föstudagur, 31. ágúst 2007

Á Varmalandi


Nú er fyrstu vikunni við kennslu á Varmalandi að verða lokið. Það er föstudagur í dag. Þetta er dagurinn sem Heiðufjölskylda fer til Danmerkur. Því miður getum við ekki fylgt þeim á völlinn - þau villast nú samt varla.
Annars er þetta búin að vera ágæt vika. Kennslan er ekkert stórvandamál. Það er helst að Dóru leiðist að komast ekki á fullan skrið í sérkennslunni. En það horfir nú allt til betri vegar - það verður örugglega nóg að gera hjá henni.
Við förum til Reykjavíkur seinni partinn og verðum þar um helgina. Það gæti skeð að við færum til Keflavíkur.

laugardagur, 25. ágúst 2007

Af bæjarferð

Wonderbrass

Nú erum við Dóra stödd í Reykjavík. Í augnablikinu í Hólmgarðinum. Komum hingað á fimmtudagskvöld - það var frí í skólanum á föstudaginn. Ég hef verið að snúast í kringum bíla. Það voru bilaðar bremsur á þeim græna, en nú líður honum betur í hjólunum. Pústviðgerð og skoðun á pabbabíl. Svo var ég að enda við að þrífa þann græna að innan svo að honum ætti einnig að líða betur innvortis.
Það líður að því að Heiðufjölskylda fari til Köben. Brottfarardagur er á föstudaginn kemur, þann 31. Þá verður ívið tómlegra í Hólmgarðinum. Það hefur verið frábært að hafa þau svona nálægt í allt sumar en viðbrigðin þeim mun meiri. Ég á nú þó von á að þau verði kát að komast á eigin heimili eftir þessa útlegð.
Bergrún er í Frans sem stendur, síðan í Skotlandi, Írlandi, USA og Kanada og kemur ekki heim fyrr en í lok september.
Við hittum Andra áðan. Hann var á leiðinni upp að Stöng í Þjórsárdal að hitta félaga.
Nú er kennslan að taka við. Það er ágætt að fara að vinna eitthvað - hætta þessu hangsi.
Það er nú nefnilega það.

sunnudagur, 19. ágúst 2007

Nokkrar myndir

Dóra á ferð með Skarphéðni

Dóra í rennibraut með Skarphéðinn

Skarphéðinn á leikvelli



Andri, Heiða og Bergrún

Af menningarástandinu


Við Dóra komum til Reykjavíkur í gær, laugardag, eftir dvöl frá því á mánudag á Varmalandi. Það má segja að við séum í eins konar aðlögun, eins og börnin á leikskólanum. Hlutirnir eru að komast á hreyfingu og við farin að undirbúa kennslu og skólahald. Það er ný upplifun fyrir mig að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að koma öllu batteríinu í gang. Það vantar enn kennara á Varmaland. Staðan er öllu verri í Vogunum, skilst mér. Ég hitti kennara í gær sem leist illa á ástandið.

Við hittum gamla kunningja úr kennarastétt á námskeiði á fimmtudag, Magga á Háhóli og Stína frænka voru þar á meðal.

Ég fór einn yfir á Borðeyri seinni part fimmtudags og var fram á kvöld. Reif plötudót af veggjum í skúr.

Menningardagurinn, sem kölluð er nótt, var tekinn að mestu í fylgd Sillu og Fúsa og við vorum komin heim í Hólmgarð um 24:00.

Þessa stundina, 9:30 á sunnudegi, er steikin að byrja að hitna í ofninum. Við ætlum að kveðja Bergrúnu með steik í hádeginu, því um 16:10 leggur hún upp í 3ja hluta hljómleikaferðarinnar. Nú er það Frakkland, Írland, Skotland, Bandaríkin og Kanada (aftur).

Heiða og Gaui fara til Köben 31. ágúst.

Af Andra er það helst að frétta að kisan hans eignaðist 3 kettlinga nýverið.

sunnudagur, 12. ágúst 2007

Úr Svínaríki


Undanfarna daga höfum við Dóra verið á Varmalandi en skruppum þó á Borðeyri til að ná í dót. Í leiðinni tókst okkur að klófesta rafvirkja sem leysti rafmagnsvandamálið sem er búið að vera að þjaka rafkerfi Brynjólfshúss í sumar.

Á Varmalandi er ósköp rólegt. Ég er vanari meira stressi á þessum tíma - þegar allt á að vera á fullu við undirbúning skólahalds. Þeir eru svo rólegir í tíðinni þarna að þeir eru ekki einu sinni farnir að panta húsgögn í í þær skólastofur og aðstöðu sem á að taka í notkun í skólabyrjun.

Núna er ég í Rvk. Við komum hingað í gær. Ókum Dragann og stoppuðum í Svínadalnum til að skoða berjasprettu. Hún er bara þónokkur, jafnvel aðalbláber, þó að ekki séu þau neitt í líkingu við það sem maður átti að venjast í Vatnsfirðinum.

Þegar við vorum í Svínadalnum hringdi Heiða. Hún var á leið upp í Svínadal og ætlaði að gista þar í sumarbústað. Skarphéðinn var kominn þangað á undan með hinu ömmu og afa settinu.

sunnudagur, 5. ágúst 2007

Verslunarmannahelgi


Það er búið að vera róleg hjá okkur um helgina. Engin ferðalög eða vesen. Heiða og fjölskylda er á Akureyri og Bergrún svolítið á næturróli. Við fórum í kaffi til Sillu og Fúsa sem eru nýlega komin heim úr mánaðardvöl í Grikklandi. Grikkland er draumalandið að þeirra sögn og miðað við lýsingar þeirra á ég auðvelt með að trúa því.

Nú nú, í kvöld ætlum við að fara á tónleika í Fjölskyldugarðinum með þeim hjónum. Við fórum á svipaða tónleika á sama stað í fyrra um verslunarmannahelgi.

Svo er stefnan tekin upp á Varmaland á morgun. Heiðufjölskylda ætlar að kíkja við hjá okkur þar á suðurleið.

föstudagur, 3. ágúst 2007

Af basli


Nú erum við komin aftur til Reykjavíkur eftir "útlegð" frá því á mánudag. Byrjuðum á því að fara norður á Borðeyri. Þar vorum við eina nótt, en fórum síðan að Varmalandi og bösluðum við það í eina þrjá daga að flytja dótið okkar úr geymslu í íbúð. Það voru heilmiklir snúningar. Okkur tókst að flytja allt á milli á þeim græna. Hann er galdratæki.
Oddný og Úa komu á miðvikudag og voru hjá okkur fram á fimmtudagskvöld. Bergrún skrapp einnig í heimsókn til okkar í gær, fimmtudag, og gerði stuttan stans. Allar þessar kvensur fengu sinn skammt af burði.

Ég leit vil í Hólabergið áðan og heilsaði upp á þau gömlu. Hrefna og Gummi er á Horni (fóru á þriðjudag) og stundar göngur þaðan með KÍ-hópi og koma ekki heim fyrr en um miðja næstu viku.
Heiða og Gaui eru að pæla í að skreppa á Norðurlandið um helgina og líklega veðum við hér í Reykjavík um helgina og búum okkur undir næstu vendingu.
Myndirnar eru af sveppnum árlega á Borðeyri og útsýni úr stofuglugga á Varmalandi.