundur ók okkur til Reykjavíkur og með það í huga að hann er bæði hálfblindur og getur dottið úr sambandi hvenær sem er, þá stóð hann sig bara framar væntingum - hann kom öllum á áfangastað ósködduðum.

mánudagur, 28. janúar 2008

Superdansk

Skólahald var með eðlilegum hætti í dag; veðrið gengið niður og börnin komust í skólann. Svona í tölfræði/sögulegu samhengi má gera ráð fyrir því að ekki þurfi að fella niður kennslu vegna veðurs næstu 5 árin því kvótinn er búinn.
Annars trúi ég því að eigendur snjóruðningstækja séu ánægðir þessa dagana - nóg að gera og hægt að skrifa feita reikninga.
Ég lét plata mig til að fara að kenna dönsku í 10. bekk næstu 2 mánuðina (veikindaforföll) og þarf því að fara að berja ryðið af "det danske sprog".
Annars er ekkert sérstakt að frétta. Við Dóra eyddum helginni í sveitarsælunni og þótti það ágæt tilbreyting.

föstudagur, 25. janúar 2008

Hvert þó í þreifandi!

Skólahald var fellt niður í dag - öðru sinni í þessari viku. Olli því ofankoma og skafrenningur - og mikill snjór fyrir. Skólabílstjórar treystu sér ekki til að komast leiðar sinnar. Það virðist því nokkuð ljóst að við Dóra höldum okkur heima í dag og hættum ekki á nein ferðalög - við erum svoddan kellingar.
Við reynum kannski að komast í Bauluna til að afla vista fyrir helgina.

En svo ég snúi mér að pólitískum þreifingum.
Ef roskinn kall með gráa fiðringinn reynir án árangurs við unga, gifta konu, er hún þá að halda fram hjá? Dálítið islamskt, ekki satt?

miðvikudagur, 23. janúar 2008

Dálítið (póli)tíkarlegt

Í gær setti veðrið strik í reikninginn - það þurfti að fella niður skólahald (skólaakstur) vegna hálku og hvassviðris. Þetta varð því afar rólegur dagur hérna á Varmalandinu.
Það var líka kærkomið að hafa tækifæri til að reyna að melta síðustu vendingar í stjórnmálafarsanum í Reykjavík, sem minnir sífellt meira á lélega sápuóperu. Það var ekki bara stóll Svandísar sem losnaði upp í þessum vindsveip, heldur öll sætaröðin kringum borgarstjórnarborðið.
En er það ekki sjúklegt af Sjálfstæðisflokknum að leggjast á þennan hátt á mann sem er að reyna ná sér eftir glímu við erfið veikindi?

mánudagur, 21. janúar 2008

Þar stóð hnífurinn í ....

Kötturinn Máni lætur fara vel um sig
Auðvitað var skroppið til R um helgina. Máni köttur gætti á meðan bús á Varmalandi. Ég horfði ekki nema með öðru auganu á handboltann á laugardaginn og sleppti leiknum við Frakka - eins gott. Hins vegar sá ég Silfur Egils þar sem hæst bar sjálfseyðingarhvöt Framsóknar. Það er flott þegar menn opna svona inn í hrútakofann - Guðni gerði það nú með bókarútgáfu. Hvað höfðingjarnir hafast að..........
Keypti eldhúshníf um helgina. Ekki til að stinga í bakið á neinum, heldur handa pabba og mömmu.
Í liðinni viku sá ég myndasyrpu af dóttur minni í teygjustökki hinu megin á hnettinum. Eins gott að ég vissi ekki af þessu fyrirfram - eða þá hún móðir hennar, sem kann best við sig á sléttlendi.
Það held ég nú.

mánudagur, 14. janúar 2008

Jaml...

Þegar þetta er skrifað er yngri dóttirin nýfarin í loftið frá Keflavíkurflugvelli og er stefnan tekin á Nýja-Sjáland með tilheyrandi millilendingum. Þetta tekur svona 30 stundir. Tónleikar á Nýja-Sjálandi, Ástralíu, Kóreu, Japan og í Kína.
Sá á Moggasíðunni að Björk hefði ráðist á nýsjálenskan ljósmyndara sem ekki vildi láta segjast - það byrjar fallega!
Við erum föst á þessum kalda klaka - það er byrjað að snjóa.

Jaml...

fimmtudagur, 10. janúar 2008

Og sagan endurtekur sig


Þá er Heiða farin til Danmerkur með sína fylgifiska og bráðum leggur Bergrún upp í langferð. Við hin sitjum eftir og nögum neglur eða gerum eitthvað annað álíka gáfulegt. Þessi kennsla er auðvitað gjörsamlega glötuð - hvaða vit er í því að vera að reyna að troða þekkingu í krakka - það koma sífellt nýir nemendur jafn fávísir í stað þeirra sem hendinni er sleppt af. Hvað sagði ekki kaupmaðurinn?: - Það er vonlaust að vera að panta nýjar vörur, þær klárast alltaf strax. Eða bóndinn sem skildi ekkert í því hvað lömbin gátu alltaf verið vitlaus á haustin þegar þau komu af fjalli, þó að þau endurtækju þetta ár eftir ár.

Þetta var nú það sem mér lá ekki á hjarta.......... En myndin er af Dóru og Skarphéðni.

sunnudagur, 6. janúar 2008

Og lífið gengur sinn gang

Þá fer þessu jólaástandi að ljúka. Það er bæði gott og ekki gott. Það þýðir t.d. að dæturnar hverfa af landi brott. Önnur til Danmerkur og hin til Eyjaálfu og Austurlanda fjær. En þetta hefur það einnig í för með sér að lífið fellur í ákveðnar skorður - maður þarf að fylla út í vinnurammann. Það eru viðfangsefnin sem halda manni á löppunum, annars gæti maður allt eins snúið upp tánum.
Hver segir að jólahald sé ekki viðfangsefni?
Skarphéðinn var í pössun hjá okkur Dóru í fyrrakvöld og fyrrinótt. Hann verður sífellt ræðnari.
Ég hitti pabba og mömmu í gær - og líklega aftur í dag. Þau bera sig vel. Ég held að nú fari að sjá fyrir endann á þessu sárabasli mömmu - allt bendir til þess.
Í kvöld förum við upp í Borgarfjörð og tökum Mána (kött) með okkur. Hann hefur verið í jólafríi í Reykjavík.

fimmtudagur, 3. janúar 2008

Héðan

Þá er að setja sig í réttar stellingar á ný. Það hafa bæst við nokkrar nýjar magafellingar yfir jólin sem maður verður einnig að takast á við. Við komum upp að Varmalandi seinni partinn í gær og hrukkum stuttu seinna upp við sprengigný - flottastar eru flugeldasýningarnar til sveita þar sem ljósamengunin er ekki eins ágeng. Brenna - flugeldasýning - spilavist í Þinghamri (100 manns mættir). Hér virðist kynslóðabilið útmáð því að fólk á aldrinum eins til níutíu ára var að skemmta sér saman.
Svona á þetta auðvitað að vera!