föstudagur, 27. mars 2009

Verum vinir

Ég hef undanfarna daga verið að hræra í þessu fésdóti. Það er nú meira ruglið sem fólki dettur í hug að setja þar inn. Mest virðast það vera einhverjar gjafasendingar og að klappa hvert öðru á bakið. Kannski veitir ekkert af því á þessum síðustu og verstu. Undarlega margir virðast þó vera að þessu amstri til að safna sér "vinum", jafnvel fólki sem þeir þekkja lítið sem ekkert og hefðu varla áður heilsað á götu, hvað þá annað.
Minnist þess reyndar að sem ungur maður furðaði ég mig á því að Patreksfirðingar, sem ég átti engin samskipti við heima á Patreksfirði, urðu voða kjaftaglaðir við mig ef ég hitti þá á götu í Reykjavík.

laugardagur, 7. mars 2009

Frá Varmalandi

Í gær fórum við Dóra í kaupstaðinn og keyptum nauðsynjar. Það var mökkur af kunnuglegum andlitum hvarvetna. Svona er það að vera landsbyggðarlús.
Dóra stakk reyndar upp á því að framvegis yrði best að kynna sig erlendis sem Varmlending, ekki Íslending. Það hljómaði mun betur og gæti komið í veg fyrir leiðinleg áreiti og athugasemdir.