mánudagur, 3. ágúst 2015

Af Reykjanesi

Þessi bær, Kotvogur, stendur á sjávarbakkanum við
Kirkjuvog.  Þar var Steinunn tengdamamma
"í vist" sem telpa.
Á 19. öld var Kotvogur í Höfnum eitt stærsta býli landsins. Þar bjuggu m.a. 3 forríkir útvegsbændur mann fram af manni, þeir hétu allir Ketill og eru oftast nefndir Katlarnir þrír. Annað stórbýli var Kirkjuvogur í Höfnum þar sem búið hafa margir höfðingjar. Á 19. öldinni bjó í Kirkjuvogi dannebrogsmaðurinn Wilhjálmur (Chr(istinn) Hákonarson (1812-1871), en þannig er nafn hans stafað á leiði hans í Kirkjuvogskirkjugarði. Vilhjálmur átti 2 dætur. Önnur þeirra hét Anna. Heimiliskennari í Kirkjuvogi var þá ungur menntamaður, Oddur V. Gíslason, og felldu þau Anna hugi saman. Þegar ungi maðurinn bað um hönd dótturinnar brást faðir hennar hinn versti við og þvertók fyrir ráðahaginn. Afleiðingin varð eitt frægasta og æsilegasta brúðarrán Íslandssögunnar. Sættir tókust þó síðar. Oddur varð prestur í Grindavík við mikinn orðstír og var m.a. upphafsmaður að sjóslysavörnum á Íslandi. Af honum er mikil saga sem endar í Bandaríkjunum.
Vilhjálmur Kr. Hákonarson reisti þá kirkju sem nú stendur í Höfnum. Hún er úr timbri og var vígð árið 1861. Vilhjálmur lést 10 árum seinna 59 ára að aldri. Ekkert er eftir af Kirkjuvogsbænum en kirkjan stendur nánast á bæjarhlaðinu enda nefnist hún Kirkjuvogskirkja og sóknin Kirkjuvogssókn. Ketill Ketilsson (1823-1902) dannebrogsmaður og útvegsbóndi í Kotvogi, stundum nefndur Mið-Ketill vegna þess að hann tók við búi af föður sínum og Ketill sonur hans tók svo við búi af honum, hefur ekki viljað vera minni maður en Vilhjálmur í Kirkjuvogi og byggði kirkju úr timbri á Hvalsnesi í Miðneshreppi, en þá jörð átti hann. Kirkjuna lét hann síðar rífa og byggja aðra stærri og íburðarmeiri úr tilhöggnu grjóti. Sú kirkja var vígð 1887 og stendur enn.
Sem dæmi um stærð Kotvogs á dögum Mið-Ketils á 19. öld má nefna að þá var bærinn alls 16 hús og mörg þeirra stór, 38 hurðir á lömum og 72 í heimili á vertíðinni. Bærinn í Kotvogi var enn reisulegur og stór um aldamótin 1899/1900. Hinn 5. apríl 1939 brann íbúðarhúsið og fórst þrennt í brunanum. Pakkhús úr timbri var austast og fjærst eldinum og skemmdist því ekki . Því var breytt í íbúðarhús og notað sem slíkt til 1984. Það stendur enn ásamt nokkrum útihúsum en allt er það illa farið og ekki svipur hjá sjón. Stór grasi vaxinn hóll rétt hjá Kotvogi hægra megin götunnar þegar horft er í vestur nefnist Virkishóll.
Strandlengjan er einn stærsti skipalegstaður landsins, hrikalegir klettar, sker og boðar þar sem þung úthafsaldan myndar oft tilkomumikið og rosalegt brim. Hún er ágæt áminning um aðstæður þær er ábúendur í Kirkjuvogi og Kotvogi þurftu að búa við við fyrr á öldum.  (Tekið af vefnum Ferlir).

Í nokkurn tíma hefur það verið ofarlega á vinsældarlista frú Dórotheu að heimsækja Hafnirnar.  En eins og allir vita eru Hafnir á Reykjanesi og þar var búið hér í eina tíð, en nú eru þar að mestu draugar, pólverjar og sumarbústaðafólk.  Staðurinn er frægastur fyrir það að mamma Dóru, hún Steinunn, átti heima þar um nokkurra ára skeið sem barn og unglingur - af því er til mikill sagnabálkur.  Þó að staðurinn heiti Hafnir þýðir það ekki ekki endilega að þar sé höfn.  Þar má samt lenda bát í góðu veðri.
En það er skemmst frá því að segja að við fórum í Hafnirnar 1. ágúst og hittum þar fyrir Andra og fjölskyldu og fengum okkur göngutúr um svæðið ásamt þeim.  Veðrið var gott. 
Síðan lá leiðin út á Reykjanes, keyrt út að vita og Gunnukver skoðaður - það hefur nú verið meira kvendið hún Gunna að vilja ekki drekka vígt vatn - og síðan áfram til Grindavíkur þar sem etnir voru hamborgarar í íbúðar/verkstæðishúsinu hans Dóra heitins móðurbróður hennar Dóru - þar er nú bensínsjoppa.  Síðan var ætlunin að fara áfram Krisuvíkurleiðina, en vitlaus beygja (hjá Andra og reyndar mér líka) skilaði okkur áleiðis upp á Reykjanesbraut og þar með var kúrsinn tekinn heim.

Engin ummæli: