fimmtudagur, 12. júlí 2007

Af ýmsu að taka


Ég er nýkominn úr ferð á Borðeyri. Var að flýja sólskinið og góða veðrið hér sunnan heiða og anda að mér norðankælunni. Dóra var heima og passaði börn - frekar tvö en eitt. Á Borðeyri var ég að mála, klippa tré og reyna að veiða silung, en það gekk nú ekkert að þessu sinni. Samt sem áður var þetta ágæt ferð og fínt að vera svona einn með sjálfum sér.

Heiða átti afmæli í gær og er nú orði 28 ára gömul. Hún á von á honum Gauja sínum heim frá Kaupmannahöfn í kvöld. Þau eru síðan á leiðinni norður á Sauðárkrók á morgum, held ég.

Bergrún er á Spáni og spilar á morgun í Bilbaó á Esplanada del Museo Guggenheim.

Oddný ásamt barni og móður er á leið út í Flatey um helgina til að upplifa töfra Breiðafjarðarins. Henni veitir ekki af því, bíllinn hennar bilaði enn og aftur.

Við Dóra erum ekki með nein sérstök plön fyrir helgina - frekar en oft áður.

Ég set hér með eina mynd af aðmírálsfiðrildum í tilhugalífsstellingum svona til að undirstrika sumarblíðuna.

1 ummæli:

Oddný moster sagði...

Sko.. vil bara taka það fram fyrir þá sem kannski villast hingað inn að bíllinn minn er sko engin drusla!!! (eins og ætla mætti af orðum Snæa). Hann er laaangflottastur.. eins og ég og öll mín ætt.
o.