Fyrir allmörgum árum, eftir að múrinn hrundi og kommúnistastjórnir féllu var uppi sterk krafa frá hægri um að íslenskir vinstrimenn gerðu hreint fyrir sínum dyrum. Þar voru dregin fram nöfn fólks sem hafði tengsl til austurs og verið áberandi í stjórnmálum á vinstri kanti íslenskra stjórnmála. Einn af helstu krefjendum þeirrar endurskoðunar var Hannes H. Gissurarson. Nú er uppi krafa um endurskoðun á hægri kantinum eftir hrun nýfrjálshyggjunnar. Einn helsti trúboði þeirrar stefnu var áðurnefndur HHG. Enn sem komið er hefur hann haft uppi litla sem enga tilburði til að axla þá ábyrgð, en verið þeim mun uppteknari við að verja það kerfi og þá menn sem stærstan þátt eiga í hruninu, þ.e. þá sem sköpuðu tækifærin fyrir útrásarvitleysuna, þar sem jöturollunum var hleypt inn í hlöðuna.
Það er alltaf jafn uppfræðandi að skoða hvað HHG hafði til málanna að leggja varðandi útrásina, allt fram á síðustu daga hennar.
http://www.youtube.com/watch?v=AoD8umlAOFs
2 ummæli:
Sæll frændi þeir eru allir eins í svörtum fötum með bindi. Nú stökkva þeir inn í skuggann koma svo í vor og bjóða til sín skjátunum. þannig hefur það verið ætli það breytist ?
Sæll frændi þeir eru allir eins í svörtum fötum með bindi. Nú stökkva þeir inn í skuggann koma svo í vor og bjóða til sín skjátunum. þannig hefur það verið ætli það breytist?
Skrifa ummæli