miðvikudagur, 28. nóvember 2007

Ættingjar og afkomendur

Nú eru báðar eldri systur mínar mættar í sína árlegu Íslandsheimsókn til að heimsækja þau gömlu og gera jólainnkaupin - hangikjet og rúllupylsur. Hjörtur nýfarinn heim til Svíþjóðar. Andri búinn að syngja á tvennum tónleikum með Háskólakórnum. Nú er hann orðinn tenór, fyrir tveimur árum var hann bassi - ætli hann verði ekki orðinn sópran eftir fáein ár.
Bergrún fer utan til Mexíkó 5. des og síðan til USA. Hún verður samt komin heim tímanlega fyrir jól - líkt og Heiða sem kemur heim 14. des.
Þegar síðast fréttist var ekki búið að kalla mömmu inn í aðgerð. Ég hélt að það yrði í þessari viku en það virðist ætla að dragast eitthvað - vonandi samt ekki of lengi.

föstudagur, 23. nóvember 2007

Enn við sama ....

Kominn föstudagur. Það þýðir ferðadagur hjá okkur Dóru. Reykjavík.
Mamma er heima en síðustu fréttir eru á þá leið að hún sé enn og aftur á byrjunarreit. Á að fara í aðgerð enn á ný í næstu viku.
Hjörtur fer utan á laugardagsmorgun. Ætli ég skutli honum ekki áleiðis - þó ekki lengra en í Keflavík.
Ég hitti Guðmund frænda í Borgarnesi á mánudag. Hann leysir þar af á bílasölu. Hann var hress að vanda og hefði áreiðanlega selt mér bíl ef ég hefði stoppað lengur við en ég gerði.
Annars er allt við það sama....

laugardagur, 17. nóvember 2007

Ljóðræna




Í gær var dagur íslenskrar tungu. 5. bekkurinn minn tók að því tilefni þátt í ljóðasýningu 10 ára barna í fræðsluumdæminu. Sýning í Safnahúsinu í Borgarnesi. Við Dóra mættum þar ásamt tveimur nemendum. Það var bara gaman. Hittum Stínu frá Seftjörn ásamt manni og dóttur, sem einmitt er 10 ára og átti verk á sýningunni.

Ókum síðan áfram til Reykjavíkur. Dóra fór til Oddnýjar, sem er lasin og var henni innan handar - hún fór til hennar aftur núna í morgun. Ég ætla að kíkja á pabba og Hjört, sem er kominn til landsins og verður hér út næstu viku. Mamma fær að kíkja heim í dag og á morgun - og verður heima frá mánudegi til föstudags svo það hittist vel á með Hjört. Síðan koma systurnar 26. og 27.

Við töluðum áðan við Heiðu og Skarphéðin. þau voru bara hin hressustu. Skarphéðinn gerði tilraunir til að skríða til okkar gegnum tölvuna - það tókst því miður ekki. Bergrún kemur heim úr Suður-Ameríkuför sinni aðfararnótt þriðjudags og verður heima fram í næsta mánuð.
Annars er lífið bara í sínum föstu skorðum.

laugardagur, 10. nóvember 2007

Klipp


Í dag afrekuðum við Dóra það að láta klippa okkur. Ég lét taka, á að giska, einn og hálfan sentimetra af hárinu á mér. Okkur samdist allavega um það, mér og klippikonunni. Líklega hefur Dóra misst meira.

Ég málaði einn glugga, held ég. Það var að vísu byrjað að skyggja þegar ég hóf málverkið - ég athuga á morgun hvort það eru einhverjir helgidagar sjáanlegir - það er auðvitað sunnudagur á morgun.

Það var gott veður í dag. Það var heimsóknardagur í dag - pabbi og mamma. Dóra fór í sund meðan ég vísiteraði hjá pabba.

Dóra náði eldavélinni fram (mér tókst það ekki um daginn), setti nýjar perur á sinn stað og þreif á bak við. Hún er komin af tæknifólki. Mínir áar voru flestir einhverjir rolluhausar.

Ljótt að segja svona!

fimmtudagur, 8. nóvember 2007

Engar sérstakar .......

Maður er alltaf að endurtaka sömu fréttafrasana. Lífið rúllar eftir þannig hjólfari að það þarf lítið að hreyfa stýrið.
Mamma virðist þó vera á batavegi, eftir síðustu fréttum að dæma og von til þess að hún komist heim eftir viku - ef ekkert nýtt kemur til. Það hefur reyndar orðið raunin ítrekað.
Bergrún er orðin hress - hún var dálítið slöpp um tíma þó að hún léti sig hafa það. Er núna í Argentínu og svo í Cile og Kólumbíu. Svo kemur hún heim - svona eftir tíu daga.
Við hjónakornin förum til R um helgina. Kannski gerum við eitthvað þar.

laugardagur, 3. nóvember 2007

Í besta falli



Við Dóra fórum á kínverskan veitingastað í gær með Varmalandsliðinu en slepptum því að sjá einhverja uppistandsleiksýningu um pabba. Steinunn var í Hólmgarðinum.
Ég leit til mömmu í gær þegar við komum í bæinn og til pabba um kvöldið. Í dag leit ég við hjá honum í tvígang. Í seinna skiptið eftir að hann datt - Securitas lét viða af því (öryggishnappurinn virkar vel). Hann meiddi sig sem betur fer ekki mikið - samt aumur um ökkla og í hnakka.

Oddný og Úa orkubolti voru hjá okkur seinnipartinn.

Annars blákalt tíðindaleysið - ekki þýðir að fjasa mikið um veðrið - það er bara bænda- og sjómannasiður (eða íslenskur ósiður).

Fréttum ekki mikið af Bergrúnu. Hér er þó slóð inn á túrbloggið http://www.blog.bjork.com/ þar sem hún á nokkur komment.

Það held ég núúú.