sunnudagur, 30. september 2007

Af bændum og búaliði


Enn og aftur erum við stödd í Hólmgarðinum. Það er ósköp notalegt. Okkur tókst að koma þeim bláa í viðgerð - liðaðgerð á framhjóli (þetta heitir víst spindill). Svo kom Bergrún heim í gærmorgun úr 5 vikna tónleikaferðalagi - ósköp þreytt greyið. Við sóttum hana á völlinn - flugvélin lenti um háf sjö. Þess vegna notuðum við tækifærið og gistum hjá Steinunni í Keflavík. Bergrún svaf svo í mestallan gærdag en vaknaði undir kvöld og við héldum upp á heimkomuna með steiktu læri. Andri kom og borðaði með okkur.
Ég hef verið nokkuð hjá gömlu hjónunum í Hólmgarðinum. Það líður að því að mamma verði lögð inn í aðgerð vegna sársins - það vill ekki gróa á eðlilegan hátt. Gulla frænka er búin að vera bjargvættur þeirra í þessu læknabaksi sem og í öðru - hún hlýtur að eiga stóra innistæðu á ónefndum stað fyrir allt það sem hún hefur verið að bauka fyrir aðra. Mamma er bara einn af mörgum skjólstæðingum.

Í dag hef ég verið að mála stofugluggann og Dóra er núna að baka fyrir kvöldsamkomu kennara á Varmalandi.

Áðan náðum við sambandi við Heiðu í gegnum skæpið. Við gátum talað við hana og séð hana og Skarphéðin. Það verður gaman í framtíðinni að geta notað þessa aðferð.

Seinni partinn í dag förum við uppeftir, en á morgun er engin kennnsla - við verðum með vinnudag í Borgarnesi.

laugardagur, 22. september 2007

Af beyglum


Staddur í Hólmgarði - Dóra í Ólafsvík. Hún fór þangað með Sillu og fleiri MÍ-ingum úr árgangi sínum frá Ísafirði. Ekkert sérstakt í fréttum utan það. Jú, ekið á nýkeyptan bíl Oddnýjar sama dag og hún fékk hann "í hendur". Skaðvaldurinn stakk af og Oddný situr uppi með hluta skaðans. Um daginn var ekið aftan á bíl Andra - hann var sjálfsagt í rétti.

Þannig er nú það.

Mamma á að fara í aðgerð með sárið sitt í næstu viku. Það hefði betur mátt gerast fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Þannig er það nú. Segi pass.

miðvikudagur, 19. september 2007

Miðvikudagurinn 19. sept.


Eftir allt saman þá fórum við Dóra til Reykjavíkur á sunnudaginn. Eins gott því forstofan var að fyllast af blöðum og pósti.

Kennslunni er lokið í dag - á morgun verð ég bara með einn bekk. Það verður þægilegt. Mánudagurinn fór að mestu í réttarferð. Það var skemmtileg upplifun. Líklega hafa verið um 17 - 18.000 kindur í réttinni og mikill handagangur að draga í rétta dilka.

Ég set hér með mynd úr réttarferðinni.

laugardagur, 15. september 2007

laugardagur


Það er enn og aftur komin helgi - tíminn líður hratt. Við Dóra sitjum þó sem fastast á Varmalandi og förum ekki fet, nema kannski í Borgarnes. Ég var reyndar lagður af stað á Borðeyri seinni partinn í gær og var kominn upp að Hreðavatni þegar ég áttaði mig á að ég hefði ekki lykil að Brynjólfshúsi meðferðis. Snéri því við til baka. Hrefna og Gummi komu í heimsókn. Þau voru á leiðinni vestur á Barðaströnd að smala um helgina. Þau smala fyrir Einar og Bíbí - hafa gert það nokkrum sinnum.

Síðustu dagana hef ég kennt saman tveimur bekkjum - 4. og 5., og geri það fram á miðvikudag. Á mánudag verður farið með börnin í Þverárhlíðarrétt.

Svona er nú það.

laugardagur, 8. september 2007

Af tíðindaleysi


það eru litlar fréttir að segja af okkur Dóru. Tilveran er að falla í ákveðinn farveg - vinna, eta og sofa, auk tilfallandi Reykjavíkurferða um helgar. Þar erum við núna þegar þetta er skráð. Við fórum í mat til Oddnýjar í gærkvöld. Hún er orðin Svíþjóðarvinur eftir ferðina þangað í síðustu viku. Úa er að byrja í ballettskóla í dag. Við förum því væntanlega að stunda ballettsýningar á komandi árum.

Máni passar sem stendur íbúðina á Varmalandi og Andri er að ala upp nýjan kattastofn á Laugarnesveginum. Þar eru kisurnar fjórar sem stendur.

Skarphéðinn, sjarmatröll, er byrjaður á leikskóla úti í Köben og gengur, held ég, bara vel.

Ég hitti pabba og mömmu áðan í Hólaberginu. Sárið hennar mömmu er nú óðum að gróa svo að það lítur bara vel út með þann bata.

Þetta er staðan svona í hnotskurn - og ekki orð um það meir að þessu sinni.

þriðjudagur, 4. september 2007

Af vinnusemi og fleiri löstum


Hugsið ykkur bara hve vinnusöm við Dóra erum. Klukkan er 21:00 og hvar haldið þið að við skötuhjúin séum stödd annars staðar er í skólanum. Dóra að vinna - ég er reyndar að pikka þetta á tölvu í augnablikini.

Máni er orðinn Varmlendingur og farinn að kanna nýjar veiðilendur. Í skóginum má eflaust finna ýmislegt ætt ef að er gætt með kattaraugum.

Svona er nú það. Við heyrðum í Bergrúnu áðan. Hún er bara hin hressasta og er á leiðinni til Kanada í fyrramálið - langt flug.

Ég gekk á "fjallið" áðan. Það er auðvitað saga til næsta bæjar. Ég hét því í aðgæsluleysi að gera það daglega en hef ekki staðið við það - það rignir svo mikið þessa dagana.

sunnudagur, 2. september 2007

Úr Hólmgarði



Stödd í Hólmgarðinum. Búinn að taka þann bláa í gegn. Þvo hann og bóna að utan og innan. Hann er því vel bónað glæsifaratæki en því miður með tilheyrandi beyglum og riðblettum. Dóra er búin að setja allt á hvolf í íbúðinni og sér ekki fyrir endann á því öllu saman. Hún er að taka til og þvo þvotta. Veðrið er gott og fuglarnir syngja - þ.e. þeir sem ekki eru farnir af landi brott á eftir þeim Bergrúnu, Heiðufjölskyldu og Oddnýju sem brá sér til Sverige í embættiserindum. Fórum í Keflæk í gær að skoða mömmu, ömmu, Steinunni og Ljósanóttina -um miðjan dag. Gengum einn rúnt um hálfa Hafnargötuna. Þá stytti upp og sólin fór að skína. Átum kjötsúpu hjá tengdó. Forðuðum okkur heim á undan umferðaröngþveitinu sem stóð, að sögn, fram til 2 um nóttina - allt strand á Reykjanesbrautinni.

Förum í Borgarfjörðinn í kvöld og höldum áfram að uppfræða sveitalýðinn og afkvæmi háskólaborgara á Bifröst.

Bergrún veifar víða fæti þessa dagana. Hér er fótur hennar á hótelsvölum í París.