sunnudagur, 14. september 2014

Af tímabundinni upprisu

Árið 2007 gekkég aftur.  Það gerði einnig Dóra.  Þetta var með þeim hætti að við fluttum á ný til Varmalands og fórum að vinna þar eftir nærri tveggja áratuga hlé.  Núna er ég upprisinn, tímabundið.  Ég lét plata mig til að leysa af í kennslu í nokkrar vikur - orðinn 95 ára!  Það ber nú ekki vott um mikla staðfestu.  Hef áhyggjur af framhaldslífinu.  Ætli ég haldist illa á hinum eilífu veiðilendum handan landamæranna og gangi aftur í uppsveitum Borgarfjarðar - og verði nefndur Varmalandsmóri?

Engin ummæli: