miðvikudagur, 30. júlí 2008

Lentur - fyrir nokkru

Í Nýhöfninni í Köben var hér áður fyrr stundað sukk og svínarí. Þar heimsóttu gleðimenn gleðikonur og drukku sig fulla og vitlausa. Myndin hér til hliðar er ekki af slíkum kvensum, heldur er hér um að ræða tengdamóður mína og eiginkonu
Það var að ýmsu leyti bara hressandi að stíga aftur á íslenska grund eftir hitakóf í Köbenhavn. Farþegum var smalað út úr flugvélinni, niður á rennvott malbikið, beint út í rok og rigningu. Iceland Express virðist vera hætt að nota landgöngurana - kannski í sparnaðarskyni.

Svo leitar allt í sama veðurfarið og við þóttumst leggja að baki þegar við yfirgáfum K - heitt í dag, heitt í gær, heitt á morgun.

Ranka systir og karlpeningur fjölskyldunnar er í heimsókn á Íslandi og einnig Hjörtur bróðir. Í dag á pabbi gamli afmæli - er orðinn 82 ára.

laugardagur, 12. júlí 2008

Lítill kall

Þessi litli kall kom í heiminn í nótt, hress og heilbrigður. Það er ekkert smáræðis afrek og eðlilegt að maður þurfi að hvíla sig vel eftir slíka ferð.

Eftir að hafa skoðað fyrstu myndirnar af ferðalanginum er nokkuð ljóst að hann líkist pabba sínum þónokkuð.
Ég er þó ekki frá því að hann líkist mömmu sinni ekki síður.

Það sem máli skiptir er samt það að hann er heppinn með foreldra.

Fæðing

Í nótt varð þessi pjakkur bróðir - stóribróðir.
Heiða átti afmæli í gær - varð 29 ára. Þegar ég talaði við hana í gærmorgun var hún á leiðinni inn í Lyngby, eitthvað að snúast. Hún var farin að hafa áhyggjur af því að tengdamamma, sem hefur staðið fæðingarvaktina síðustu daga, þyrfti að fara heim til Íslands áður en strákur birtist.
Seinni partinn hófst svo aðdragandi þess sem nú er orðin staðreynd. Það fæddist sonur, 13 merkur og 51 sentimetri, kl. 3:33 að dönskum tíma.
Þar bættist við barnabarn nr. tvö í safnið okkar Dóru. Jafnframt er þetta annað barnabarnabarn Steinunnar tengdamömmu.
Þetta er reyndar áttunda barnabarnabarn pabba og mömmu - allt strákar!

fimmtudagur, 10. júlí 2008

Sól


Við Hreðavatn

Það nær auðvitað engri átt að hanga hérna í Reykjavík meðan sólin bakar Borgfirðinga sem aldrei fyrr. Það er samt óþarfi að kvarta yfir veðrinu hér á malbikinu, það hitnar vel yfir hádaginn.
Pabbi nýtir sér vel nýja tryllitækið, rafmagnsskutluna. Mér sýnist á öllu að hann hafi meira gagn af henni en bílnum. Hann eyðir löngum stundum útivið í góðviðrinu - eitthvað sem hann var hættur að geta áður en hún kom til sögunnar.
Nú er Dóra stungin af upp í Borgarfjörð. Hún skildi mig eftir, einn og yfirgefinn. Bergrún er reyndar enn hér heima en fer á morgun utan - seinna en áætlað var vegna veikinda Bjarkar.
Á þriðjudaginn förum við Dóra til Köben að hitta Heiðu og strákana.

miðvikudagur, 9. júlí 2008

Málið

Vignir pípari hefur verið iðinn við að bora og brjóta í Hólmgarðinum þessa síðustu daga (hljómar eins og von sé á ragnarökum). Málið er að koma upp almennilegu baðherbergi í stað litlu skonsunnar. Til þess að koma upp baðherbergi þarf að brjóta og bora og leggja nýjar lagnir. Þetta hefst á endanum.
Í gær stóðum við fyrir utan Dómsmálaráðuneytið, ásamt öðrum stórmennum, óhress með meðferðina á Ramses.
Fórum í sund og elduðum mat. Bergrún og Andri hjálpuðu okkur við átið.
Í dag var meiningin að fara að mála girðinguna. Björn á neðri hæðinni (hann geymir þar búslóðina sína) er búinn að boða komu sína með málningu.

sunnudagur, 6. júlí 2008

Alveg bit

Ég fór í veiðiferð í gær. Gekk upp með Gljúfurá þar sem hún beygir inn á heiðarnar - hún rennur þar í gegnum þrjú eða fjögur vötn. Þetta er óraleið. Ég myndi giska á að þriggja tíma gangur sé upp að næstefsta vatninu. Ég var meira og minna á röltinu frá kl. 12:00 til 21:00, því flugnagerið var svo ágengt að maður hafðist ekki við - sjaldan lent í öðru eins. Ég er með á að giska 150 flugnabit viðsvegar um skrokkinn, flest þó í andliti, hálsi og á bak við eyru.
Þarna er nógur fiskur, myndarlegur urriði, frá einu og hálfu upp í fjögur pund. Veiddi sex en missti eina fimm eftir snarpar viðureignir. Þetta var tóm sæla - að frátöldu mýinu.
Dóra kom með mér áleiðis og sótti mig svo um kvöldið. Hún hafði lítið um veiðina að segja annað en það hvort ég ætlaði að éta þennan fisk. Urriði er reyndar ekki minn uppáhalds fiskur.
Við erum sem sagt á Varmalandi ásamt þeim Steinunni og Oddnýju.
Andri var á Siglufirði um helgina - að syngja á þjóðlagahátíð. Heiða er búin að fá tengdamömmu í heimsókn til Köben - það styttist í strák númer tvö - og Bergrún æfir sig fyrir næstu tónleikasyrpu og hljóðfærapróf á mánudag.
Í dag er heiðskírt, logn og 20 stiga hiti þegar þetta er skráð - kl. 9:30.

fimmtudagur, 3. júlí 2008

Stöðulýsing

Nú líður óðum að því að Heiða eignist sitt annað barn, sem jafnframt verður barnabarn okkar númer tvö. Áætlaður komutími þess er 15. júlí. Skarphéðinn mátti ekki vera að því að slíku hangsi og kom 10 dögum fyrr en honum var spáð, svo að fólk er við öllu búið.
Við höldum okkur samt við að fara utan þann 15.
Við sitjum sem fastast hér í Hólmgarðinum en ætlum að skreppa í stutta ferð upp að Varmalandi á morgun og koma til baka á sunnudag.
Við höfum verið að bera okkur til við að mála. Dóra er búin að lakka gólfið í þvottahúsinu og í gær var tekið til við útimálningu - þess vegna rignir í dag!
Ég er mikið með nefið í dyragættinni hjá pabba og mömmu því Hrefna er í hálfsmánaðar fríi úr Hólaberginu.
Björk aflýsti einum tónleikum á Bretlandi svo að Bergrún fer ekki utan fyrr en á miðvikudaginn og þá til Finnlands. Við verðum svo laus við hana fram yfir miðjan ágúst, þá fer hún í Listaháskólann, í áframhaldandi hornleikaranám.