En í tilefni komandi forsetakosninga þar sem Ólafur Ragnar fer enn og aftur fram, þvert á fyrri yfirlýsingar um að hann sé að hætta, þá vil ég taka eftirfarandi fram:
Nokkrum dögum fyrir forsetakosningarnar 1996 var ég á leiðinni í Kerlingafjöll með nemendahóp og fyrirséð að ég næði ekki á kjörstað til að kjósa Ólaf. Þá var að kjósa utan kjörstaðar, hjá hreppstjóranum. En þá vandaðist málið. Hreppstjórinn lá á greni inn á heiði eða upp til dala og óvíst um heimkomu hans - hann hefur væntanlega verið að bíða eftir að óvissuástandi vaðandi lágfótu lyki. Af þessu leiddi að ég fór ókosinn í Kerlingafjöll. Blessaður hreppstjórinn - ég vona að hann hafi skilað sér til byggða - það er honum að þakka að ég ber enga ábyrgð á veru Ólafs á Bessastöðum.
Þarna er ég ekki staddur í Kerlingafjöllum - enda 20 árum eldri en ég var 1996.