þriðjudagur, 24. júlí 2007

Nú nú....


Þá held ég nú að mamma sé komin á góðan skrið, farin að baka jólakökur og skonsur. Og í morgun fór ég með einar 6 lopapeysur fyrir hana í Handprjónasambandið og færði henni miklar birgðir af lopa frá þeim ágætu konum sem þar ráða húsum.

Veðráttan er sérkennileg þessa dagana, hiti, sólarglennur og skúraveður - stundum með svo mikilli úrkomu að slíks eru fá dæmi - einmitt, fádæmi.

Bergrún er í Sviss. Búin að vera á Spáni og Ítalíu í brakandi hita. Hún hefur því náð að þorna vel eftir bleytuna á Hróarskeldu í byrjun mánaðarins. Hún kemur heim í vikulokin og verður á landinu fram yfir miðjan næsta mánuð.

Við Dóra fórum í Grasagarðinn í dag með henni Úu. Það kemur manni á óvart hve þetta svæði er orðið skemmtilegt til útivistar - að ég tali nú ekki um veitingaaðstöðuna á svæðinu, enda örtröð.

Úa var uppteknust af andarungum, folaldi og vatnsbununni sem er alveg tilvalin til að drekka úr og blotna svolítið um leið í andlitinu.

Hjörtur og Emilía komu í bæinn í gærkvöld eftir nokkurra daga ferð suður og austur - alla leið á Djúpavog. Ánægð með ferðina.

Nú líður að því að við Dóra förum að koma okkur fyrir á Varmalandi. Líklega verður það um/uppúr helgi.

fimmtudagur, 19. júlí 2007

Af flakki

Sólheimar


Báturinn Búlki í vör


Úa og kríuungi















Við Dóra lögðum land undir hjól á þriðjudaginn og vorum að koma heim. Við fórum fyrst á Borðeyri og notuðum daginn til málningaverka. Það var hið besta veður sól og hiti og krakkar að baða sig í sjónum fyrir framan húsið. Tókum miðvikudaginn snemma og vorum komin í Stykkishólm rúmlega 8:30.

Þaðan var haldið út í Flatey. Þar hittum við Oddnýju, Úu og Steinunni - þær fóru þangað á þriðjudag og ætluðu að gista þar tvær nætur, sem þær og gerðu. Það var blíðaskapar veður í Flatey og upplagt að skoða sig um á eyjunni. Fórum í kirkju og kirkjugarð og í framhaldinu gróf ég upp ættingja, eða öllu heldur sáu ættingjarnir okkur og buðu í kaffi. Það voru ekki þessir í kirkjugarðinum, heldur afkomendur Jóns móðurbróður. Þeir eiga hús í Flatey og eru þar iðulega á sumrin. Hitti einnig aðra ættmenn með dálítið lengri tengingar í. Það voru afkomendur Þórðar Benjamínssonar sem var samtíða afa og ömmu við búskap í Hergilsey.

Við vorum í Eyjunni alveg fram til kl. 20:00 og vorum komin til baka að Borðeyri klukkan að verða tólf.
Dóluðum heim í rólegheitum í dag og komum heim kl. 17:00

Þannig var nú það....

Set hér nokkrar myndir með úr ferðinni.

Gula húsið sem á einni myndinni eru Sólheimar, hús afkomenda Jóns frænda. Þarna má sjá Oddnýju Halldórsdóttur, Dóru, Oddnýju Jónsdóttur og Guðrúnu dóttur hennar.

mánudagur, 16. júlí 2007

Helgin


Við hjónin unnum það afrek að komast í hjólatúr á laugardaginn. Undirbjuggum málið á föstudaginn með því að sækja okkur loft í reiðhjóladekkin. Hjóluðum út Fossvog og inn Ægissíðu og buðum okkur í kaffi hjá Oddnýju - síðan sömu leið til baka. Við erum ákaflega stolt af þessu uppátæki.
Dóru tókst loksins að koma auga á Emilíu hans Hjartar, þegar við fórum í Hólabergið. Þau eru á leiðinni á Hornafjörð að heimsækja gamla kunningja hennar.
Laugardagurinn var notadrjúgur því við fórum í Keflavík og heimsóttum tengdó.
Sunnudagurinn varð hálf bæklaður. Við fórum á Þingvelli og ókum mikið malarvegi. Það er ekki skemmtilegt eftir langvinna þurrka.

