Veiðimennska er mér í blóð borin. Hana stunda ég þó sparlega og aldrei hef ég komist í efstu deild hennar - laxveiðideildina. Þar hefur spilað saman níska og tillitsemi við fjölskyldu og þarfir hennar. Einnig hef ég takmarkaða þolinmæði til síendurtekinna handahreyfinga. Flugukast fer með tímanum að minna mann á þá tíma þegar staðið var heilu dagana við hausun eða flökun í frystihúsi vestur á fjörðum. Hjá sumum grunar mig að þessi endurtekna hreyfilöngun sé bundin í genum. Þar má t.d. nefna golfáhuga landsmanna. Eftir að hafa rannsakað atferli golfara hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þar fari menn með bændagen, með ríkjandi slátturmannageni. Þetta verður enn augljósara þegar umgjörðin er skoðuð; grasivaxnir túnbleðlar og slátturmannasveifla.
En svo ég víki aftur að veiðimennsku þá brá ég mér inn í Sundahöfn með veiðistöng um daginn og hugðist freista þess að veiða mér ýsu í soðið. Þar var einnig staddur pólverskur lithái af eistneskum ættum. Hann talaði ekkert mannamál, svo að við notuðum bara atviksorðin, eins og karlinn gerði forðum norður í Haganesvík eftir að hafa reynt bæði enskuna og dönskuna á útlendinginn. Þessi viðifélagi kunni að draga ýsur! Ég veiddi þrjá smáufsa og var þess á milli mjög botnlægur.
fimmtudagur, 23. júlí 2009
mánudagur, 6. júlí 2009
Viðey

Þrátt fyrir dumbung var stefnan tekin á Viðeyjarferð. Leiðsögumaður í ferðinni var Þorbjörg Edda - hún hefur kynnt sér vel sögu eyjarinnar og umhverfið allt. Siglingin tók 5 mínútur eða svo hvora leið. Fórum út á vesturhluta eyjarinnar og fundum þar margt merkilegt, t.d. minnkagildru og snigla. Átum svo vöfflur í gamla húsinu.
sunnudagur, 5. júlí 2009
Frestur
Við Dóra vorum búin að ráðgera að ganga á Esjuna í dag - það er þoka og súld. Ennfremur átti að vera búið að setja upp eldhúsinnréttinguna í gær - það frestaðist fram á mánudag. Svona líða dagarnir. Verst að ekki er hægt að fresta frestunum.
föstudagur, 3. júlí 2009
Ströndin

Búinn að fara vestur og skoða mig um á bernskuslóðunum. Þar hefur margt breyst. Fór með Hrefnu, Hirti og mömmu. Héldum til á Krossholtum - í Ægisholti - flott aðstaða. Annars er allt í þokkalegum gangi.
Bergrún í Noregi og líklega þó á Ítalíu að spila með Orkester Norden. Andri var í fríi síðast þegar ég vissi og Heiða í Köben í manndrápshita - aumingja hún.
Set með slóð á yngsta barnið sem spilar enn á sitt franska horn.
http://www.youtube.com/watch?v=PESQCvex8D8
Bergrún í Noregi og líklega þó á Ítalíu að spila með Orkester Norden. Andri var í fríi síðast þegar ég vissi og Heiða í Köben í manndrápshita - aumingja hún.
Set með slóð á yngsta barnið sem spilar enn á sitt franska horn.
http://www.youtube.com/watch?v=PESQCvex8D8
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)