
Við Dóra sitjum sem fastast hér á Varmalandi og ætlum okkur stóra hluti í prófundirbúningi, yfirferð og ýmsu sem snýr að heimilishaldi og sjálfsdekri.
Innanhússstörfin á mínu heimili fara yfirleitt þannig fram að ég ligg flarur uppi í sófa á meðan Dóra skúrar og tekur til. Þetta geri ég auðvitað vegna tillitssemi við hana - þá er ég ekki að flækjast neitt fyrir á meðan - nema eg henni dettur í hug að færa sófann til eða ryksuga hann. Ég hef reyndar látið mér detta það í hug að vel mætti setja hjól undir húsgagnið. Þá gæti Dóra fært sófann til án þess að ég þyrfti að standa upp. Þetta er í anda hins merka ritverks Falkenberg um Bör Börsson. Óli í Fitjakoti, aðstoðarmaður Börs, sá auglýsingu í blaði. Þar var auglýst "til sölu rúm fyrir hjón sem eru á hjólum". Hann keypti sér eitt slíkt. Það voru einstaklega heppileg kaup því þá gat hann látið konuna ýta rúminu undan þakleka í rigningartíð. Hann uppgötvaði einnig að það var ósköp þægilegt að sofna ef hann lét konuna rúlla sér til og frá um herbergið.
Verst að þakið lekur ekkert hjá okkur.
Um helgina eru þeir Skarphéðinn og Snorri á Langalandi.
1 ummæli:
Það eru hjól undir sófanum.
D.
Skrifa ummæli