fimmtudagur, 31. maí 2007

Af ferðum og heimkomu


Þá er Gaui farinn utan til Köben og Heiða aftur grasekkja með litla gutta sem virðist finna sig þokkalega hjá dagmömmunni. Amríkanarnir komu í morgun. Dóra fékk frí í vinnunni og sótti þau á völlinn. Við vöknuðum snemma og ég varð eftir í Vogunum. Húkkaði far heim.
Mamma fékk loks brottfararleyfi af spítalanum og er nú komin heim í Hólabergið. Ég fór og kíkti á þau gömlu. Mamma var alsæl og brosti látlaust allan hringinn - hún virðist bara hin sprækasta. Er alls ekkert lík þeirri manneskju sem hún var orðin fyrir innlögn.
Skarphéðinn í heimsókn í Hólaberginu.
Á morgun förum við með búslóð upp að Varmalandi og setjum í geymslu.

Ég á von á veseni í skólanum á morgun því bæjarstjórnin ætlar að halda upp á að við Dóra erum að hætta, með einhverri veislu. Við megum eiginlega ekkert vera að því.

laugardagur, 26. maí 2007

Sólardagur


Já, sólríkur
dagur en ekki mjög hlýtt.

Skarphéðinn er upprennandi pípulagningamaður eða verkfræðingur á lagnasviði. Hann hefur brennandi áhuga á klósettinu og því sem það hefur að geyma.

Við fórum í smá leiðangur með Heiðu og Skarphéðni. Hittum meðal annars pabba, afa, langafa, Hrefnu, Gumma og köttinn þeirra. Síðan fórum við í Húsgagnahöllina og keyptum nýtt rúm fyrir mömmu, ömmu, langömmu. Svo tók ég á móti nýja rúminu og henti því gamla. Þetta er alvöru rúm með hífa og slaka græjum.

Meðan ég er að pota í lyklaborðið á tölvunni er Heiða að elda kjúkling í tómatsósu. Þetta er hennar spesréttur og lyktin lofar góðu.
Undir miðnættið kemur Gaui til landsins.

Myndirnar sýna afastrákinn að rannsaka pípulagnir og í heimsókn í Hólaberginu.

fimmtudagur, 24. maí 2007

Fréttir úr sveppalandi


Æ, það eru reyndar engar sérstakar fréttir af okkur.

Jú, jú, við bókuðum ferð til Kaupmannahafnar 27. júní og til baka 6. júlí. Við ætlum að fara með Heiðu og Skarphéðni. Notum tímann til að skoða okkur um og fara í stuttar ferðir. Annars er ekkert sérstakt planað.

Björk (og Bergrún) verða að spila á Hróarskelduhátíðinni í byrjun júlí. Ég veit að Gaui ætlar að vera þar. Ranka systir var að tala um að Stáli væri að hugsa um að bregða sér þangað. Día og fjölskyldupartur kemur til landsins frá USA 31. maí. Þá er Bergrún einnig að koma heim í endaðan mánuðinn - við erum ekki með dagsetninguna á hreinu. Það er því mikið um að vera hvað ferðalög snertir - Oddný og Úa í Montpellier sem stendur.

Mamma er enn á sjúkrahúsinu og á nokkuð langt í land að gróa sára sinna. Ég sótti nýja göngugrind fyrir pabba í dag. Sú gamla var orðin úr sér gengin og ónothæf.

Ég frétti að Ranka kæmi til landsins 20. júní. Þá verður Fríða nýfarin. Hjörtur kemur svo frá Svíþjóð með sína frú í byrjun júlí.
Myndin hér fyrir ofan tengist á engan hátt efninu. Þetta eru sveppir sem uxu á trjádrumbi framan við Brynjólfshús í fyrrasumar.

þriðjudagur, 22. maí 2007

Fjölskyldufréttir


Jæja, nú er Heiða komin heim í heiðardalinn ásamt syninum Skarphéðni. Við sóttum þau á flugvöllinn um miðjan dag í gær. Þau fóru úr rúmlega 20 gráðu Kaupmannahafnarhita í 2ja stiga hitann á Íslandi.

Skarphéðinn tók okkur strax í sátt þó að við hefðum ekki séð hann síðan í janúar. Við komum við hjá ömmu í Keflavík.

Andri kom í mat til okkar um kvöldið. Við vöknuðum öll snemma í morgun og Skarphéðinn elti Mána um alla íbúð með miklum fagnaðarlátum. Hann Máni hefur reyndar vit á að halda sig til hlés þessa stundina.

Gaui kemur til landsins um helgina og ætlar að vera hér fram á fimmtudaginn í næstu viku.

Við höfum lítið frétt af Bergrúnu síðustu dagana - hún er væntanlega önnum kafin.

Leit við hjá pabba og mömmu í kvöld. Þar var allt í þokkalegu gengi.

sunnudagur, 20. maí 2007

Enn er spunnið


Í gær fórum við Dóra í bæinn og keyptum okkur bók!

Sjálfsagt erum við farin að sakna bókakassanna 40+ sem eru í geymslu. Settumst inn ákaffihús og fengum okkur kaffi. Fljótlega fylltist allt af rauðstökkum, einhverjum óskilgreinanlegum túristum sem klæddust sams skonar úlpum, sjálfsagt til að finna til samkenndar og öryggis í þessari frægu gleðskaparborg.

Fór í hjólastólaleiðangur með pabba á sjúkrahúsið að hitta mömmu.

Í dag var farið í kolaportið. Þar stóðst ég ekki freistinguna og keypti reyktan rauðmaga (sem reyndist þrár) og signa grásleppu. Veðrið er kalt og blautt.

Í gærkvöld held ég að Bergrún hafi verið að spila í San Fran ...

Hér er mynd af þessu einkennilega liði.

Andri kveðst vera orðinn forfallinn hjólreiðarmaður - nánast hættur að hreyfa bíl, en fer allra sinna ferða á hjólbeinóttum reiðskjóta.


Ég er með brjóstsviða eftir rauðmagaátið.

laugardagur, 19. maí 2007

Fréttir af hælinu


Það er sólskin í dag og það var sólskin í gær. Samt finnst mér alltaf verið að spá rigningu og roki. Það er að verða verulega sumarlegt, a.m.k. hér á suðvesturhorninu. Við heyrðum í Bergrúnu í fyrrakvöld. Hún var svolítið slöpp, en samt hress. Henni er ekkert farið að leiðast þetta flökkulíf. Fríið hennar verður víst nokkru styttra en áætlað var (3 vikur heima) því Björk þarf að koma fram í einhverjum sjónvarpsþætti í UK. Hún fer því aftur út í byrjun júní.

Nú er Oddný hjá Heiðu og Guðjóni í Köben. Sjálfsagt er verið að skoða alla merkilegu staðina í höfuðborginni.


Ég hitti Hrefnu reglulega hjá mömmu á sjúkrahúsinu. Mamma hressist stöðugt og hreyfir sig sífellt meira og í gær las hún tvær bækur. Hún hafði lítið lesið fram að þessu.

Gummi og Tinna eru nýkomin úr veiðiferð austur að Kirkjubæjarklaustri. Þau veiddu einn vænan urriða en misstu alla hina - þeir voru miklu stærri.

Leit við hjá pabba í gær. Hann var að sjóða lax og lét vel af sér.

miðvikudagur, 16. maí 2007

Dagurinn í dag


Við Dóra vöknum venjulega um kl. 6:00 á morgnana og reynum að vera komin í skólann ekki seinna en 7:30. Þannig var það í morgun. Við ökum yfirleitt Ströndina og mætum oftast skólabílnum á svipuðum slóðum dag hvern - það er Bidda að sækja krakka að Stóru-Vatnsleysu. Íþróttakennarinn átti fertugs afmæli í dag svo að ég fór í Njarðvík að sækja tertur. Það var rjómasukk.

Við fórum snemma heim því ég þurfti að fara með hjólagrindina hans pabba á verkstæði. Frétti þá að hann hefði dottið og þurft að nota neyðarhnappinn til að kalla á hjálp frá öryggisfyrirtækinu. Hann er nýbúinn að fá þennan hnapp og hann kom þarna í góðar þarfir. Sem betur fer meiddi hann sig ekki neitt að ráði.

Dóra fór að kíkja á Oddnýju og Úu sem eru að fara til Kaupmannahafnar á morgun. Þar hitta þær Heiðu og verða hjá henni fram á mánudag. Þá halda þær áfram til Frakklands en Heiða kemur heim til Íslands sama dag.

Ég fór og heimsótti mömmu á spítalann. Hún er orðin verulega sprækari og farin að ganga meira um. Hitti þar frænda minn, Einar Sigurjónsson, hann er mjög illa farinn af liðagigt.

Það er frí á morgun. Þetta er letilíf.

sunnudagur, 13. maí 2007

Kosningadagur

Jæja þá eru kosningarnar frá. Við Dóra tókum daginn snemma, mættum á kjörstað strax upp úr kl. 9:00 og fórum að því loknu í sund. Síðan lá leiðin í miðbæinn til að skoða mannlífið og risessuna sem hefur verið að leita að risanum ógurlega sem hefur farið um bæinn og valdið miklum spjöllum - hnífapörin hans hafa standa t.d. á kafi í bíl og strætisvagni. Mikill mannfjöldi var í miðbænum að fylgjast með.
Við fengum okkur kaffi og tertu í ráðhúsinu. Þá tók við það verkefni að koma pabba á kjörstað. Hann þurfti að fara í hjólastól. Ég var búinn að tilkynna honum að ef hann kysi ekki rétt þá myndi ég skilja hann eftir. Hann lofaði að kjósa eitthvað grænt en þó ekki framsókn, svo að ég verðlaunaði hann með því að fara með hann í heimsókn til mömmu á sjúkrahúsið. Það var óvænt ánægja fyrir mömmu. Hún var með fremur hagstæðar fréttir af sárinu sem verið er að græða - það lítur miklu betur út, þó að auðvitað sé langt í land með að það sé gróið. Oddný kom um kvöldið til að taka með okkur stöðuna á júróvisjón og kosningatölum. Ég vakti yfir kosningasjónvarpinu til klukkan að verða 4:00 en Dóra fór í háttinn fyrir tólf.
Stjórnin hélt naumlega velli (því miður) en ég var ánægður með að Ellert Schram og Kiddi sleggja komust inn á síðustu metrunum. Í dag, sunnudag þegar þetta er skifað, er glampandi sól og hægviðri, sem sagt hið besta vorveður.

laugardagur, 5. maí 2007

Heiða að koma heim


Heiða kemur heim frá Kongens Köbenhavn þann 21. - með Skarphéðin. Við höfum ekki séð þau síðan í janúar. Það verður mikið gaman, allavega fyrir okkur.
Heiða er að fara að vinna hér heima í sumar og Skarphéðinn verður hjá dagmömmu, allavega fyrsta kastið. Gaui kemur seinna til landsins.

Bergrún á ferð og flugi



Bergrún heldur nú um stundir uppi merki fjölskyldunnar á listasviðinu. Hún blæs í horn hjá Björk Guðmundsdóttur á maraþon tónleikaferðalagi hennar um heiminn. Núna er hún í USA ásamt hópnum og er auðvitað að upplifa ævintýri.
Þetta er fyrsta törnin af mörgum sem lýkur ekki fyrr en haustið 2008.

Þar kom að því

Þar kom að því að við féllum í blogggryfjuna. Er það ekki málið? Þetta er auðvitað bara tilraun til að tolla í tískunni og vera með. Kannski geta einhverjir haft gaman af því að fylgjast með vandræðaganginum á okkur - stefnulausum putaferðalöngum í alheiminum. Svo er kannski möguleiki á að setja inn sparimyndirnar okkar. Þær verða auðvitað flestar af einhverju öðru en okkur - við afmyndumst svo auðveldlega (illa). Hins vegar eigum við bráðmyndarleg börn og barnabarn sem skapa hagstæða mynd af fjölskyldunni.