fimmtudagur, 8. maí 2014

Af hverju

Þá er ég mættur á svæðið eftir smá hlé - hvað eru þrjú ár milli vina - ég dottaði aðeins.  Orðinn eftirlaunaþegi og alles og búið fyrir löngu að bjóða mig velkominn í félag eldri borgara.
Núnú, við Dóra búum núna í Smyrilshólunum og höfum gott útsýni yfir aðra þá sem lægra eru settir í borgarsamfélaginu.  Ég get t.d. litið niður á Árna Johnsen - eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér.
Annars fer lífið bara vel með okkur, gott ef við erum ekki sífellt að yngjast, í það minnsta í anda.
Amen
Hérna má sjá lítinn afastrák sem heitir því skrýtna nafni Snæbjörn Kári.