
Í dag afrekuðum við Dóra það að láta klippa okkur. Ég lét taka, á að giska, einn og hálfan sentimetra af hárinu á mér. Okkur samdist allavega um það, mér og klippikonunni. Líklega hefur Dóra misst meira.
Ég málaði einn glugga, held ég. Það var að vísu byrjað að skyggja þegar ég hóf málverkið - ég athuga á morgun hvort það eru einhverjir helgidagar sjáanlegir - það er auðvitað sunnudagur á morgun.
Það var gott veður í dag. Það var heimsóknardagur í dag - pabbi og mamma. Dóra fór í sund meðan ég vísiteraði hjá pabba.
Dóra náði eldavélinni fram (mér tókst það ekki um daginn), setti nýjar perur á sinn stað og þreif á bak við. Hún er komin af tæknifólki. Mínir áar voru flestir einhverjir rolluhausar.
Ljótt að segja svona!
2 ummæli:
já... þú ert alveg ótrúlega vel "gefinn" þinni konu...
litla o.
Heill og sæll frændi.
ég frétti af þessari síðu hjá frænda þínum Hrafni "Krumma" sem var á heilsuhælinu HNLFI.
Hér getur maður náð í fréttir af frændgarði. Þetta með Varmaland er svoldið framandi fyrir mig. Vonandi fer mömmu þinni að batna. Bið að heilsa Pabba þínum og öðrum frændgarði. Bestu kveðjur úr Hveragerði. Ægir
Skrifa ummæli