þriðjudagur, 28. júní 2011

Af brúðkaupum


Eins og orðið ber með sér munu menn hafa keypt sér kvonfang hér í den. Sumir íslenskir stunda þetta enn - fara og skoða vöruúrvalið í austurlöndum, panta eftir vörulista eða hafa millilið sem getur skaffað.
Brúðkaupið sem ég var viðstaddur fyrir rúmri viku var, held ég, kaup kaups. Samt var þetta óttalegt vesen fyrir fjölskyldu brúðgumans. Gefið var saman með óformlegum hætti við Jökulsárlónið. Hundrað manns í gistingu austur þar, 3/4 amerískir. Veisla - skoðunarferðir skipulagðar - matarboð í kjölfarið - og enn meira vesen af öllum sortum.
Ef börnin mín fara að vera með eitthvað viðlíka vesen þá afsala ég mér föðurréttinum - þinglýsi svo gjörningnum.

fimmtudagur, 23. júní 2011

Af viðsnúningi


Dóra stendur á haus í tilflutningum á húsgögnun. Það er von á gestum og það kallar á gagngera endurhönnun. Þetta gerisr sem betur fer ekki nema svona þrisvar til fjórum sinnum á ári. En er að umfangi á við meðal búferlaflutninga. Inni í þessu er auðvitað tími til pælinga, svo þarf að skúra, skrúbba og bóna. Best er fyrir mig að hafa enga skoðun á málinu, rétta hjálparhönd en halda mig að öðru leyti til hlés. Enda margsannað að mínar uppástungur eru frekar illa grundaðar.
Annars er bara allt í góðu. Víðar farinn í sína fyrstu utanlandsreisu. Verður örugglega orðinn enskumælandi þegar hann kemur heim eftir tæpan mánuð.

þriðjudagur, 21. júní 2011

Af endurtekningum


Líklega verður bara sumar á suð-vesturlandi þetta árið. Það er svosem allt í lagi mín vegna þó að ég vorkenni þeim landsmönnum sem ekki hafa borið gæfu til að flytja sig á byggilegar slóðir. Kannski fara þeir að átta sig á því að þeir eru rangstæðir - eða einfaldlega staðir.
Núna erum við Dóra nýkomin frá því að aka einkasyninum, kærustu og erfingja þeirra á flugvöllinn. Tengdadóttirin (vonandi) er sumsé að fara að þvælast með Björk líkt og yngri dóttirin gerði hér um árið. Þessi syngur reyndar en Bergrún blés í langt uppvafið rör. Svona gengur þetta í fjölskyldunni. Andri fór með sem barnfóstra. Þetta er nú bara mánaðar túr.
Hérna eru þau Ásdís Björg og Víðar Freyr úti í guðsgrænni náttúrunni 17. júní.