fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Af auknum þroska

Sæl öllsömul!
Sit hér á Varmalandi og reyni að upphugsa eitthvað gáfulegt sem vert væri að koma á framfæri. Vandamálið er að það verða alltaf einhverjir á undan mér að koma slíku á framfæri. Undarlegt að átta sig yfirleitt of seint á því að hafa verið með nákvæmlega þessar pælingar - þeim virðist endalaust stolið frá manni. Var svolítið að kynna mér sjúkrahúsmál og hitti þá venju fremur marga kunningja: Einn hafði fengið vott af heilablóðfalli, annar stórt æxli við nýra og sá þriðji var í þvagrásarskröpun. Þetta segir manni kannski eitthvað um það að maður sé að fullorðnast og ofþroskast - eins og ávöxtur í grænmetisdeild.

laugardagur, 7. febrúar 2009

Smá útrás

Fyrir allmörgum árum, eftir að múrinn hrundi og kommúnistastjórnir féllu var uppi sterk krafa frá hægri um að íslenskir vinstrimenn gerðu hreint fyrir sínum dyrum. Þar voru dregin fram nöfn fólks sem hafði tengsl til austurs og verið áberandi í stjórnmálum á vinstri kanti íslenskra stjórnmála. Einn af helstu krefjendum þeirrar endurskoðunar var Hannes H. Gissurarson. Nú er uppi krafa um endurskoðun á hægri kantinum eftir hrun nýfrjálshyggjunnar. Einn helsti trúboði þeirrar stefnu var áðurnefndur HHG. Enn sem komið er hefur hann haft uppi litla sem enga tilburði til að axla þá ábyrgð, en verið þeim mun uppteknari við að verja það kerfi og þá menn sem stærstan þátt eiga í hruninu, þ.e. þá sem sköpuðu tækifærin fyrir útrásarvitleysuna, þar sem jöturollunum var hleypt inn í hlöðuna.

Það er alltaf jafn uppfræðandi að skoða hvað HHG hafði til málanna að leggja varðandi útrásina, allt fram á síðustu daga hennar.

http://www.youtube.com/watch?v=AoD8umlAOFs

miðvikudagur, 4. febrúar 2009

Látum okkur nú sjá

Það er glampandi sól og blíða með hörðu frosti í dag. Þriðji í nýrri ríkisstjórn.

Nú er að sjá hversu lengi öndin höktir í vitum nýrrar ríkisstjórnar. Auðjöfurinn Sigmundur kom sem glæstur riddari á gömlu framsóknarmerinni og bauð upp á framsóknarvist. Það er spil sem er spilað eftir þeim reglum sem framsókn setur hverju sinni og þær geta breyst ef verkast vill þegar dregur nær kosningum.