Svo kom Heiða og fjölskylda heim í gærkvöld eftir tveggja daga ferð til Sauðárkróks. Skarphéðinn var í miklu stuði.

fimmtudagur, 12. júlí 2007

Af ýmsu að taka


Ég er nýkominn úr ferð á Borðeyri. Var að flýja sólskinið og góða veðrið hér sunnan heiða og anda að mér norðankælunni. Dóra var heima og passaði börn - frekar tvö en eitt. Á Borðeyri var ég að mála, klippa tré og reyna að veiða silung, en það gekk nú ekkert að þessu sinni. Samt sem áður var þetta ágæt ferð og fínt að vera svona einn með sjálfum sér.

Heiða átti afmæli í gær og er nú orði 28 ára gömul. Hún á von á honum Gauja sínum heim frá Kaupmannahöfn í kvöld. Þau eru síðan á leiðinni norður á Sauðárkrók á morgum, held ég.

Bergrún er á Spáni og spilar á morgun í Bilbaó á Esplanada del Museo Guggenheim.

Oddný ásamt barni og móður er á leið út í Flatey um helgina til að upplifa töfra Breiðafjarðarins. Henni veitir ekki af því, bíllinn hennar bilaði enn og aftur.

Við Dóra erum ekki með nein sérstök plön fyrir helgina - frekar en oft áður.

Ég set hér með eina mynd af aðmírálsfiðrildum í tilhugalífsstellingum svona til að undirstrika sumarblíðuna.

laugardagur, 7. júlí 2007

Úr heiðardalnum


Við flugum heim frá Köben í gær. Þó að flogið væri á mettíma, tveimur og hálfri klukkustund, taka svona ferðir á taugarnar, sérstaklega þegar litlir kallar eru með í för.

Gaui og Árni vinur hans komu með okkur á völlinn en fóru síðan að undirbúa sig undir enn einn dag á Hróarskeldu.

Heiða, Gaui og Árni voru á Hróarskeldu á fimmtudaginn. Þessi dagur fer væntanlega í sögubækur. Ekki vegna þess að þau hafi verið þar á hljómleikum heldur vegna úrhellisrigningar og eðjuflóðs sem sló víst öll met. Kjöraðstæður fyrir flóðhesta. Bergrún útvegaði baksviðspassa sem björguðu miklu.

Og nú erum við heima, svolítið vönkuð en þó bara furðu vel haldin. Ég fór í gær og hitti Hjört og Emilíu í Hólaberginu. Þau komu í gærmorgun. Þau eru bæði sæt og sæl. Andri og Reynir komu einnig til að heilsa upp á sinn gamla uppáhaldsfrænda.

Nú er Bergrún í Amsterdam og á að spila á hljómleikum í Kultuurpark annað kvöld.

fimmtudagur, 5. júlí 2007

Fjölskyldumót...














Gamla kjarnafjölskyldan hittist á Ráðhústorginu í gær, en Andra vantaði þó. Bergrún kom til Kaupmannahafnar eftir hádegi í fyrradag. Búin að vera í Póllandi og víðar síðustu daga. Veðrið var með eindæmum gott, sól og blíða og alls ekki í samræmi við væntingar.
Við Dóra tókum daginn snemma og fórum með lest í bæinn. Gengum frá Hovedbanegaarden til Litlu hafneyjunnar úti á Löngulínu. Litum á Jónshús og fleiri merkar byggingar - Jónshús er nú ekkert sérstaklega fyrir augað. Guðlaugur Arason er með skýringu á því hvers vegna hafmeyjunni helst svona illa á höfðinu. Fyrirmyndirnar eru tvær; höfuðið er af einhverri ballerínu en líkaminn er eftirmynd eiginkonu listamannsins - að undanskildum sporðinum. Líkaminn hafnar því ágræðslunni. Þetta er þekkt úr læknisfræðinni.
Við fórum saman að borða á einhvern ítalskan veitingastað. Sem sagt fjölskyldan. Hafmeyjan situr enn á sínum harða rassi á sínum harða steini.

Annars var þessi dagur, dagur hinnar miklu leitar að stígvélum. Guðjón var sumsé að leita sér að stígvélum til að vera í á Hróarskelduhátíðinni. Hann fór um Kaupmannahafnarsvæðið þvert og endilangt án árangurs, engin stígvél til. Vinur hans fann loks handa honum stígvél í Odense!

Bergrún kom með tvo frímiða á hátíðina og baksviðspassa handa Heiðu og Gauja. Þau hittast því í kvöld.

Á morgun er svo ferðinni heitið heim á leið. Flogið er eftir hádegi og við því ekki komin heim fyrr en um kvöldið.